Skinfaxi - 01.10.1995, Qupperneq 11
Við höfum ekki
fotum okkar forr
Umhverfisrádherra, Guðmundur
Bjarnason, var meðají gesta á 39.
sambandsþingi UMFI. Gudmundur
stihlabi á stóru í umhverfismálum
og hafbi medal annars þetta að
segja.
Það er mikilvægt fyrir okkur öll að vernda umhverfið okkar og við
teljum það, að minnsta kosti á hátíðarstundum, að Island sé hreint
land og fagurt með tært loft og ómengað vatn. Þannig í það minnsta
getur það verið ef við gætum okkar að umgangast náttúruauðlindir
með því hugarfari að svo megi vera áfram. Það er hins vegar líka
afar auðvelt að spilla þessu umhverfi, það þarf ekki mikið til og við
vitum það að kannski er þessi hugsun um umhverfið, umhverfismál,
ekki mjög þróuð hjá okkur íslendingum. Ég held að hún sé meira
þróuð hjá nágrannalöndum okkar sumum og afhverju? Vegna
þess að þar hafa þeir þurft að ganga í gegnurn erfiðari feril þar
sem þeir hafa orðið fyrir áföllum. Þeir hafa orðið fyrir þeim
áhrifum að byrja á að spilla umhverfinu og þurfa svo að laga
það. Við skulum reyna að byrja ekki á því að spilla því til þess
að læra dýrkeypta lexíu, við skulum reyna að vernda það og
þar sem að hnökrar eru skulum við reyna að bregðast við hið
fyrsta. Það veit ég að verkefni ungmennahreyfingarinnar í
sumar átti drýgstan þátt í að vekja fólk til umhugsunar um
þetta. Ég verð að vitna um það að einmitt á kynningar-
fundinum á Suðurnesjum, þar sem sýnd var fróðleg
myndasýning um ástandið í fjörunum þar í kring af
umhverfisfulltrúa sveitarfélagsins en hún vakti mig til
umhugsunar að það væri svo sannarlega tímabært að taka til
hendinni og að ástandið væri ekki alveg eins gott og við
viljum stundum halda.
Umhverfisvandamál okkar nú eru þó ekki þessi
hefðbundnu mengunarmál, þó að við þurfum að gæta okkar
þar, það er fremur uppblásturinn og gróðureyðingin og þar er
sannarlega verið að taka á málum. Ég veit að Ungmenna-
félagið hefur gert það í gegnum árin með gróðursetningu og
ýmislegum öðrum verkefnum á því sviði. Landbúnaði okkar
er oft kennt um að vera þar aðal skaðvaldur, auðvitað er hann
það sjálfsagt að hluta til en ég hygg þó að miklu fremur megi
kenna um almennri búsetu í landinu í gegnum aldirnar - það
er að byggðin hefur krafist þess að við gengjum á okkar
auðlindir að einhverju leyti og við höfum ekki gætt okkar.
Bæði byggingarefni og eldiviður hefur verið tekinn úr skóg-
um, kjarri og jarðvegi, við höfum ekki kunnað fótum okkar
forráð og fyrir þetta þurfum við að bæta sem ég veit að Ung-
mennafélagið hefur verið þátttakandi í. Ég leyfi mér að vænta
áframhaldandi samstarfs og góðs stuðnings við ykkar
verkefni.
Þeir sem vilja nýta sér Heimilisbanka
Búnadarbankans geta sinnt öllum
almennum bankavioskiptum hvenær
sólarhringsins sem er
frá sirini eigin tölvu.
Viðskiptavinir Heimilisbankans fá aó auki;
fjármálahugbúnaðinn Hómer sem er
nauðsynlegur til að fullnýta þá möguleika
sem bjóðcist með beintengingunni.
Búnaðarbankinn er eini bankinn sem
býður siíkan fjármálahugbúnað,
Nánari uppiýsingar færdu í síma: 525 6344.
BÚNAÐARBANKIÍSLANDS
TRAVSTURBANKl -
Útíbúið 1 Borgamea
ý/ Slmi: 437 2111 M