Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.02.1996, Qupperneq 27

Skinfaxi - 01.02.1996, Qupperneq 27
lært að kasta á milli, skjóta og allt þannig en það vantaði allan skilning á leiknum. Hvernig þjálfara eru krakkarnir að fá í yngri flokkunum í dag? Guðný: Eg held að þetta hafi nú lagast mikið en samt er alltaf eitthvað innan um að illa sé staðið að hlutunum og einhverjir sem ekkert kunna fengnir til að þjálfa. Það er líka ekkert kennt hérna á Islandi hvernig kenna á handbolta og því mjög erfitt fyrir einhvern sem vill þó læra að komast á námskeið. Það sást kannski best þegar Boris kom og þjálfaði Valsarana hversu mikið hann kom með af æfingum sem við höfðum aldrei séð hérna á Islandi. Judith, sem var hjá IBV en er nú að þjálfa hjá Haukum og Stjörnunni, kom líka með mjög mikla reynslu og þekkingu með sér sem þjálfari og það á eftir að skila sér seinna með betri leikmönnum. Ragnheiður: Það vantar allt of mikið fólk sem hefur virkilega einhverja reynslu og þekkingu á því sem það er að gera. Þetta sést auðvitað best á Valsstelpunum og strákunum þar sem Boris hefur þjálfað upp frá grunni einstaklinga sem eru í fremstu röð í handboltanum í dag. Hvernig á að ala upp góðan íþróttamann í dag? Nú eru mjög misjafnar skoðanir á því hversu langt skal keyra krakkana áfram til að vinna. Eiga þjálfarar að tefla fram sterkasta liðinu eða eiga allir að fá að vera með? Guðný: Eg hef orðið vör við það þegar ég er að þjálfa að krakkarnir vilja vinna. Upp að vissum aldri verða auðvitað allir að fá að vera með en samt finnur maður fyrir því að þau eru svekkt ef þau vinna ekki. Það verður að finna einhvern milliveg. Ragnheiður: í 6. flokk er t.d. þátttakan aðalatriðið en samt verða leikmennirnir ekki sáttir ef þeir tapa. Guðný: Það er líka orðið þannig að þeir sem vinna fá athygli og þeir sem tapa fá ekkert. Allir þurfa krakkarnir á athygli að halda og þess vegna vilja þeir vinna. Það er líka litið á það þannig að ef þú spilar í liði sem tapar ert þú yfirleitt talinn lélegur íþróttamaður - þetta er slæmt en allt of algengt. Gott dæmi um þetta er þegar við vorurn að spila við Rússana með landsliðinu. Við erum miklu lélegri en þær en samt kannski ekki að spila neitt illa. Umfjöllunin verður samt öll neikvæð og talað um okkur eins og við værum ömurlegir íþróttamenn. Þetta sama gerðist með strákana á HM. Ragnheiður: Ég held að agi sé líka mjög mikilvægur fyrir góðan íþróttamann og það vantar í marga yngri flokka í dag. Krakkarnir verða sjálfir að læra að þeir eru að gera þetta fyrir sig og ef þeir svíkjast um eru þeir ekki að svíkja neinn nema sjálfa sig. Guðný: Já, þetta er alveg rétt. Það vantar mikið upp á að krakkarnir taki á því sem er verið að gera og maður finnur fyrir því að sumir foreldrarnir kæra sig ekkert um að of mikill agi sé hafður á æfingum. Eiga krakkarnir strax að velja sér eina íþrótt eða er gott fyrir þau að vera á fullu alls staðar? Ragnheiður: Það er mjög mikilvægt að félögin bjóði krökkunum upp á mismunandi æfingar og leyfi þeim að prófa sig áfrarn á mörgum stöðum. Það hefur sýnt sig um allan heim að allir bestu íþróttamenn heims tóku þátt í mörgum íþróttagreinum þegar þeir voru ungir. Sérhæfingin á ekki að byrja fyrr en þeir eru orðnir 15-16 ára garnlir. Guðný: Það er sjálfsagt að þau fái nægilega hreyfingu og ég held að flestir þjálfarar geri sér alveg grein fyrir því að séræfingar geta blandast með leik og almennri hreyfingu. Það er aðalatriðið að krakkarnir hafi gaman að því sem þeir eru að gera. Hversu gömul eiga börnin að vera þegar þjálfarinn segir að nú stilli hann bara upp sínu sterkasta liði? Ragnheiður: Það er voðalega erfitt að svara því. I dag bjóða mótin upp á það að þjálfari getur teflt fram mörgum liðum. Þetta gerir hlutina auðveldari og leyfir fleirum að vera með, hvort sem þau eru í a-liðinu eða í slakari liðum. Þegar ég var ellefu ára í 3. flokki æfðu 38 stelpur á aldrinum 10-13 ára og aðeins 12 komust í hópinn sem keppti alla leikina. Guðný: Já, núna er þetta auðveldara og t.d. þegar ég var í 5. flokk var ég með A-, B- og C-lið og þá var auðvelt að leyfa öllum að vera með en reyna samt að vinna leikina. Það er voðalega erfitt að segja í hvaða aldursflokki þjálfari á að fara að stilla upp sínu besta liði - ég held að ósjálfrátt geri hann það alltaf. Ragnheiður: Foreldrarnir eru líka oft verstir á hliðarlínunni öskrandi og æpandi. Þeir vilja alls ekki að barnið þeirra tapi leiknum að setja pressu á þjálfarann. Guðný: Maður stendur líka sjálfan sig að því að innst inni vill maður vinna. Hvernig finnst ykkur staða mála vera hjá kvennalandsliðinu í handknattleik? Guðný: Við höfurn nú reyndar fengið fleiri verkefni að undanförnu en oft áður. Við fórum í æfingabúðir í sumar, aftur rétt fyrir jólin og svo leikirnir á móti Rússurn. Verkefnalega er þetta á uppleið. Hvað val á leikmönnum snertir mætti þjálfarinn kannski gefa fleirum tækifæri að spreyta sig en ég held að hann sé að gera það með yngri liðin. Ragnheiður: Mér finnst þjálfarinn einblína einum of mikið á framtíðina en ekki byggja upp það lið sem mun taka þátt í Evrópukeppninni. í undirbúnings- rnótinu fyrir evrópukeppnina fer hann með stóran hluta 21-árs landsliðsins út og samt gera allir sér grein fyrir því að þessir leikmenn koma ekki til með að spila þessa leiki sem verið er að undirbúa liðið fyrir. Hann er með ákveðin kjarna sem að mínu mati er of lítill. Það er heldur engin pressa frá HSI að okkur gangi betur og ég held að þeim líði ágætlega á meðan við erum bara svona miðlungslið. Sjálfum finnst mér fara mjög lítið Það er mjög lítið gert fyrir okkur efvið erum bornar saman við karlalandsliðið Skinfaxi 27

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.