Skinfaxi - 01.05.1995, Qupperneq 20
Eflum sundíþróttina
Starfsemi Sundsambands íslands hefur
breyst á undanförnum árum, þannig að
mun fleiri taka þátt í störfum sambandsins
nú en áður. Aðalbreytingamar eru þær að
nefndir eru sjálfstæðari og vinna eftir
starfs- og fjárhagsáætlunum og em mann-
aðar ágætu fólki sem hefur þjálfast upp á
undanfömum ámm og sú reynsla sem það
hefur öðlast mun nýtast sambandinu á
komandi ámm.
Nær allar starfsnefndir eru kosnar á
sundþingi eftir að áætlanir hafa verið sam-
þykktar þannig að nefndarmenn vita að
hverju þeir ganga og hefur þetta fyrir-
komulag reynst ágætt. Þetta fyrirkomulag
hefur dreift starfinu og létt á störfum
stjórnar til mikilla muna. í fræðslumálum
hefur verið unnið að mörgum námskeiðum
fyrir leiðbeinendur, bæði A og B nám-
skeiðum og nú er í gangi fyrsta C stigs
námskeið á vegum fræðslunefndar og
gengur það með ágætum.
Þá var haldið námskeið fyrir leiðbein-
endur í ungbarnasundi og vatnsþolleikfimi
með erlendum leiðbeinanda, en vatnsþol-
leikfimi er orðin mjög vinsæl út í hinum
stóra heimi og ættu félögin að geta gert sér
mat úr því ef aðstæður leyfa.
Fræðslumál hvers sérsambands er hom-
steinn að öflugri útbreiðslu og uppbygg-
ingu hverrar íþróttargreinar og er það von
mín að SSÍ nái að efla fræðslunefndina
þannig að íþróttin nái að þróast og styrkj-
ast á komandi ámm. Dómaranefndin stóð
fyrir endurþýðingu á sundreglum og leið-
beinandabæklingum frá Alþjóða Sundsam-
bandinu (FINA) þannig að nú er hægt að
bjóða upp á námskeið, eða bæklinga fyrir
alla sem starfa að sundmótum frá tíma-
vörðum til yfirdómara. Mörg dómaranám-
skeið hafa verið haldin og vil ég hvetja fé-
lagsmenn til að hafa samband við skrif-
stofu SSI ef þeir vilja að haldin verði nám-
skeið heima í héraði. Nefndarmenn í dóm-
aranefnd hafa verið duglegir að fara með
námskeið út á land en frumkvæðið þarf að
koma frá ykkur.
Garpanefnd er yngsta nefndin innan SSÍ
en hún sér um að skipuleggja og halda utan
um keppni eldri sundmanna og hefur unnið
brautryðjandastarf í þessum máli. Stærstu
sundmót sem fram fara í heiminum í dag er
Meistaramót eldri kynslóða og eru kepp-
endumir frá 25 ára til 90 ára og eldri. Það
er von mín að sem flestir eldri sundmenn
sem lagt hafa keppnissundfötin á hilluna
Sundsamband íslands er aðili að Landshreyfmgu 095 og hvetja forráðamenn þess alla til
að dusta rykið af sundfötunum og taka þátt.
dusti af þeim rykið og kanni getu sína, en
þó ekki án þess að hafa þjálfað sig áður.
Mótanefnd skipuleggur mótahald SSI og
fer þar fram mikil vinna og undirbúningur
við framkvæmd og samningagerð vegna
móta SSÍ. Mótanefndin og SSÍ leggja
metnað sinn í að gera mót SSI að þeim fyr-
irmyndarmótum sem þau verða að vera. En
mótanefndin verður að treysta á að félögin
komi með starfsmenn á mótin svo að þau
geti farið fram eftir settum reglum. Störf
landsliðsnefndar eru ekki öfundsverð, en
þar fer fram skipulagning á landsliðsstarf-
inu og sitt sýnist hverjum um þær stefnur
sem verða á endanum ofan á í þeirri nefnd.
Sund er einstaklingsíþrótt og ráða stundum
sekúndubrot hvort maður er valin í landslið
eða ekki og er þá eins gott að dagsformið
og þjálfunin séu í góðu lagi. Ég vil þó
halda því fram að meiri sátt ætti að geta
náðst um stefnur ef þingfulltrúar mættu til
sundþings betur undirbúnir og agaðri, og
röðuðu mótaskrá SSI í samræmi við þau
alþjóðamót sem við erum að stíla inn á að
sem bestur árangur náist á. En þó má það
ekki gleymast að við verðum að halda
verkefnum innan fjárhagsáætlana.
Arið 1997 fara fram Smáþjóðaleikar hér
á landi ef aðstæður leyfa, en eins og staðan
er í dag vantar okkur 50 m innilaug en SSÍ
verður að trúa því að þessi langþráða laug
verði til staðar þegar leikarnir fara hér
fram. Undirbúningur er þegar hafinn og
var fulltrúi frá mótanefnd á síðustu leikum
til að kynna sér aðbúnað og skipulagningu.
Þannig að á næstu tveimur árum verður
SSI að þjálfa upp allt að 60 manns til að
sjá um þetta sundmót og gera SSI-mót í
framtíðinni að „generalprufumótum" þó að
aðstæður bjóði nú ekki upp á það, en við
reynum. Til að vel takist verða allir, for-
ystumenn SSI og félaga að leggjast á eitt
til að nægur mannskapur verði og skipulag
verði í lagi.
Það er líka staðreynd að ekki er til nema
ein boðleg 25m inni laug þar sem hægt er
að synda IMI við þokkalegar aðstæður. En
á síðustu árum hafa verðið reistar nokkrar
nýjar 25m útilaugar, og er nú komin tími
til að stofna sundfélög eða deildir á þeim
stöðum.
Guðfinnur Ólafsson
Form. SSÍ
20
Skinfaxi