Skinfaxi - 01.05.1995, Side 33
Lokaglíman. Upprennandi glímustjarna, Ingibergur Sigurðsson, skellir aldursforsetanum
Kristjáni Yngvasyni.
og skörtuðu sex Islandsmeistur-
um. Skarphéðinsmenn hlutu þrjá slíka og
glímufélagið Ármann tvo.
I hnokkaflokki sigraði lipur og snar
drengur úr Ármanni, Júlíus Jakobsson.
Hann kann ýmislegt fyrir sér og keppnis-
skapið skortir ekki. Næstir komu Þorkell
og Bjami Bjamsynir, bræður tveir af Laug-
arvatni sem eiga til glímukappa að telja, en
langafi þeirra, Bjami Bjamason skólastjóri
var einn fremsti glímumaður landsins fyrr
á öldinni.
I piltaflokki voru miklar sviptingar í
fjölmennum flokki sem var skipt í tvo riðla
sökum fjölda keppenda sem voru 17 alls.
Fjórir komust í úrslit, tveir Laugvetningar,
einn Austfirðingur og einn Þingeyingur.
Það var að lokum Þingeyingurinn Jón
Smári Eyþórsson sem hrósaði sigri. Faðir
hans, Eyþór Pétursson, fyrrum glímukóng-
ur var á staðnum og veitti syni sínum góð
ráð sem dugðu. Næstur varð Austfirðing-
urinn Þórólfur Valsson, sterkur strákur, en
ekki búinn að æfa mjög lengi. Þriðji varð
Þorkell Snæbjömsson, efnilegur Laugvetn-
ingur sem tekur glæsileg hábrögð en þessir
þrír voru næstum hnífjafnir. Jón Smári
var kunnáttumestur og það reið baggamun-
inn.
I sveinaflokki var Olafur Kristjánsson
HSÞ öruggur sigurvegari. Olafur kann
töluvert fyrir sér, enda af mikilli glímuætt
úr Mývatnssveitinni. Hann er kappsfullur
og oft býsna þungbúinn á svip þegar hann
stikar inn á glímuvöllinn en yfirleitt létt-
brýnn að glímulokum því Olafur er sigur-
sæll með afbrigðum. Næstir honum komu
félagar hans tveir, þeir Valdimar Ellertsson
og Yngvi Hrafn Pétursson en þeir Ólafur
em bræðrasynir.
Knáir karlar
f karlaflokki - 81 kg sigraði Þingeying-
urinn knái, Amgeir Friðriksson en rúmlega
þrítugur bóndi úr Rangárþingi, Kristinn á
Þverlæk veitti honum þó harða keppni.
Þriðji varð Friðrik Steingrímsson sem ein-
hvemtíma fyrir óralöngu hafði glímt fyrir
Þingeyinga.
Friðrik er nú fertugur og kom eingöngu
til að starfa við mótið. En spennandi
keppni lætur engan ósnortinn og Friðrik
henti pennanum, spennti glímubeltið og
náði þriðja sæti í flokknum. Oddbjörn
Magnússon þjálfari Sauðkræklinga varð
fjórði eftir góða baráttu.
í flokki - 90 kg sigraði gamli jaxlinn
Kristján Yngvason HSÞ. Elstur keppenda
sýndi hann að ekki má vanmeta klóka
Rögnvaldur Ólafsson hafði engu gleymt.
He'r tekst hann á við heljarmennið Þórð
Hjartarson, Armanni.
keppnismenn þó þeir nálgist fimmtugt
enda hefur Kristján stundað íþróttir alla tíð
og er vel á sig kominn. Meira að segja Ey-
þór Pétursson, fyrrum glímukóngur mátti
liggja fyrir Kristjáni að þessu sinni og
hvað þá minni spámenn.
í þriðja sætinu varð tvítugur Þingeying-
ur, Sigurður Kjartansson. Milli hans og
Kristjáns eru tæpir þrír áratugir og sýnir
það best að glíma er íþrótt fyrir alla aldurs-
hópa.
í þyngsta flokkinn vantaði að vísu
nokkra sterka glímumenn en ekki var
keppnin síður fjörug fyrir það því hér
mættu þeir ungu og upprennandi gömlum
harðsnúnum görpum og þar hittust stálin
stinn. Hinn eldsnarpi og brögðótti Ingi-
bergur Sigurðsson sem keppt hefur fyrir
Ármann síðustu árin sigraði örugglega en
næstur kom Pétur Yngvason, helsti glíntu-
frömuður Þingeyinga og fimmfaldur
glímukóngur. Pétur hefur án efa keppt oft-
ar og meir en nokkur glímumaður á Islandi
fyrr og síðar og er enn í dag einn af þeim
bestu. Hann sló við hinum unga Ármenn-
ing Ólafi Sigurðssyni sem áður keppti fyrir
HSK. Mesta athygli vakti þó keppandinn
sem að lokum vermdi botnsætið. Það var
enginn annar en Rögnvaldur Ólafsson KR,
formaður Glímusambandsins. Hann tók sig
til og girtist glímubelti í tilefni dagsins og
hafði þá aðeins keppt tvisvar síðustu tíu
árin og tuttugu kílóin! Rögnvaldur sýndi
glæsileg tilþrif í gólfvömum enda alþekkt-
ur fyrir þær á árum áður. Fögnuðu áhorf-
endur mjög afturkomu hans á glímuvöll-
inn.
Sterkara kynið hjá HSK
Það voru konurnar sem héldu uppi
merki HSK á mótinu en þær sigruðu í
þremur af fimm flokkum kvenna. í hinum
flokkunum sáu þingeysku dömurnar um
móttöku gullpeninga eftir mótið.
Andrea Pálsdóttir HSK varð hlut-
skörpust í hnátuflokki. Þessi hægláta stúlka
frá Rauðalæk svipti öllum keppinautum í
völlinn á sniðglímu en þurfti að takast
hressilega á við Hildigunni Káradóttur sem
Skinfaxi
33