Skinfaxi - 01.10.1995, Blaðsíða 8
Jólahugvekja
Verið óhrœddir, því sjá, ég boða yður mikinn
fógnuð sem veitast mun öllum lýðnum: Yður er
í dag frelsari fœddur sem er Kristur Drottinn í
borg Davíðs.(Lúk. 1:11-12)
Við göngum inní aðventuna. Við komum
fagnandi til kirkju, njótum kertaljósa og
fagurrar
tónlistar,
sem minnir
okkur á þá
hátíð sem í
vœndum er.
Frá og með
fyrsta
sunnudegi í
aðventu
megurti við
segja að
jólaundir-
búningurinn
hefjist.
Aðventan hefur sinn boðskap og sitt innihald,
sem við megum ekki gleyma. Konungurinn
kemur. Hann er inntakið og sú eilífð, sem
hann heitir okkur í samfélagi við sig. Við
kveikjum á fyrsta kerti aðventukransins,
spádómskertinu, sem minnir okkur á að
mörgum öldum fyrir fœðingu Jesú var spáð
fyrir um komu hans. I liuga Guðs hafði legið
áœtlun með þetta mannkyn í margar aldir.
Hann hafði áikveðið að senda son sinn í
heiminn í fyllingu tímans okkur til bjargar frá
þrœldómi, dauða og myrkri. I fyllingu tímans
gerðist það, þegar aðstœður voru þannig, að
boðskapur breiddist hratt út, þá kom liann
áœtlun sinni í framkvœmd og Jesús fœddist í
Betleliem.
Sjá, konungur þinn kemur til þín syngjum við á
aðventunni. „Sjá hann stendur við dyrnar og
knýr á“. Konungurinn er að koma, konungur
lífs okkar, konungur sem ci að sitja í hásœti lífs
okkar og verða hið ríkjandi afl í allri tilveru
okkar.
Konungurinn er að koma og því skulum við
einbeita okkur að því ncestu vikurnar að
undirbúa jólin með því hugarfari, að við séum
að fagna komu Jesú Krists, fagna því að liann
er frelsari okkar, sem leyst hefur okkur undan
þrœldómi, böli og myrkri. Hann er konungur
Ijóssins, sem ekkert getur skyggt á nema okkar
eigin blinda fyrir kœrleika hans.
Jól, án boðskaparins um Jesú Krist er
brothœttu fógnuður, sem getur hrunið við
minnsta hnjask. Slík jól skilja ekkert eftir,
nema tómleikann í hjarta okkar þegar allt er
um garð gengið.
Við höfum öll þörffyrir uppfyllingu
spádómanna, fyrirgefningu og kœrleika.
Þennan óumrœðanlega leyndardóm, sem Jesús
Kristur enn getur veitt okkur. Við hljótum að
fyllast tilgangsleysi og lómleika ef spádómarnir
um frelsið og friðinn verða ekki uppfylltir hjá
okkur á jólunum, þegar öll hin ytri umgjörð er
gerð fyrir uppfyllingu þeirra.
Tileinkum okkur því þennan sannleika á þessari
aðventu, þannig að hún verði innihaldsrík og
fyllt af gleði kœrleika hans. Ef við byggjum
undirbúning jólanna á traustum grunni og
einbeitum okkur að því að undirbúa komu
Krists nœr kœrleikurinn að festa dýpri rcetur í
hjarta okkar og tilgangur jólanna nœr takmarki
sínu.
Enn er tími til stefiiu. Notum tímann því fram
að jólum til að undirbúa huga okkar og íhuga
hvern tilgang fœðing frelsara okkar Jesú Krists
hefur fyrir okkur hvert og eitt í okkar daglega
lífi. Bjóðum konunginn velkominn inní líf
okkar. „Sjá hann stendur við dyrnar og knýr
á“.
Guð gefi þér og þínum gleðileg jól og
blessunaríkt nýtt ár
Sigríður Guðmundsdóttir
sóknarprestur Hvanneyrarprestakalli
8 SKINFAXI