Skinfaxi - 01.05.1995, Qupperneq 38
Keppendur í 20 km Islandsgöngunni.
nesflóa og endað við Félagsheimili Hólma-
víkur, þar sem keppendur gátu farið í
sturtu og skolað af sér svitann.
Keppendum og starfsmönnum var boðið í
dýrindis kaffiveislu í félagsheimilinu sem
konur á Hólmavík og í Kirkjubólshreppi
höfðu fram borið. Þar fór einnig verðlauna-
afhending fram. Þátttakendur voru samtals
71, yngsti keppandinn 7 ára og sá elsti 63
ára.
Þátttakan
Þrettán keppendur komu frá ísafirði,
þrír úr Reykjavík, einn frá Sauðárkróki og
samtals 54 heimamenn tóku þátt.
Samkvæmt mínum heimildum hafa aldrei
fleiri heimamenn tekið þátt í sömu
göngunni. Enginn keppandi kom frá
Akureyri eða því svæði og mun færri
keppendur komu frá Isafirði en búist var
við í upphafi. Bikarmót SKÍ á Akureyri
þennan sama dag setti þar strik í
reikninginn. Finnst okkur það ansi hart
fram komið við okkur að setja þetta
bikarmót ofan í Strandagönguna, ekki síst
þar sem við erum að halda hana í fyrsta
skipti og búnir að kosta miklu til að gera
hana sem glæsilegasta. Það er eindregin
ósk HSS og Strandamanna allra að þetta
gerist ekki aftur.
Það er ljóst að gönguskíðaíþróttin á
vaxandi fylgi að fagna hér á Ströndum og
okkar fólk er að ná góðum árangri á mót-
um utan héraðs. Strandamenn fjölmenntu í
Fossavatnsgönguna 29. april s.l. og náðu
góðum árangri margir hverjir. Fossavatns-
gangan fór fram í blíðskaparveðri, logni og
sólskini enda fóru margir rauðir heim.
Fossavatnsgangan var síðasta Islandsgang-
an á þessum vetri og þar með urðu úrslitin
ljós samanlagt úr Islandsgöngunum en þrír
bestu árangramir gilda. I flokki 17-34 ára
varð íslandsmeistari Ragnar Kristinn
Bragason HSS. Strandamenn hafa ekki
eignast íslandsmeistara í skíðaíþróttum
síðan 1952. Þessi árangur Ragnars ætti að
hvetja Strandamenn til enn frekari afreka á
gönguskíðum. Strandamenn eiga unga og
efnilega göngumenn, HSS hvetur þá til að
setja markið hátt og æfa af kappi.
Islandsgöngurnar eru skemmtilegar
keppnir sem ættu að geta aukið göngu-
skíðaiðkun ef vel er á málum haldið. Það
ætti að vera keppikefli þeirra sem halda
þessar göngur á hverjum stað að gera það
sem best og fá sem flesta til að vera með.
HSS þakkar öllum þeim er studdu við
bakið á okkur og gerðu framkvæmd fyrsta
Strandagöngunar mögulega. HSS þakkar
Þorsteini Sigfússyni göngustjóra fyrir
geysilega vel unnið starf og félögum úr
Björgunarsveit SVFÍ á Hólmavík fyrir
brautarvörslu og brautarlagningu,
Kaupfélagi Steingrímsfjarðar Hólmavík
fyrir fjármögnun á verðlaunapeningum,
konum á Hólmavík og úr Kirkjubólshreppi
fyrir glæsilegar veitingar og stuðning
Hólmavíkurhrepps við gönguna með
fjárframlagi.
Sjáumst öll hress og kát í
Strandagöngunni á næsta ári.
Islandi allt.
Form. Héraðssambands
Strandamanna
Vignir Örn Pálsson.
Veður var dkjósanlegt að sunnudeginum, þegar ganganfór fram.
38
Skinfaxi