Skinfaxi - 01.05.1995, Síða 36
Strandagangan
Þann 26. mars fór fram á Hólmavík
fyrsta STRANDAGANGAN sem er ein af
Islandsgöngunum svokölluðu. Draumur
skíðagöngumanna hér á svæðinu varð að
veruleika um að fá eina af íslandsgöng-
unum heim í hérað. Héraðssamband
Strandamanna tók að sér að sjá um móts-
haldið. Á fyrsta undirbúningsfundi skíða-
ráðs HSS með skíðagöngumönnum og
öðrum samstarfsaðilum, var ákveðið að
stefna að því að gangan færi fram laugar-
daginn 25. mars kl. 14:00 og bjóða upp á 5
km. og 10 km. trimmgöngur samhliða 20
km. Islandsgöngunni. Á þessum fundi
skiptu menn með sér verkum varðandi
undirbúninginn, Þorsteinn Sigfússon tók
að sér að vera göngustjóri og hafði hann
umsjón með framkvæmdum við gönguna.
Eftir þennan fund varð mönnum ljóst að
það var eindregin ásetningur allra að gera
þessa fyrstu Strandagöngu sem glæsi-
legasta á allan hátt, þar með fóru hjólin að
snúast og ekkert annað komst að en að
fyrsta Strandagangan yrði ein af stærstu og
glæsilegustu skíðagöngukeppnum vetrarins
á landinu. Það ánægjulega við undirbún-
ingin var að það var alveg sama við hvern
var talað allir vildu leggja sitt af mörkum
til að ná settu marki.
Þröstur Jóhannesson og Oskar Kárason
frá Isafirði komu og voru með göngu-
skíðanámskeið á Hólmavík og Drangsnesi
í byrjun mars. Mikil fjöldi fólks tók þátt í
þessum námskeiðum að einhverju leyti, en
við vorum frekar óheppin með veður þessa
tíu daga sem þeir voru hjá okkur. Margir
nýliðar í íþróttinni nutu góðs af
námskeiðunum og er greinilegt að
gönguskíðaiðkun hefur stóraukist í vetur.
Strandagangan á eflaust sinn þátt í þessum
aukna áhuga á gönguskíðunum. Þröstur og
Óskar gáfu okkur einnig góð ráð varðandi
brautarlagningu og önnur framkvæmdar-
atriði við Strandagönguna. Isfirðingar eiga
hrós skilið fyrir alla aðstoð við fram-
kvæmd göngunnar.
Ákveðið var að reyna skrá sem flesta til
keppni fyrir keppnisdag og var tölva notuð
við skráninguna. Þetta hafði þá kosti að
allir keppendur gátu séð hvar þeir urðu í
röðinni stuttu eftir að allir voru komnir í
mark.
Frestað vegna veðurs
Keppnisdagurinn nálgaðist og allt gekk
samkvæmt áætlun. Veður var gott fyrir
helgina og á föstudagskvöld var búið að
skrá 86 keppendur og reiknað með fleirum
þar fyrir utan frá Akureyri. Á laugar-
dagsmorgun blésu suðvestan vindar heldur
óblíðlega og var mikill skafrenningur.
Menn tvístigu og rifu í hár sitt lengi fram
eftir morgni, hvort hægt væri að ganga eða
hvort yrði að fresta göngunni. Haft var
samband við veðurstofuna. Veðurfræð-
ingur þar réð okkur eindregið frá því að
hafa nokkra skíðagöngu, von væri á
norðan bylskoti sem kæmi eins og hendi
væri veifað. Strandagöngunni var því
frestað til sunnudagsins, það var líka eins
gott því orð veðurfræðingsins fóru eftir.
Sunnudagurinn rann upp bjartur og
fagur en dálítill norðanvindur og skóf í
brautina sumstaðar. 20 km. brautinni var
því breytt, gengu þeir ekki inn á Ósdal eins
og fyrirhugað var heldur fóru aukahring á
leiðinnni. Brautarlýsing: Start 24 m y.s.
Mark 29 m y.s. Lægsti puntur 7 m y.s.
Hæsti puntur 96 m y.s. Mesta klifur 67 m
Heildarklifur 350- 400 m. Snjór blanda af
nýjum og gömlum snjó. Gengið var með
hefðbundinni aðferð. Keppendum var
öllum startað á sama stað fyrir ofan flug-
stöðina á Hólmavík og gengið um Kálfa-
Hópur keppenda, sem þátt tóku í göngunni.
36
Skinfaxi