Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.1995, Síða 18

Skinfaxi - 01.08.1995, Síða 18
Hérna snýst allt um íþróttir OLAFSFJÖRÐUR Það má svo sannarlega segja að allt sé á fullu í íþróttalífinu á Olafsfirði. Leiftursmenn eru í toppslagnum í knattspyrnunni, bygging nýs skíðaskála stendur yfir, golfararnir hyggjast lengja völlinn og bygging nýs félags- og * * skrifstofuhúsnœðis UIO er komin á pappírana. * / Helga Guðjónsdóttir er formaður UIO en hún er kennari á staðnum og tók við formennsku sambandsins í apríl. En hvernig kom það til að hún tók við? „Það er þannig að Leiftur tilnefnir formann UIO og þeir komu að máli við mig, formaðurinn og vara- formaðurinn, og báðu mig að taka þetta að mér. Þeir höfðu heyrt að ég hafði starfað við þetta áður, en ég var formaður Geisla í Súðavík áður en ég fluttist hingað." Er það mikil aukavinna að vera formaður UÍÓ? „Það hefur farið ótrúlega mikill tími í starfið í sumar. Við sáum um Landshreyfinguna, Kvennahlaupið, Umhverfisverkefnið, Friðarhlaupið og tókum þátt í Unglingalands- mótinu á Blönduósi, Norðurlands- mótinu í frjálsum og svo nokkrum smærri mótum. Þetta hefur verið töluverð vinna og svo hefur undir- búningurinn á byggingu UÍÓ- hússins verið á fullu." Nýtt UÍÓ-hús? Er þarna verið að tala um stóra félagsmiðstöð fyrir allar deildir? „Þetta yrði félagshús þar sem þær deildir sem fjármagna bygginguna verða með aðstöðu. Leiftur, bæði knattspyrnu- og skíðadeild, Skotklúbbur Ólafsfjarðar, Skotfélag Ólafsfjarðar og svo UIÓ. Húsið yrði hins vegar ekki eingöngu skrifstofu- húsnæði heldur yrði það einnig hugsað sem félagsmiðstöð og svo yrði þar sturtu- og búningsaðstaða fyrir knattspyrnuvöllinn. Við erum búin að fá aðvaranir frá KSI fyrir slaka aðstöðu í kringum knatt- spyrnuvöllinn og þetta hús mun því leysa það vandamál jafnframt því að vera félagsaðstaða og skrifstofu- húsnæði." Nú fer eflaust mikill tími í vinnuna og í starfið hjá UIÓ, er einhver tími fyrir önnur áhugamál? „Það er alltaf tími ef maður skipuleggur bara daginn vel. Það er auðvitað fjölskyldan og starfið - mér finnst mjög gaman að kenna, en svo er ég líka í kór. Einnig hef ég ásamt nokkrum konum verið í bútasaumum og við vorum t.d. með sýningu nú í surnar." Hvernig kom það til að þú fórst að starfa svona mikið fyrir ung- mennahreyfinguna? „Ég hef alltaf verið í íþróttum. Ég var í fimleikum, frjálsum, sundi, handbolta og fótbolta. Iþróttirnar voru númer eitt alveg upp úr menntaskóla en þá fór ég að búa og slakaði aðeins á í leiðinni. Ég hef alltaf verið mikið fyrir útiveru og stunda mikið göngu og hlaup í dag." Var ekkert erfitt að koma í nýtt bæjarfélag og á svo skömmum tíma taka við formennsku UIÓ? „Nei, við höfðum búið hérna í tvö ár áður en ég tók við formennskunni og ég var alveg ákveðin frá því að ég fyrst kom hingað að reyna að kynnast sem flestum og starfa með fólkinu í bænum. Svo kom þetta líka í gegnum börnin mín þar sem þau eru bæði á kafi í fótboltanum og svo á skíðum á veturna þannig að ég fór að starfa með foreldrafélögunum þar. Ahugi minn var til staðar og ég var alltaf að spyrja og fylgdist vel með. Mér fannst líka sérstaklega gaman að starfa hérna þar sem virknin og áhuginn var svo mikill og allir virtust viljugir að leggja hönd á plóginn. Það má eiginlega segja að maður hafi bara hrifist með." Er Ólafsfjörður sér á báti hvað varðar félagsskap í kringum íþróttirnar? „Það er alveg sama hvar þú kemur, hérna snýst allt um íþróttir og það er mjög erfitt að lýsa þessari upplifun með fáum orðum. Ég hef nú verið á mörgum stöðum þar sem stemmningin hefur verið góð í kringum íþróttirnar en það var samt aldrei þessi upplifun sem maður finnur hér. Það er bara ekki hægt að lýsa þessu." Er eitthvað annað á döfinni hjá ykkur en nýja húsið? „Við erum að reyna að koma upp frjálsíþróttadeild. Núna í sumar var hópur af krökkum sem tók þátt í mótum og þar virtist vera mikill efniviður. Við ætlum að reyna að Helga tók við formennskunni í apríl. 18 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.