Skinfaxi - 01.04.1997, Síða 19
séu ekki endilega staðráðnir í að fara í nám við Háskólann, þrátt
fyrir að vera undirmönnuð hér við námsráðgjöfina því að oft eru
þeir með það bak við eyrað að fara í nám við háskólann ásamt
öðrum möguleikum. Þá aðstoðum við þessa einstaklinga við það
að stilla upp ólíkum námsmöguleikum fyrir hvern og einn.
Við höfum reynt að safna hér saman upplýsingum um skólakerfið
allt og tengiliði sem geta veitt upplýsingar um það nám sem ekki
er kennt hér þannig að við getum vísað þeim áfram þannig að við
veitum kannski einhverjar upplýsingar og vísum síðan áfram til
réttra aðila.
Er fólk mikið að velta fyrir sér framtíðarmöguleikum eftir
nám þegar það kemur að tala við ykkur?
Já, við verðum tvímælalaust vör við það að samkeppnin úti í
samfélaginu um störf hún skilar sér í hugsunarhætti þeirra sem
eru að velja sér nám. Vissulega þá veltir fólk því fyrir sér hvað
bíður þess að námi loknu en þá rekumst við hins vegar á það að
því miður hefur lítið verið gert af markvissum könnunum sem
leiða í Ijós hvar möguleikar um atvinnu eru. Okkur skortir bæði
fjármagn og mannafla til þess að framkvæma viðlíka kannanir.
Það eru engir aðilar sem framkvæma svona kannanir markvisst.
Þó svo að ýmis stéttar- og fagfélög, til dæmis verkfræðinga og
Isekna, hafi staðið að könnunum um það hvernig markaðurinn
geti litið út eftir nokkur ár, þá er þetta ekki almennt til yfir
námsleiðir við Háskólann.
Hvernig er það fyrir krakka utan af landi að nálgast
upplýsingar frá ykkur?
Það er alltaf eitthvað um það að þeir hringja og biðja um
uPplýsingar um ákveðnar námsgreinar og þá sendum við þeim
Það sem við höfum um viðkomandi námsgrein. Það sem við
gerum líka bæði fyrir fólk utan af land og einnig það sem er ekki
hérna víð skólann er að við látum það vita af þeim
nemendaráðgjöfum sem eru til staðar. Nemendaráðgjafar eru
nemendur við skólann sem eru komnir nokkuð langt áleiðis í
námi sínu og eru ráðnir til þess að veita þeim sem eru skemur á
veg komnir í námi og einnig þeim sem ekki eru byrjaðir í námi,
upplýsingar innan frá. Hjá nemendaráðgjöfum leynast mjög
gagnlegar upplýsingar sem hvorki við hjá námsráðgjöf eða aðrir
höfum aðgang að en getur verið gott að fá.
Síðan geta einstaka skólar úti á landi tekið sig til og fengið
námsráðgjafa til að kynna námsleiðir við skólann og þá oftar en
ekki leggjum við þetta áhugasviðspróf fyrir þátttakendur.
Það má að þessu leyti segja að við stöndum að kynningu á
námsleiðum við Háskóla íslands. Við höfum líka um árabil staðið
fyrir og haft umsjón með kynningu á öllu því námi sem er kennt
við skólann og öllu því námi sem tekur við að loknu
framhaldsskólanámi. Á þessari kynningu er fléttað saman öllu
þessu námi sem stendur til boða og það kynnt á einum degi. Við
höfum lagt sérstaka áherslu á að fólk utan af landi hafi getað nýtt
sér þetta með því að vera í sambandi við skólastjórnendur og
námsráðgjafa úti á landi og reynt að fá Flugleiðir og
farfuglaheimili til þess að bjóða upp á vænlega kosti fyrir þennan
hóp f sambandi við þessa kynningu. Þessi breiðkynning
skólanna er annað hvort ár. Þess á milli kynna síðan skólarnir
hver í sínu lagi það nám sem boðið er upp á.
ilkiprentun
orðfánar
tifánar
iðhafnarfánar
ímmiðar
olaprentun
kiltagerð
ílamerkingar
luggamerkingar
SILKIPRENTUN
Skipholti 35, 105 Reykjavík Sími 553-9960, Fax 553-9961
1907
19