Skinfaxi - 01.08.1995, Page 14
Hvað segir
Isak Tómasson?
Isak Tómasson hafði
lengi verið meðal þeirra
hestu í körfuboltanum á
tslandi en hann ákvað í
sumar að leggja skóna á
hilluna. Isak hefur unnið
til margra titla með liði
Njarðvíkur og lék vel á
síðasta tímabili þegar hann
skoraði 7,3 stig að
meðaltali í leik. En hverja
telur ísak líklegasta til að
berjast um Islands-
meistaratitilinn í ár?
„Deildin verður jafnari
en oft áður og í baráttunni
verða lið eins og Keflavík,
Njarðvík, ÍR og KR. Ég
hef nú ekki séð nóg til
hinna liðanna til að spá
þeim sœti en Borgarnes og
Grindavík gœtu hugsanlega
blandað sér í baráttuna.“
Hvað lið vinna riðlana?
s
„Eg vona að það verði
Njarðvík eða Kejlavík sem
vinna A-riðilinn og œtli það
verði svo ekki Grindavík
sem vinnur B-riðilitin. “
Hvað finnst þér um þá
umrœðu að leyfa tvo
útlendinga á lið?
„Eg held að það sé alveg
nóg að liafa einn eins og
þetta er í dag.
Kostnaðurinn myndi
aukast verulega ef liðin
fceru að vera með tvo
útlendinga og svo yrði mun
erfiðara fyrir íslensku
strákana að konuist að í
liðunum. “
A-riðill
Þrátt fyrir að bikarmeistarar Grindavík séu í B-riðli
s
virðist A-riðillinn fljótt á litið sterkari. Islands-
meistarar Njarðvík mœta eflaust ákveðnir til leiks eftir
frekar slakt gengi á undirbúningstímabilinu. Haukar
koma reynslunni ríkari og hafa tryggt sér óflugan
*
útlending. IR-ingar féllu óvœnt út ífyrra en Herbert,
Rodhes og félagar œtla sér eflaust lengra í vetur.
óvart. Þjálfari liðsins er Reynir
Kristjánsson.
ÍR
Á sínu öðru ári í deildinni gætu IR-
ingar virkilega blandað sér í topp-
baráttuna. Herbert Arnarson hefur
sýnt það að hann er einn besti
körfuboltamaður okkar lslendinga
en hann skoraði að meðaltali 26,9
stig í leik í fyrra. John Rodhes mun
halda áfram að hirða fráköstin þrátt
fyrir að hann sé farinn að þyngjast
örlítið. Jón Orn mun áfram leika í
skugga Herberts en hann skilaði
hlutverki sínu mjög vel með liðinu í
fyrra. Þjálfari ÍR er John Rodhes.
UMFN
Þrátt fyrir að meðalaldur liðsins fari
ört hækkandi og að Isak Tómasson
hafi ákveðið að leggja skónum og
verður liðið eina ferðina enn að
teljast sigurstranglegt. Rondey
Robinson hefur sjaldan leikið betur
en í fyrra og Teitur og Valur skila
ávallt sínu. Sverrir Þór Sverrisson
sem kom frá IBK mun koma til með
að styrkja lið Njarðvíkur mikið og þá
sérstaklega varnarlega en Sverrir er
talinn einn besti varnarmaðurinn í
deildinni. Þjálfari liðsins er Hrannar
Hólm.
ÍBK
Falur Harðarson og Guðjón
Skúlason munu styrkja liðið
mikið. Falur skoraði 18,6 stig að
meðaltali í leik fyrir KR í fyrra
og þau stig eiga eftir að koma
sér vel fyrir Keflavíkurliðið.
Davíð Grissom og Lenear Burns
verða að leika á fullum krafti í
vetur ef Keflavík á að blanda sér
í toppbaráttuna. Liðið mun
sakna Sverris Þórs. Þjálfari
liðsins er Jón Kr. Gíslason.
Haul^ar
Hafnfirðingarnir ætluðu að vera
án útlendings en þegar þeir sáu
liðin sem voru í riðlinum þeirra
voru þeir ekki lengi að næla sér í
einn góðan Bandaríkjamann.
Jón Arnar og Pétur Ingvarssynir
verða að leika betur en í fyrra og
ef Sigfús Gizurarson skilar 19,8
stigum í leik, eins og hann gerði
í fyrra, gætu Haukar komið á
14 SKINFAXI