Skinfaxi - 01.05.1995, Blaðsíða 15
Sigurðssyni frá Ökrum. „Við hlóðum
þama úr torfi og grjóti. Það átti býsna vel
við mig og mér fannst það skemmtilegt.
Þetta var það eina sem ég vildi gera á þeim
tíma, stunda útivinnu og reyna svolítið á
mig.“
I vetur sem leið stundaði Jón Amar svo
íþróttakennslu á Sauðárkróki og féll vel, að
því er hann segir.
Við ferðina norður hafði hann vista-
skipti í fleiri en einni merkingu þess orðs.
Hann fór úr HSK yfir í UMSS, og hefur
keppt undir merkjum síðarnefnda sam-
bandsins síðan.
„Mér fannst ekkert erfitt að skipta og í
raun og vem fannst mér það ágætt. Það var
kominn tími til að prófa eitthvað nýtt. Ég
er einn þeirra sem alltaf þurfa að hafa eitt-
hvað fyrir stafni. Það á ekki við mig að
liggja með tæmar upp í loft. Ég þarf heldur
ekki að óttast slíkt á næstunni, því verkefn-
in fram undan em óþrjótandi.“
Jón Amar á sprettinum, að þessu sinni í boðhlaupi.
Landshreyfing '95
Vertu með fyrir þig
Það em alltaf fleiri og fleiri að átta sig á
því hversu mikilvæg holl hreyfing er fyrir
líkamann. Fólk á öllum aldri er farið að
hreyfa sig reglulega og mikið er um að
hópar fólks hittist á kvöldin og hreyfi sig
saman.
Landshreyfing '95 stuðlar að hollri
hreyfingu meðal almennings og er eitt af
mörgum átökum sem verið hafa í gangi
undanfarin ár
Landshreyfing '95 er samstarfsverkefni
Ungmennafélags Islands, Frjálsíþróttasam-
bands íslands, Sundsambands íslands og
Vátryggingafélags íslands. Verkefnið er
beint framhald af Lýðveldishlaupinu sem
Ungmennafélag íslands stóð fyrir, ásamt
öðmm, síðastliðið sumar. Þátttaka í Lýð-
veldishlaupinu fór fram úr björtustu vonum
en talið er að um 25.000 einstaklingar hafi
tekið þátt í verkefninu.
Tilgangur Landshreyfingar '95 er að
fylgja eftir góðum árangri Lýðveldishlaups-
ins og þar með stuðla að hollri hreyfingu
meðal almennings. Verkefnið hófst þann
28. maí s.l. og stendur til og með 30. ágúst
eða samtals í 95 daga.
Gullverðlaun fyrir alla
Landshreyfing '95 hvetur sem flesta til
að hreyfa sig og allir þátttakendur geta unn-
ið til verðlauna. Einstaklingar fá verðlaun
eftir því hversu marga stimpla þeir hafa í
sérstakri bók sem prentuð var í tilefni verk-
efnisins. Til að ljúka dagsverkinu og fá
stimpil þarf þátttakandi að ganga/hlaupa 3
Veður var heldur kalsalegt á opnunarhátíðinni á Akureyri en menn létu það ekkert á sig
fá.
Skinfaxi
15