Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.10.1995, Blaðsíða 17

Skinfaxi - 01.10.1995, Blaðsíða 17
Umhverfið í okkar höndum Málþing Markmið umhverfisátaks UMFÍ var enn og aftur að efla vitund almennings á ábyrgð sérhvers manns við umhverfi sitt. Hreinsunarátakið hófst 5. júní s.l. og tóku um 1000 manns þátt í verkefninu með því að hreinsa fjörur og árbakka. A lokamálþingi hreinsunarátaksins voru niðurstöður verkefnisins kynntar og þar fór Anna Margrét, verkefnisstjóri, meðal annars yfir hvaða rusli bar mest á. Langmest var um plastúrgang eða 42% en iðnaðarúrgangur var 20%, pappadrasl 14%, málmílát 10% og aðrir hlutir 14%. Ruslið sem féll í flokkinn aðrir hlutir var t.d. rafhlöður, gúmmídekk, dömubindi og annað þessháttar. Anna Margrét tók það skýrt fram að hlutfalls- skipting fór eftir stykkjatölu og segja prósentuhlutföll því ekki til um umfang hlutanna sem fundust. A með- fylgjandi myndum sem teknar voru á málþinginu má sjá þau Guðmund Bjarnason, umhverfisráðherra, Onnu Margréti, verkefnisstjóra og Olaf Orn Haraldsson, formann umhverfisnefndar Alþingis. A neðri myndinni er fyrrum formaður UMFÍ, Pálmi Gíslason, en hann var fundarstjóri á þinginu. Rafhlöður innihalda hættulega málma. íslenska þjóðin hefur ekki verið dugleg við að skila rafhlöðum til móttökustöðva og á síðasta ári bárust aðeins um 12% raflrlaðna til förgunar. Með því að endurvinna eittt tonn af pappír er hægt að spara allt að 25.000 lítra af drykkjarvatni. Talið er að um eða yfir 20.000 manns deyi á hverjum sólarhring vegna neyslu á menguðu vatni eða hreinlega vegna vatns- skorts. Plast eyðist mjög seint í náttúrunni og við brennslu myndast eitraðar gufur sem menga andrúmsloft okkar. Islendingar nota mikið af hreinu vatni og nýjustu tölur segja að hver okkar notar meira en 200 lítra af köldu vatni daglega. Reynsla annars staðar á Norðurlöndum hefur sýnt að 30-50% af heildarmagni heimilisúrgangs sé lífrænn úrgangur sem má jarðsetja. Það eru engin 100% umhverfisvæn hreinsi- efni aða sápur til, aðeins misskaðleg. Vegna tæringar í kaldavatnslögnum í Reykjavík berast árlega með skólpi yfir 4000 kg af sínki í sjóinn, auk annarra málma. Eitt prósent minnkun á ósonlaginu er talin valda fjögur prósent aukningu húðkrabbameins. Iðnaðarmengun í andrúmsloftinu hefur líklega þegar orsakað um hálfrar gráðu hlýnun á jörðinni síðustu 100 árin. Fyrirtæki í timburiðnaði í Indónesíu greiða gjald fyrir tré sem þau fella, en fá það endurgreitt ef þau planta nýjum trám í staðinn. SKINFAXI 17

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.