Skinfaxi - 01.10.1995, Page 28
Er einhver tími fyrir
önnur áhugamál?
Tómas: Það er eitthvað
voðalega lítið.
Anna: Við erum auðvitað
heppin að þetta eru
áhugamál okkar og ég held
að flestir reyni nú að finna
sér vinnu sem sá hinn sami
hefur áhuga á. Tómas
hefur haft mikinn áhuga á
golfi en ekki getað sinnt
því sem skyldi. Eg vinn
allar helgar á sumrin og
hann vinnur allar helgar á
veturna svo þá erum við
alltaf annað heima með
börnin.
Tómas: Tíminn sem fer ekki í
æfingar fer í krakkana og það
28 SKINFAXl
Onnur
áhugamál
að þjálfa meistaraflokk sem er að míriu mati full vinna.
Tómas: Ég var að kenna leikfimi í skólanum en ákvað í vetur að
sleppa því og tók að mér þjálfun nokkurra yngri flokka með
meistaraflokknum. Núna skiptist þetta þannig að Anna Björk er
á skrifstofunni á morgnana...
Anna: Já, við skiptumst á að vera á skrifstofunum. Stundum er
ég á skrifstofu UMSB og stundum er hann á
körfuboltaskrifstofunni. Svo erum við bæði að þjálfa og
skiptumst einnig á að vera heima hjá krökkunum þá. Við
leggjum mikla áherslu á að vera heima með krökkunum og við
erum bæði mun meira heima núna en í fyrra. Við lærðum að
meta það að vera heima hjá krökkunum þegar við vorum í
Noreg en ég var heima hjá stráknum allt fyrra árið og hann var
heima allt seinna árið. Við erum kannski frábrugðin þessu
venjulega fólki sem vinnur frá níu til fimm. Það kemur t.d. fyrir
að hann er að labba með börnin á „ókristilegum" vinnutíma
niður í bæ og þá kemur fólk til hans og spyr hvort hann sé ekkert
að vinna - hvað ertu „bara" að þjálfa?
Tómas: Ég held að margir líti þannig á að þjálfunin sé bara mitt
tómstundagaman og að ég ætti að vera að vinna eitthvað annað
með því. Það gengur stundum svo
langt að mér fer að finnast þetta
sjálfum en við ákváðum að
hafa fyrirkomulagið svona
og við erum því meira heima
fyrir hádegi en vinnum svo á
kvöldin.
Anna: Það gerir sér enginn
grein fyrir öllum
undirbúningnum sem fer í
það að þjálfa. Hann er t.d
alveg í öðrum heimi fyrir og
eftir leiki þar sem það er svo
margt sem hann þarf að
hugsa um. Fyrir hverja eina
æfingu má alveg reikna
einn til tvo tíma í
undirbúning og frágang.
Við vinnum alveg
jafnmikið og aðrir en
finnum alveg að viðhorfið
hjá sumum er að við séum
ekkert að gera og fáum bara
borgað fyrir það.
má eiginlega segja að þeir séu aðaláhugamálið núna.
Hefur fjölskyldan þá ekkert farið í sumarfrí lengi?
Anna: Við fórum að vísu í viku í sumarbústað í sumar. Maður
kann eiginlega ekki orðið að taka sumarfrí þar sem á
skólaárunum vann maður öll sumur til að safna fyrir vetrinum
og í íþróttunum er oft á tíðum aðalvertíðin á sumrin og því ekki
tími til að skipuleggja neitt langt sumarfrí. Síðan getum við ekki
tekið frí á veturna þar sem tveir leikir eru í viku hverri í
körfunni.
Koma stundum dagar þar sem þið eruð búin að fá ykkur
fullsödd af íþróttum?
Anna: Já, já.
Tómas: Það versta er þessi óreglulegi vinnutími sem fer í þjálfun
og undirbúning. Stundum hugsar maður með sér að vera bara í
níu til fimm vinnu og geta komið heim og slappað af. Hjá okkur
snýst allt um íþróttirnar og jafnvel þegar maður er að vinna
heimilistörfin er maður að hugsa um leikinn á morgun.
Anna: Það er ekki hægt að segja að við tökum
ekki vinnuna með okkur heim, við erum
alltaf í rauninni í vinnunni frá átta á