Skinfaxi - 01.10.1995, Blaðsíða 15
Ahorfendur biðj
að kyssa bolt
Hann er um tveir metrar á hœb og þad
lá vid að hann rœki sig í Ijósin í loftinu
þegar blaðamaður heimsótti hann á
heimili hans í Borgarnesi. Alexander
Ermolinskij er eini Rássinn í DHL-
deildinni og hefur leikið mjög vel fyrir
Borgarnesliðið s.l. þrjú ár. Þrátt fyrir
að vera öflugur leikmaður vakti hann
kannski hvað mesta athygli í
úrslitakeppninni í fyrra þegar liann
kyssti körfuboltann áður en hann sendi
hann ofan í körfu IR-inga. En af
hverju ákvað hann að kyssa boltann?
„Ég veit nú ekki alveg af hverju ég
gerði þetta en þegar ég fékk knöttinn í
hendurnar var ég öruggur um að ég
myndi hitta og fannst því rétt að smella
einurn kossi á boltann."
Er þetta eitthvað sem þú liefur gert
áður eða var þetta fyrsti kossinn?
„Ég hef stundum gert þetta á
æfingum en aldrei áður í leik."
Nú ert þú búinn að Ieika á Islandi í
þrjú ár. Eru liðin sterkari en þegar þú
fyrst komst?
„Körfuboltinn er aðeins betri í dag en
leikfyrirkomulagið er verra. Fyrst þegar
ég kom voru tíu lið í úrvalsdeild og þá
voru allir leikirnir erfiðari. Núna eru tólf
lið í deildinni og það veldur því að sum
liðin stilla upp ungum og óreyndum
leikmönnum sem oftast eru ekki tilbúnir
í slaginn í úrvalsdeildinni."
Er nauðsynlegt fyrir íslenskan
körfubolta að hafa erlendan leikmann
innanborðs?
„Ég held að það sé mjög nauðsynlegt
því það gerir leikinn skemmtilegri fyrir
áhorfandann. Mjög fáir íslenskir leik-
menn geta t.d. troðið og með því að fá
einn erlendan leikmann eykst líka
breiddin í deildinni. Einnig er gott fyrir
krakka í yngri flokkunum að geta fylgst
með fjölhæfum leikmönnum utan úr
heimi."
Eru íslensku leikmennirnir að
nálgast þá erlendu hvað varðar styrk-
leika og getu?
„Það eru ekki margir í þeim gæða-
flokki en samt eru nokkrir sem geta
leikið jafnvel og þeir erlendu. Það
vantar fleiri sterka íslenska stráka í liðin
en ég hef trú á að eftir nokkur ár fari að
sjást jafnari leikmenn í liðunum."
Hvaða lið koma til með að vera í
toppbaráttunni í vetur?
„Það verða þessi sömu og vanalega;
Njarðvík, Keflavík og Grindavík, en samt
held ég að Haukar eigi eftir að koma
hvað sterkastir til leiks þegar líða tekur á
veturinn - þeir eru með rnjög sterkt lið.
ÍR voru mjög góðir í fyrra en hafa ekki
náð að sýna sama leikinn í upphafi tíma-
bilsins."
Hversu langt telur þú að Borgarnes
fari í DHL-deildinni í ár?
„Stefnan er sett á úrslitakeppnina og
svo kemur bara í ljós hversu langt við
komumst þar. Liðið saknar Hennings og
ég held að við séum ekki að spila jafn
góðan bolta í dag eins og við gerðum í
fyrra."
Nú hefur þú verið hér í Borgarnesi
s. l. þrjú ár, ert þú ánægður hérna?
„Mér líkar mjög vel á Islandi og núna
eru konan mín og börn hérna með mér
svo ég sé ekki fyrir mér að ég fari neitt
annað á næstunni. Strákurinn minn talar
t. d. alveg orðið íslensku."
Hvernig gengur þér að læra
íslenskuna?
„Ég hef kannski ekki lagt nógu mikla
áherslu á að læra að tala íslensku en ég
skil orðið rnikið og það hjálpar til."
Hvernig er staða körfuboltans í
Rússlandi í dag?
„Hún er ekki eins sterk og þegar öll
Sovétríkin höfðu eina deild. I dag er
nokkuð um góða einstaklinga en engin
sterk lið og frekar slök deild. Það eru
miklir peningar í deildinni núna og ég
held að eftir nokkur ár eigi Rússland
eftir að styrkjast mikið að nýju."
A munurinn á Evrópuboltanum og
NBA eftir að minnka í framtíðinni?
„Ég held að það sé ekki spurning og
það hefur sýnt sig nú þegar á opna
mótinu í London þar sem Houston
Rockets áttu í basli með bestu lið
Evrópu. Hitt er svo annað mál að allir
peningarnir eru í NBA og þangað fara
allir bestu leikmenn heims - það er bara
spurning hversu margir þeirra verða frá
Evrópu."
Að lokum, fáum við að sjá annan
koss í beinni útsendingu í sjónvarpinu
í vetur?
„Ég veit það ekki. Þegar ég spila núna
heyri ég áhorfendur kalla á mig og biðja
mig að kyssa boltann en andrúmsloftið
yrði að vera alveg sérstakt fyrir mig til
að endurtaka þann leik."
SKINFAXl 15