Skinfaxi - 01.08.1995, Side 10
breyst mikið í gegnum tíðina og að
undanförnu hafa útgjöld fjöl-
skyldunnar aukist verulega vegna
æfingagjalda sem íþróttafélögin
leggja á börn og unglinga. Björn
sagðist ekki hafa hugsað þetta mál
en tekur fram að íþróttafélögin
verði að afla sér tekna.
„Þetta er ein leið fyrir íþrótta-
félögin til að afla sér tekna og það er
kannski hægt að spyrja; hver annar á
að borga en sá sem tekur þátt í
starfinu? Félögin eiga held ég ekki
annarra kosta völ. Hvað varðar
opinbera styrki er um verka-
skiptingu á milli ríkis og
10 SKINFAXI
sveitarfélaga að ræða. Hlutur
ríkisins er lögum samkvæmt minni
en sveitarfélaganna. Iþrótta-
hreyfingunni hefur sérstakar tekjur
af Lottóinu. Við sjáum það líka, að
stjörnum er gífurlega vel borgað í
íþróttum, sem sýnir að þær hljóta að
vera arðbærar."
En telur Björn kannski að félögin
láti krakkana borga hærri æfinga-
gjöld til að safna peningum til að
borga „stjörnunum" í meistara-
flokki?
„Ég hef ekki velt því fyrir mér og
þekki það vandamál ekki. Þegar ég
var ungur var frekar reynt að smala
á æfingar en leggja á
gjöld til að hrinda
frá."
Verkefni og keppni
fyrir hinn almenna
þátttakanda virðast
verða færri með
hverju árinu sem
líður. Ungmenna-
félag Islands, ásamt
öðrum, stóðu í sumar
fyrir Lands-
hreyfingu'95 þar sem
almenningur getur
tekið þátt og unnið
til verðlauna. Björn
telur að slík verkefni
hafi vaxandi
hljómgrunn.
„Ég held að öll
svona verkefni séu
gagnleg. Því miður
hefur Lands-
hreyfingin ekki verið
mikið í umræðunni á
almennum vettvangi.
Ég hef hins vegar séð
að fólk er áhugasamt
um þetta, t.d. á
sundstöðunum og
það hefur verið að
láta stimpla í bækur
sem verkefninu
fylgdu. Það á ekki að
aftra mönnum þótt
þetta hafi kannski
ekki slegið í gegn í ár,
maður sér þegar
verið er að
skipuleggja göngu á
Esjuna þá fjölgar ár
frá ári. Ég held að
verkefni eins og
Landshreyfingin hafi
mjög mikið gildi og
fyrir marga er þetta
þakklátt starf. Allir
sem byrja að hreyfa sig átta sig á
gildi þess.
Ég held líka að allt viðhorf
gagnvart hreyfingu og heilsurækt
hafi breyst verulega á undanförnum
árum, nú hugsar fólk miklu meira
um heilsuna. Það er t.d. ekki litið
skrýtnum augum á fólk sem er úti að
hlaupa á almannafæri og menn
hugsa frekar í dag: „Þetta ætti ég að
vera að gera". Viðhorfið hefur
breyst mjög mikið."
En nú er Björn kominn á þann
aldur að hann man tímana tvenna
eins og sagt er. Telur hann að
ungmennafélagshreyfingin hafi