Skinfaxi - 01.08.1995, Blaðsíða 19
halda utan um þennan hóp og virkja
starfsemina."
Með allar þessar virku deildir,
verður aldrei samkeppni á milli
þeirra um krakkana?
„Eg hef ekki orðið vör við það en
samt fylgjast. forráðamennirnir vel
með því að t.d. bæjarstjórnin styrki
eina deild ekkert meira en aðra.
Samkeppni um krakkana held ég að
sé ekki til staðar enda eru flestir
krakkarnir í fleiri en einni íþrótt og
þannig á það að vera."
Ertu ánægð með árangur
íþróttafólksins héðan að undan-
förnu?
„Þetta er búið að vera alveg
meiriháttar að undanförnu. Fót-
boltinn hefur verið frábær í sumar
og nú keppir Leiftursliðið í
toppbaráttunni í 1. deild. A
Andrésar Andar-leikunum, sem er
nokkurs konar Islandsmót
yngriflokka, sendum við 63
keppendur sem komu heim með 67
verðlaun til baka. I hestaíþróttum
og golfinu hefur okkur einnig gengið
mjög vel og svo má ekki gleyma því
að við höfum átt Islandsmeistara úr
röðum skotfélagsins."
Nú var síðasti vetur mjög harður
og snjóþungur. Er ekkert erfitt að
OLAFSFJORÐ UR
krökkunum frekar frá óheilbrigðu
líferni?
Leiftursmenn á Unglingalandsmótinu á Blönduósi
halda áhuga fólks þegar veðrið er
svo slæmt?
„Það er alls
ekki. Ég vildi
kannski sjá meira
af almenningi í
íþróttahúsinu en
annars er alltaf
líf og fjör. Skíðin
eru auðvitað alla
daga á fullu og
svo eru inni-
æfingar allan
veturinn hjá
krökkunum."
Hvernig sérð
þú framtíð
íþróttalífsins
hérna á Olafs-
firði fyrir þér?
„Hún er mjög björt. Staðan okkar
núna í knattspyrnunni er mjög góð
og við vonumst til að halda svo til
sama hóp aftur á næsta ári. Skíðin,
þar er mjög gott starf og við
vonumst til að halda sömu þjálfur-
unum og sömu forystunni. A meðan
allir hérna í bæjarfélaginu eru svona
jákvæðir eins og þeir eru í dag
þurfum við engu að kvíða."
Telur þú að öll Jjessi uppbygging
í íþróttalífinu á Olafsfirði haldi
„Ég þori ekki að svara því og það
er ljóst að það eru aldrei allir sem
fara í íþróttirnar. Við erum nú
stundum að tala um það að okkur
finnist unglingadrykkja hér vera of
mikil en ég þori ekki að fara með
það hvort uppbygging íþróttalífsins
hafi þau áhrif að færri fari þá leiðina.
Hitt er samt víst að ekki skemmir
það fyrir að börn og unglingar
stundi íþróttir reglulega."
Æfum á grasi fjórum vikum fyrr
-segir Kristinn Hreinsson, gjaldkeri knattspyrnudeildar.
Leiftur Ólafsfirði hefur sýnt það í sumar að þeir eigi 1.
deildarsætið svo sannarlega skilið. Leiftur er eina
félagið á Norðurlandi sem
þetta árið á hð í 1. deild
karla en þetta 1200 manna
bæjarfélag hefur slegið bæi
eins og Akureyri út af
laginu. Kristinn Hreinsson,
gjaldkeri
knattspyrnudeildar
Leifturs, segir að allt
bæjarfélagið standi við
bakið á strákunum og án
stuðnings bæjarbúa væri árangurinn ekki þessu líkur.
„Við fáum mikinn stuðning frá bæjarfélögum hér á
Norðurlandi þar sem við erum eina liðið í 1. deild,"
sagði Kristinn sem virtist stoltur af sínum mönnum.
/,Það er samt stuðningur bæjarbúa sem skiptir hvað
naestu máli. Hérna snýst allt um knattspyrnu yfir
sumarmánuðina og strákarnir í liðinu eru svo sannarlega
hvattir áfram."
Leiftursliðið komst í upp í 1. deild árið 1988 en féll þá
beint niður aftur. í sumar voru þeir hins vegar
reynslunni ríkari og voru nær því að tryggja sér
Evrópusæti en að fara niður.
„Við erum með miklu sterkara lið núna en árið 1988,"
sagði Kristinn um Leiftursliðið. „Það er alltaf erfitt að fá
góða leikmenn hingað en núna höfum við tryggt okkur
góða stráka sem sumir eru alveg fluttir hingað á meðan
aðrir eru á Reykjavíkursvæðinu. Við komum líklega
alltaf til með að þurfa að æfa á tveimur stöðum en það
fylgir þessu og liðin úti á landi verða bara að venjast
því."
Það er ekki nóg að Ólafsfirðingar séu eina liðið af
Norðurlandi í 1. deildinni heldur eru þeir líka eina liðið
á landinu sem hefur upphitaðan grasvöll og segir
Kristinn að framkvæmdirnar hafi margborgað sig.
„Við spiluðum á grasvellinum 29. maí á móti KR en þá
var snjór enn yfir öllu hér. Þessar framkvæmdir muna
því að við getum byrjað að æfa á grasi fjórum vikum fyrr
en nágrannabæir okkar og völlurinn er tilbúinn þegar
tímabilið hefst."
Þarna er því svo sannarlega á ferðinni lið sem er á
mikilli siglingu og hver veit nema að upphitaður völlur,
nýtt íþróttahús og góður mannskapur skili
Ólafsfirðingum íslandsmeistaratitli á næstu árum.
SKINFAXI 19