Skinfaxi - 01.10.1995, Blaðsíða 43
Lengjan, Lengjan, lukkusprengjan er nýr
tippleikur sem íslenska þjóðin virdist svo
sannarlega kunna að meta. A Lengjunni
getur þú tippað alla daga vikunnar og lagt
undir þá upphœð sem þú vilt. En hvernig
fer leikurinn fram? Við hjá Skinfaxa
fengum Harald Haraldsson hjá Islenskum
getraunum til að frœða okkur um jtennan
nýja leik.
„Þetta er allt að 60 leika seðill sem við
setjum á markaðinn í hverri viku.
Þátttakandinn velur lágmark þrjá leiki og
mest sex sem hann tippar á og við hvern
leik eru útreiknaðir stuðlar sem segja til
um styrkleika liðanna. Eftir því sem
stuðullinn er lægri eru líkurnar meiri á
að liðið sigri og þar af leiðandi verður
vinningurinn lægri. Lágmark þrír leikir
eru valdir og út úr þeim reiknast
heildarstuðull sem er margfeldi þeirra
þriggja leikja sem valdir eru og ef
þátttakandi hefur þá alla rétta marg-
faldast sá stuðull við þá upphæð sem
lögð er undir."
Nú er hægt að setja saman seðil
sem gæfi allt að þrjú þúsund mill-
jónir í vinning ef tippað væri á öll
óvæntustu úrslitin. Er eitthvert
hámark sem þið borgið út?
„Við erum með reglur hvað
varðar þetta og þær eru að
hámarksstuðull getur aldrei
orðið hærri en 999 og
hámarksvinningur getur
ekki farið yfir 500 þúsund.
Þannig höfum við stillt þessu upp í
byrjun en aftur á móti er alveg inní
myndinni að breyta þessu og gefa fólki
möguleika á hærri vinningum þegar
meiri reynsla verður komin á Lengjuna."
Hvenær var ákveðið að fara af stað
með Lengjuna hérna á Islandi?
„Lengjan er búin að vera í bígerð
síðan árið 1988 en hingað til hefur staðið
á tölvukerfinu hjá Islenskri getspá að
koma inn með þennan leik. Eftir að
leyfið fékkst var ætlunin að fara af stað
með leikinn fyrir HM í handbolta en það
náðist ekki að vinna það í tæka tíð."
Eru til fyrirmyndir fyrir þessum leik
í Evrópu?
„Það eru til svipaðir leikir í flestum
löndum Evrópu en ég held að Svíar hafi
byrjað á þessum leik í kringum 1986."
Hvernig hefur íslenska þjóðin tekið
Lengjunni?
„Við vitum
af því að við
höfum náð
mjög vel til
unga
fólksins og það er hópurinn sem við
vorum að vonast til að fá inn. Flestir
sem voru í enska boltanum og tippuðu á
13 leiki voru á aldrinum fjörutíu og upp.
Það var engin endurnýjun orðin í hinum
leiknum og þess vegna erum við að vona
að þessi unga kynslóð komi alveg ný inn
og læri að tippa og fari þá jafnvel að
stunda hinn leikinn ásamt Lengjunni."
Tekur Lengjan tippara frá gamla
kerfinu?
„Það er svona um 15% rýrnun en við
bjuggumst alveg við því. Þetta á svo
eftir að jafna sig í framtíðinni og vonandi
skilar þetta okkur bara fleiri tippurum."
Hvernig ákveðið þið stuðlana á
leikjunum?
„Fyrir fótboltann notum við töflur
sem við fengum í Danmörku en höfum
hins vegar þurft að búa til okkar eigin
töflur fyrir handboltann og körfuna.
Stuðlarnir eru ekkert annað en meðaltal
úrslita úr einhverjum 2000 leikjum sem
skráðir voru inn í tölvu."
Hvernig tippa íslensku tippararnir,
eru þeir að taka áhættu og reyna að fá
hærri vinninga eða tippa þeir á öruggu
leikina?
„Þeir eru að gera hvort tveggja. Það
hefur samt komið okkur töluvert á óvart
hversu margir eru að velja sex leiki og
kannski sex leiki með óvæntum
úrslitum."
Hvað eru vinsælustu íþróttirnar sem
tippað er á?
„Það eru langflestu leikirnir á
seðlinum fótboltaleikir og því mest
tippað á knattspyrnu. Islenski
körfuboltinn hefur líka verið mjög
vinsæll."
Ef úrslit leikja eru kannski frekar
eftir bókinni getur Lengjan þá tapað?
„Það' geta komið vikur þar sem við
erum að borga meira en 100%
vinningshlutfall en svo á móti koma
vikur sem við erum að borga mjög
lítið út. Samkvæmt formúlunni
okkar ætti hlutfallið að jafna sig
út yfir árið og vera um 50%
vinningshlutfall."
Er Lengjan komin
til að vera?
„Það er engin spurning að
Lengjan er komin til að vera
og viðtökurnar hafa verið
þannig að menn muna ekki
annað eins."
SKINFAXI 43