Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1996, Síða 18

Skinfaxi - 01.02.1996, Síða 18
1 f 1 • Vantar: Ég er að /iT hvpnii safna §ö§num ill llVlýl I II um umhverfis- w , • X C\ mal' ofbeldi °8 ínternetið? =“’= lýsingar um þessi ólíku málefni? Það væri hægt að grafa upp tímarit hér og þar í heiminum sem skrifa um eitthvað af þessu og þá jafnvel kaupa auglýsingu í blaðinu þar sem hægt væri að biðja fólk um að senda upplýsingar á ákveðinn stað. En er líklegt að viðbrögðin verði mikil? Væntan- lega nenna fair að safna upplýsingunum saman, ljósrita þær, skella þeim í umslag og senda með pósti. Onnur leið er fljótari, auðveldari og skilar mun meiri árangri. Internetið er nú með heimasíður um flest allt sem hugsast getur en ef svo ólíklega skilda fara að upplýsingarnar sem leitað er að finnast ekki þar, er auðveld leið að auglýsa eftir þeim á netinu. Internetið er frægt fyrir að láta upplýsingar af hendi ókeypis og því mundi það aðeins kosta símtal, fyrirhöfn og tíma að nálgast þær upplýsingar sem vantar. Hvernig keinM þn a neliil-' 1 .Nauð- synlegt erað eiga tölvu Og helst hrað- virka. 2. Mótald verður að vera tengt frá tölvu í símalínu. Mótaldið breytir tölvuforritun í hljóð svo þau geti ferðast um símalínurnar. 3. Samskiptaforrit eins og Windows hafa oft allan hugbúnað sem þarf. Ef hugbúnaðurinn er hins vegar ekki til staðar verður þú að nálgast hann annars staðar. 4. Til að tengjast þarftu svo að kaupa tíma í gegnum fyrirtæki sem koma þér í samband við Internetið. Nokkur fyrirtæki bjóða þessa þjónustu hér á landi og því um að gera að þera saman verð og gæði. 5. Þá er bara að finna allar þær upplýsingar sem vantar! George Weah George Weah hefur skotist upp á stjörnuhimininn á skömmum tíma. Hann var valinn leikmaður ársins hjá FIFA, knattspyrnumaður Evrópu hjá France Football og knattspyrnumaður ársins hjá World Soccer. Ekki alls fyrir löngu þurfti Weah að gera upp á milli knatt- spyrnunnar og vinnu sinnar sem síma- iðgerðamaður. Weah valdi rétt þótt hann segi sjálfur að frami hans sé nú þegar orðinn meiri en hann þorði nokk- urn tímann að vona. Weah hefur lagt mikið á sig til að verða góður knatt- spyrnumaður og sjálfur segist hann gera sér grein fyrir því að án fyrir- hafnarinnar hefði hann aldrei orðið meira en meðal- maður á vellinum. Honum hefur hins vegar tekist það vel upp að nú er hann hálfgerður guð í heimalandi sínu. „Þetta hefur verið mjög erfitt og ef ég hefði ekki haft þetta mikla hugrekki í upphafi ferilsins væri ég ekki staddur hérna í dag," segir Weah. „Ef ég lít til baka voru erfiðustu tímarnir þegar ég gekk til liðs við Invincible Eleven sem er vinsælasta liðið í Líberíu. Eg átti í miklum erfiðleikum með áhorfendurna, missti fljótlega sæti mitt í liðinu og átti erfitt með að vinna mér fast sæti." Eftir þennan erfiða tíma hjá Invincible Eleven gekk hann til liðs við Tonnerre Yaounde þar sem hann fékk þriggja ára samning. Weah fór að spila betur og eftir aðeins sex mánuði hjá Tonnerre gerði hann samning við franska liðið Monaco. „Eg lærði mikið hjá Monaco," segir Weah sem skoraði 57 mörk fyrir liðið þau fjögur ár sem hann lék með þvi. Eftir gott gengi hjá Monaco gekk hann til liðs við Paris Saint Germain og varð um leið dýrasti leikmaðurinn sem nokkru sinni hafði verið keyptur frá Afríku. Þau ellefu mörk sem Weah skoraði fyrir PSG voru þýðingarmikil á leið liðsins að meistaratitlinum sem vannst tímabilið 1994. Eftir það fór hins vegar að síga á ógæfuhliðina hjá honum. Tímabilið á eftir skoraði Weah aðeins sex mörk og átti í útistöðum við þjálfara liðsins, Luis Fernandez. Áhorfendur snerust gegn honum og má til dæmis nefna að þegar AC Milan gerði tilboð uppá 650 milljónir í hann, skrifuðu áhangendur liðsins skilaboð til hans á stóran dregil: „Farðu Weah, við þurfum ekkert á þér að halda." Weah er nú 29 ára gamall og því farið að styttast í annan endann á ferli hans. Hann á sér þann draum að verða forseti knattspyrnusambands Líberíu þegar hann leggur skóna á hilluna en það má alveg búast við því að hann eigi eftir að skora nokkur mörk hjá andstæðingunum áður en sá dagur rennur upp. (World Soccer) 18 Skinfaxi

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.