Skinfaxi - 01.05.1995, Síða 21
Ungmennafélag íslands:
Mikil gróska í
erlendum samskiptum
- ;
Norsku stúlkumar settust út í góða veðrið og léku af fingrum fram.
UMFÍ meðan á undirbúningi fyrir ung-
mennavikuna stendur. Síminn hringir lát-
laust og að fjölmörgu þarf að huga áður en
þátttakendumir koma.
„Það er heilmargt sem fólk vill fá að
vita. Erlendu samtökin eru að afla ýmis
konar upplýsinga um ungmennavikuna,
svo sem hvað sé innifalið í þátttökugjald-
inu, hvers konar aðstöðu sé boðið upp á,
hvað eigi að gera, hvað þurfi að hafa með
sér og svo framvegis. í mörgum tilvikum
hringja krakkarnir sjálfir eða foreldrar
þeirra til þess að afla upplýsinga. Þau vilja
kynna sér hvað eigi að vinna í starfshópun-
um og fleira á þeim nótum. Hingað hringdi
til dæmis norsk stúlka sem spurði hvað
ætti að gera í hópnum sem heitir „slpjd" á
dönsku. í Noregi þýddi þetta trésmíði, en í
Danmörku þýðir þetta handavinna og hefur
þar af leiðandi miklu víðari merkingu.
Stúlkan var hálfundrandi á að þátttakendur
ættu að vinna að trésmíði á Hrafnagili, en
leist miklu betur á hópinn þegar ég sagði
UMFI hefur átt mikil og góð samskipti
við systrasamtök sín á hinum Norðurlönd-
unum á undanförnum árum. Er óhætt að
segja að það starf fari vaxandi, sem unnið
er á þeim vettvangi.
Ungmennavika NSU var að þessu sinni
haldin að Hrafnagili í Eyjafirði. Að sögn
Halldóru Gunnarsdóttur, eins af umsjónar-
mönnum vikunnar, og starfsmanns þjón-
ustumiðstöðvar UMFÍ, var þátttaka mjög
góð.
„Áhuginn virðist vera vaxandi og það
koma stærri hópar frá hinum löndunum en
áður. Hins vegar fer það orð af íslandi inn-
an samtakanna, að þangað sé dýrt að fara.
Það virðist þó ekki breyta neinu um áhug-
ann.“
Það er líf og fjör í þjónustumiðstöð
rerðSiu^þMf
URSes
Bankastræti 6. Sími 1
Skinfaxi
21