Skinfaxi - 01.10.1995, Page 31
Við óskum lesendum Skinfaxa
gieðilegra jóla
Bæjarskr. Borgarnesi
Borgarbraut 11
Seðlabanki íslands
Kalkofnsvegi 1
Sparisjóður Mvrarsvshi
Borgarbraut 14
Bæjarskr. Mosfellsbæjar
Hlégarði, Háholti 2
Mjólkursamlag KS
v/Skagfirðingabúð
Mjólkurbú Flóamanna
Austurvegi, Selfossi
Aámsflokkar Beykjavíkur
Fríkirkjuvegi
Samtök iðnaðarins
Hailveigarstíg 1
Tollvörugeymslan
Héðinsgötu 1-3
Vestmannaeyjabær
Báðhúsinu
G j aldker inn
Gjaldkerastarfið er í mörgum
tilfellum það umfangsmesta af
störfum stjórnarmanna. Því fylgir
líka mikil ábyrgð. Hér á eftir fara
nokkur grundvallaratriði sem
gjaldkera ber að hafa í heiðri.
1. Kynntu þér búið sem þú tekur
við. Þetta á bæði við um eignir þess
og skuldir.
2. Geymdu peningalegar eignir í
banka.
3. Notaðu tékkareikning fyrir það
fé sem notað er í daglegum rekstri.
4. Greiddu allt með ávísunum og
fáðu kvittun.
5. Stílaðu ávísanir ávallt á
viðtakanda, ekki handhafa.
6. Fjárhæð ávísunar skal ávallt
vera sú sama og fram kemur á
kvittun.
7. Skrifaðu númer ávísunar neðst
á kvittunina og fjárhæð á svuntuna í
ávísanaheftinu, ásamt viðeigandi
skýringu.
8. Settu fylgiskjölin í möppu í
sömu röð og ávísanirnar sem út
voru gefnar.
9. Leggðu alla innkomu inn í
bankann óskerta. Ekki greiða
reikninga af innkomu t.d.
aðgangseyri, áður en lagt er inn.
10. Skrifaðu á innborgunarkvittun
skýringu hvaðan peningarnir koma,
t.d. aðgangseyrir á dansleik 17. júní.
Ef þessi boðorð eru í heiðri höfð má
segja að gjaldkeri sé með sitt á
hreinu, hvað vinnubrögð varðar.
Ekki er sjálfgefið að gjaldkeri færi
bókhaldið sjálfur og gangi frá
ársreikningi. Það getur verið ágætt
að fá til þess bókhaldsfróða menn
eða endurskoðendur, það tryggir
betra eftirlit. Það er líka aðgengilegt
hverjum sem er að færa bókhaldið
ef þessi boðorð eru virt, en ef svo er
ekki getur það reynst þrautin
þyngri.
Frekari upplýsingar er að finna í
námsefni Félagsmálaskólans fyrir
gjaldkera.
Upplýsingar veittar í
þjónustumiðstöð UMFÍ í síma: 568-
2929
SKINFAXl 31