Skinfaxi - 01.02.1996, Blaðsíða 16
Ungmennaskipti
Eins og undanfarin ár er UMFÍ í samstarfi við 4H-samtökin í
Noregi og Svíþjóð um ungmennaskipti á sumrin. UMFÍ tekur á
móti einu ungmenni frá hvoru landi til þriggja mánaða dvalar
yfir sumarið og getur í staðinn sent eitt íslenskt ungmenni til
hvors lands í jafnlanga dvöl.
Þessi skipti hafa gengið ákaflega vel og þátttakendur verið mjög
ánægðir. Sem dæmi má nefna að stúlkunni frá Noregi, sem kom
hér sl. sumar, líkaði íslandsdvölin svo vel að hún er ekki farin
heim enn, heldur útvegaði hún sér vinnu þegar dvölinni á okkar
vegum lauk. Islenska stúlkan sem fór til Noregs var líka mjög
ánægð og lenti í ýmsum ævintýrum, og sama má segja um
Svíann sem kom til okkar.
UMFÍ auglýsir hér eftir ungmennafélögum til þátttöku í
skiptunum. Ef þú ert 18-25 ára og hefur áhuga á að dvelja í þrjá
mánuði í Noregi eða Svíþjóð næsta sumar skaltu athuga málið.
Þátttakendur greiða sjálfir fargjaldið milli landa, en dvölin er
þeim að kostnaðarlausu. Þeir
dvelja á nokkrum heimilum yfir
__ __ sumarið og taka þátt í lífi og starfi
fjölskyldnanna, auk þess sem farið
mmi H er á námskeið, landsmót 4H-
samtakanna, í útilegur og
kynnisferðir.
Umsóknarfrestur er til 1. npríl 1996.
| Nánari upplýsingar fást í þjónustu-
miðstöð UMFÍ í síma 568-2929.
Júlía Björnsdóttir ferðaðist um Noreg á vegum
UMFI sl. sumar
16 Skinfaxi