Skinfaxi - 01.10.1995, Side 22
Með tilkomu barnabílstólanna frá VIS
hafa orðið tímamót í umrœðunni um
öryggi barna í bílum. Verndun barna sem
farþegar í bílum er sérstakt svið. Börn
geta ekki notað bílbelti fullorðinna. Stœrð
barnanna, líkamsbygging, álagsþol og
hegðun eru allt þœttir sem hafa ber í liuga
er aftan á bifreið er venjulega enginn
búnaður sem heldur stólnum kyrrum.
Vernda þarf höfuð og háls
Börn eru 5% þeirra farþega sem látast
eða slasast í umferðarslysum og alls eru
um 5000 þeirra farþega, sem láta lífið í
umferðarslysum á hverju ári í heiminum,
börn.
Þegar grannt er skoðað er ljóst að
meiðsli barna, sem farþega í bílum, eru
með öðru móti en tíðkast meðal
fullorðinna. A sama tírna og 30-40%
fullorðinna sem slasast hljóta höfuð-
meiðsl hljóta rúmlega 80% ungra barna
höfuðmeiðsl eða skaddast á andliti.
Verndun höfuðs og háls skiptir því
meginmáli í þessu sambandi. I árekstra-
prófunum má sjá að hröðun á höfði og
spenna á hálsi er lítil þar sem í hlut eiga
barnabílstólar sem snúa baki í
akstursstefnu. í Svíþjóð, þar sem notkun
bakvísandi barnabílstóla er rnjög mikil,
verða fá dauðsföll eða alvarleg slys á
börnum upp að þriggja ára aldri og
rannsóknir sýna að þessi aldurshópur er
best vernduðu bifreiðafarþegarnir.
Rannsóknir sýna jafnframt að bakvísandi
stólar vernda barnið betur í hliðar-
árekstrum en slíkir árekstrar valda
alvarlegustu áverkunum. Við hliðar-
árekstur er um að ræða hreyfingu fram á
við um leið og ekið er inn í hlið
bifreiðarinnar. í framvísandi stól hendist
höfuð barnsins fram í stað þess að
þrýstast inn í stólinn ef barnið situr í
bakvísandi stól.
barn
STOLL
þegar barnabílstólar
Á Norðurlöndum, gagnstætt því sem
hér á landi hefur tíðkast, hefur lengi
viðgengist að vernda börn upp að
þriggja ára aldri með því að láta þau sitja
í barnabílstólum sem snúa baki í
akstursstefnu. Notkun slíkra stóla er
algeng meðal margra þjóða þegar í hlut
eiga börn á aldrinum 0-6 mánaða.
Norðurlandabúar eru þó nánast einir um
eru hannaðir.
að nota bakvísandi stóla fyrir eldri börn.
Víðast hvar í heiminum er fyrirkomulag
barnabílstóla fyrir nýbura þannig að þeir
eru festir niður með bílbeltunum einum
og styðjast hvorki við mælaborðið né
sætið fyrir framan. Við árekstur þar sem
bílar rekast saman að framan eru
bílbeltin og stólgrindin það eina sem á að
verja barnið fyrir meiðslum. Þegar ekið
Bakvísandi stólar öruggastir
Nú eru liðnir 18 mánuðir síðan
Vátryggingafélag Islands bauð viðskipta-
mönnum sínum upp á að leigja barna-
bílstóla frá félaginu á kostnaðarverði. Á
þessum tíma hafa verið leigðir út liðlega
3000 stólar og virðist ekkert lát á eftir-
spurninni. I upphafi skapaðist mikil
umræða í þjóðfélaginu um gildi barna-
bílstóla og þá einkanlega um það hvort
bakvísandi stólar væru öruggari en aðrir
22 SKINFAXI