Skinfaxi - 01.10.1995, Qupperneq 12
Þetta gerðist á þmginii
/
Fjölnismenn úr Grafarvogi sóttust
eftir því að fá að halda unglinga-
landsmót í Grafarvogi á næsta ári.
Unglingalandsmótið var haldið á
Blönduósi í sumar og fannst þingheimi að
ekki væri ástæða til að halda mótið tvö ár
í röð og hafnaði þar með tillögu
Fjölnismanna.
Þórir Jónsson var endurkjörinn
formaður UMFÍ en ekkert
mótframboð kom um sæti hans.
Þrír nýir menn voru kjörnir í stjórn og
voru það þeir Björn B. Jónsson, Sigurður
Aðalsteinsson og Páll Pétursson.
Akveðið var að ræstingar- og
þjónustugjald skyldi lagt á
gistiaðstöðu Ungmennafélags
Islands. Hingað til hafa félagar og
sambönd fengið að gista' frítt í
Fellsmúlanum en þingið samþykkti að
150 krónur yrðu innheimtar í framtíðinni
fyrir gistingu hjá UMFÍ.
S
kveðið var að keppt yrði í 7
manna liðum í knattspyrnu á
næstu landsmótum UMFI.
Reynst hefur erfitt að fá knattspyrnufélög
til að senda aðallið sín á lansmótin og var
því ákveðið að reyna nýtt og breytt
fyrirkomulag.
Landsmótsnefnd UMSB lýsti því yfir
að eftirtaldar greinar yrðu
keppnisgreinar á 22. Landsmóti
UMFÍ í Borgarnesi: Starfsgreinar, blak
karla, borðtennis karla og kvenna, bridds,
handknattleikur kvenna, fimleikar
kvenna, golf, hestaíþróttir, knattspyrna
karla og kvenna, körfuknattleikur karla,
skák og sund karla og kvenna.
Samþykkt var að fjórir varamenn
yrðu í bridds á landsmótum UMFÍ.
Hingað til hafa aðeins verið 2
varamenn.
ingið samþykkti að þátttökugjald
yrði að hámarki 3500 krónur á
hvern þátttakanda á 22. landsmóti
UMFÍ.
S
rsgjald sambandsaðila UMFI fyrir
árin 1996 og 1997 var ákveðið að
yrði 17 krónur fyrir hvern
skattskyldan félaga.
olís
OLÍUVERZLUN
ÍSLANDS HF
KNATTSPYRNUFÉLÖ6 ATHUGIÐ!
Breiðablik í Kopavogi býður flóðlýstan og upphitaðan gerfigrasvöll til aefinga og leikja.
Leigjum hálfan og heilan völl.
Nýtt leigutímabil hefst 15. janúar.
Allar nánari upplýsingar í síma 5B4 1990.
tMMGJARnT VERÐ HJRIR TOPPflÐSTÖÐU.
12 SKINFAXI