Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.08.1995, Qupperneq 26

Skinfaxi - 01.08.1995, Qupperneq 26
Ungmennafélagar leggja sitt af mörkum við aá hreinsa lanclið Þátttakendur í umhverfisverkefni UMFI einbeittu sér mest að ströndum landsins en einnig var töluvert hreinsað meðfram ám og vötnum. Þörfin á þessu leyndi sér ekki því mikið af rusli fannst. Samkvæmt þeim gögnum sem borist hafa til UMFI var algengasta ruslið spýtur, pappaúrgangur og plast, t.d. slitrur af ýmsu plasti, byggingar- plasti, innkaupaplastpokum og fleiru. Einnig tíndust til plastílát undan matvælum, drykkjarvörum og hreinlætisvörum að ógleymdu frauðplasti. Þá var einnig mikið um ýmsan pappa undan neytenda- vörum, pappakassa og fleira. Einnig var töluvert af málmílátum eins og t.d undan drykkjarvörum og olíu. Vefnaðarvörur, bandspottar, hanskar, skósólar, skothylki, glerbrot, girni, gúmmídekk og sígarettustubbar voru líka algengir aðskotahlutir í fjöruborðinu. Af stærri hlutum var töluvert af netadræsum og fiskikössum. Stór málmstykki, hlutar af bílhræjum og bátsflökum fundust einnig en mismunandi var hvaða tök þátttakendur höfðu á að fjarlægja þau. Sums staðar var töluvert af rekavið sem var látinn vera í flestum tilfellum. Hvaðan kemur ruslið? Með þeim upplýsingum sem safnað hefur verið er hægt að reyna að rekja hvaðan ruslið kemur. Uppruna ruslsins má rekja til umgengni og neysluvenja okkar, annars vegar á landi og hins vegar á sjó. Auðvelt er að átta sig á uppruna sumra hluta t.d. netadræsa, veiðihylkja, veiðilína og sígarettustubba. Erfiðara er að greina uppruna plasts, sumt var greinilega byggingarplast og landbúnaðarplast en annað ógreini- legir plastbútar. Mikið af umbúðum undan matvælum fannst og er ljós- lega einhvers staðar pottur brotinn varðandi söfnun og förgun á þeim. Mögulegt er að þessu rusli hafi verið hent í sjó af skipum eða af landi. Sums staðar er ekki gengið nógu vel frá ruslahaugum og getur þá ruslið fokið út á sjó. Einnig vakna spurningar um umgengni ferðamanna þegar umbúðir undan matvælum finnast inni í landi t.d. meðfram vötnum og ám. Sumar fjörur eru hreinsaðar reglulega en ýmislegt drasl frá sjó skolast alltaf upp á land og er Steingrímsfjörður í Strandasýslu glöggt dæmi þess. Þar er ströndin hreinsuð reglulega af ungmenna- félögum en alltaf safnast þar drasl jafnóðum. Þótt móttaka fyrir rusl af skipum hafi batnað stórlega á undanförnum árum hér á landi þá virðist ekki allt rusl komast til skila. Þetta er ekki bara innlent vandamál því borið hefur á því að erlend skip hafi hent rusli í sjóinn innan íslenskrar lögsögu sem síðan skolast upp á land. Nú beina menn sjónum sínum að því hvernig hægt sé að koma í veg fyrir að þetta rusl lendi úti í náttúrunni. Þá vaknar sú spurning hvernig við með höndlum ruslið. Förum við með ruslið á réttu staðina? Með áfram- haldandi fræðslu og áróðri vekur það landsmenn til aukins skilnings á mikilvægi þess að koma í veg fyrir að rusl sé úti á víðavangi þannig að rétt meðferð úrgangs verði enn frekar í hávegum höfð en verið hefur hingað til. Rœktun lýðs Ungmennafélagshreyfingin hefur frá upphafi starfsemi sinnar sinnt umhverfismálum af miklu kappi. Markmiðið er að ná fram viðhorfs- breytingu meðal almennings til bættrar umgengni við náttúru lands- ins. Með því að leiðbeina börnum um að setja ruslið á rétta staði, fá þau til að tína rusl, jafnframt því að huga að hvaðan það kemur, t.d. sælgætisbréfin og umbúðir af drykkjarvörum, þá skilja þau betur mikilvægi ábyrgrar umgengni um náttúruna. Ræktun lýðs er það sem hér um ræðir sérstaklega fyrir kom- andi kynslóð sem er að vaxa úr grasi. Anna Margrét Jóhannesdóttir verkefnisstjóri umhverfisverkefriis Ungmennafélagið Hvöt fylltu nokkra vagna af rusli og drasli þegar félagar tóku til á ströndunum. 26 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.