Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.10.1995, Blaðsíða 27

Skinfaxi - 01.10.1995, Blaðsíða 27
kvennalandsliðsins hérna á íslandi var ég að spila í 3. deildinni þarna úti. Seinna árið var liðið í botnbaráttunni í 2. deild og þá fékk ég ekki að spila eins mikið og árið áður. Ég hef að vísu ekki spilað hér á Islandi neitt að ráði síðan 1989 og á þeim tíma hafa verið miklar breytingar með tilkomu sterkari leikmanna. Nú er loksins farið að taka yngriflokka kvenna eins alvarlega og yngriflokka karla en ég tel að það komi til með að skila sér í miklu sterkari einstaklingum í framtíðinni. Ég var t.d. í körfu frá tólf ára aldri og þá höfðum við aldrei neinn þjálfara og gerðum lítið sem ekkert á æfingum nema að leika okkur. Námið í útlöndum Voruð þið þá bæði í námi úti? Anna: Já, við vorum bæði í íþróttaháskóla í Ungverja- landi og fórurn svo til Noregs og kláruðum þar. Við vorum tvö ár í hvoru landi. Við fórum að vísu heim í eitt ár þegar hann lék með Val en fórum svo aftur út til Noregs. Hvað eru þið þá menntuð í dag? Anna: Iþróttafræðingar. Tómas: Ég tók einu ári minna en hún og er íþrótta- kennari í dag. Þegar þið voruð úti starfaði Anna þá ekki við undirbúning Olympíu- leikanna í Lillehammer? Anna: Iþróttaháskólinn í Osló var í samstarfs- verkefni við undirbúnings- nefndina og ég sótti um að fá að vera starfsmaður. Ég var síðan í undirbúnings- vinnu í tvö ár á nám- skeiðum og prufumótum og öðru þess háttar. Síðan var ég manneskja Ólympíu- nefndar fyrir íslenska landsliðið og var tengiliður á milli landsliðsins og mótshaldara. Landsmótið Nú verður Landsmótið haldið hérna árið 1997, er undirbúningur hafinn fyrir mótið? Anna: Landsmótsnefnd er búin að starfa í, að ég held, rúmt ár og hún hefur haldið fjölmarga fundi. Þeir hafa einmitt leitað til mín vegna þeirrar reynslu sem ég fékk í Lillehammer. Þetta er samt ennþá á byrjunarstigi og aðallega bara Landsmótsnefndin sem starfar. Getur þú notað þekkingu þína frá Lillehammer fyrir Landsmótið? Anna: Það er hægt að yfirfæra nánast allt. Norðmenn eru alveg rosalega skipulagðir og það liggur við að maður segi leiðinlega skipulagðir. En Ólympíuleikarnir sem þeir héldu eru einu þeir best skipulögðu sem haldnir hafa verið og þeir voru tilbúnir með allt löngu áður en leikarnir hófust, Ólympíuþorpið sjálft var t.d. tilbúið hálfu ári fyrir Ólympíuleikana og það hefur aldrei gerst áður. Á þessum sex mánuðum gátu þeir prófað allt Ólympíuþorpið í bak og fyrir og leiðrétt alla galla tímanlega. Þeir voru búnir að hugsa fyrir öllum smáatriðum og það eru einmitt smáatriðin sem gera svona mót góð, hvort sem það eru Ólympíuleikar, Landsmót eða héraðsmót. Fyrir Landsmótið þarf að fara yfir alla þessa sömu þætti þótt að um miklu minna mót sé að ræða. Er erfitt að skipuleggja svona mót? Anna: Ég er kannski ekki alveg manneskjan til að svara fyrir skipulagningu Landsmóts þar sem ég hef ekki verið mikið í þessu sjálf. Ég held að það hafi verið ábótavant að fyrri mótshaldarar hafi gert skýrslu sem gæti auðveldað allan undirbúning svo mikið. En mér skilst að HSK hafi hins vegar skilað þessu nokkuð vel af sér og svo fylgdus, þeir sem undirbúa Landsmótið mjög vel með öllu sem fram fór á Laugavatni. Ég held að samvinnan hafi verið mjög góð þarna á milli. Myndi það auðvelda undirbúning á svona stóru móti að hafa það alltaf á sama stað? Anna: Það má kannski segja það en svona mót á að geta verið auglýsing og lyftistöng fyrir héraðið sem það er haldið í. Þetta er landsmót og ungmennafélögin eru á lands- vísu og því nauðsynlegt að færa mótið til og frá. Ef að vel er skipulagt og öllum upplýs- ingum haldið vel til haga þá eiga ekki að vera nein vandræði að skipuleggja svona mót. Það þarf ekki að finna upp hjólið í hvert skipti. Þetta fer líka mikið eftir áhuga fólksins sem starfar við þetta og ef allir leggja sitt af mörkunum og sýna mótinu áhuga á þetta ekki að vera neitt mál. Er Landsmótið orðið gamaldags? Anna: Landsmótið þarf að þróast eins og allt annað og auðvitað er allt annað að skipuleggja mót fyrir áhorf- endur í dag en það var fyrir fimmtíu árum síðan. En samt finnst mér ákveðinn blær yfir Landsmótinu sem má ekki týnast og þetta er allt öðruvísi mót en öll önnur mót. Mér finnst allt í lagi að breyta íþróttagreinunum eftir áhuga í þjóðfélaginu, þá á ég við að henda út þeim íþróttum sem eru í lægð og taka inn vinsælli íþróttir. Mér finnst það líka góð hugmynd, eins og stefnt er að hér, að gera mótið að miklu rneira en bara íþróttamóti og reyna að vekja athygli á héraðinu í heild sinni. Þá er verið að tala um að hafa t.d. myntsýningu, landbúnaðarsýningu og annað þess háttar á meðan á mótinu stendur. Það er einmitt þetta sem Norðmenn gerðu í Lillehammer þegar þeir auglýstu allt sem landið hefur uppá að bjóða á meðan á leikunum stóð. Þetta má svo auðveldlega gera hérna í héraðinu. Nú fer greinilega allt árið hjá ykkur í íþróttir, hafið þið tíma fyrir einhver önnur áhugamál? Anna: Við skiptum deginum mikið niður á milli okkar og hittumst oftast bara í dyragættinni. Þetta er samt mikið breytt frá því í fyrra þegar hann var bæði að kenna allan daginn og svo „Islendingar horfa ekki nógu langt fram á við og halda að hlutirnir gerist af sjálfum sér/6 SKINFAXI 27

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.