Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.04.1997, Side 31

Skinfaxi - 01.04.1997, Side 31
Hann var mjög mikilvægur fyrir liðið. Hannvarbesti útlendingurinn í deildinni en það má ekki gleyma því að hann hafði mjög gott lið með sér tíu til tólf góða leikmenn heldur en ef þú sért eingöngu með fimm leikmenn sem þú ert öryggur með að séu góðir. Ég held að þetta falli um sjálft sig, enda hefur það sýnt sig að lið með góða einstaklinga eru oft mis góð eftir því hver þjálfar, þótt að mannskapurinn sé sá sami á milli ára.” - Verða allir áfram hjá ykkur? Já ég held það, nema Albert Óskarsson. Hann er að fara í nám til Bandaríkjanna. Ég hef ekki heyrt með yngri guttanna. Maður heyrir Það alltaf á hverjum vetri að Þeir fái of lítið að spila og það er eðlilegt að menn vilji fá að spila, en menn verða að sætta sig við sitt hlutverk. Ég held að það sé meiri reynsla að vinna titla, heldur en að spila með einhverju miðlungsliði. Þú stendur þig jafnvel betur en fræðin er ekki meiri held ég og menn verða betri körfuboltamenn að spila með betra liði.” - Er ekki slæmt fyrir ykkur að missa Albert? Þurfið þið ekki að fá einhvern í staðinn? .,Það er slæmt að missa Albert. Hann er frábær varnarmaður og er vaxandi í sókninni, en við förum ekkert að leita að nýjum manni. Við erum með tvo til þrjá stráka sem geta tekið við hlutverki Alberts og það er mál Þjálfarans að pússla þessu saman.” ' Það segja margir að Damon hafi verið maðurinn á bak við sigur ykkar. Hversu mikilvægur var hann fyrir liðið? »Hann var mjög mikilvægur fyrir liðið. Hann var besti átlendingurinn, en það má ekki gleyma því að hann hafði hijög gott lið með sér. Hann var ekki með hæstu tölur í úeildinni, en hann gerði það sem lið þarf til þess að vinna °g liðið spilaði rétt í kringum hann. Sigurður sá hvað hann gat og nýtti sér það til hins ýtrasta. Mörg lið voru með mjög góða útlendinga en nýttu sér það ekki og 'eikmaðurinn féll því ekki inn í hópinn. Við notuðum Damon hundrað prósent rétt og það skilaði honum sem betri ieikmanni og liðið varð betra.” ■ Hverjir eru möguleikarnir að hann komi aftur? »Það eru helmingslíkur. Ég gæti trúað að hann fengi tilboð annars staðar frá og þetta er bara spurningin um laun. Honum ieið vel hérna og hann sagði ef hann kæmi aftur þá kæmi hann til okkar. Ég vona endilega að hann komi aftur.” ' Heldurðu að Damon sé einn besti útlendingurinn sem hefur spilað í deildinni? »Hann er besti útlendingurinn sem ég hef spilað með hérna. Þeir hafa verið ^argir góðir en hann hafði allt sem þurfti. Ég tel hann Vera einn af Þrem bestu ssm hafa komið til iandsins.” ' A/ú er bilið á rn'Hi íslenskra °9 erlendra le'kmannanna alltafað winnka. Eiga liðin að fá sér fleiri útlendinga eða eiga þau að bVggja á íslendingum? Við Keflvíkingar vissum að enginn yrði valinn frá okkur þegar við fórum á lokahófið... Þetta skiptir ekki neinu höfuðmáli fyrir okkur, aðalmálið er að vinna deildina „Það er nóg að vera með einn útlending. Sum liðin nýttu sér Bosmans málið og fengu sér annan útlending, eins og Borgarnes, Tindastóll og ísafjörður en þeir voru ekkert betri en íslensku strákarnir. Við verðum að huga að framtíðinni og efla þá stráka sem við höfum. Við eigum mikið af ungum efnilegum strákum en það er spurningin hvað þeir endast lengi. Sumir hætta þegar þeir fá ekki séns með sínu liði, en margir skipta þó um lið. Ég held að við Keflvíkingar höfum átt leikmann, í fyrra eða árið áður, í tíu af tólf liðum í deildinni. - Varstu sáttur við nýja fyrirkomulagið á deildinni í ár? „Nei, ég var ekki sáttur. Mér fannst betra að spila fleiri leiki. í fyrra var meira um spennandi leiki og maður spilaði fjórum sinnum við toppliðin. Það var að vísu dálítið mikið að spila 32 leiki en þeir fóru niður í 22 og það er rosalega mikil fækkun. Að vísu kom Lengjubikarinn inn í til að vega upp á móti breytingunni, en það eru svo mörg lið sem detta út í fyrstu umferð og þá er þetta í raun engin viðbót fyrir þau. Við þurfum að spila fleiri leiki.” - Þú ert frekar lítill sem bakvörður, geturðu einhvern veginn nýtt þér það að vera minni en hinir? „Jú, jú maður nýtir sér þetta með hraða, vera fljótur að skjóta og að nota stökkkraftinn vel. Svo nýtir maður reynsluna, maður lærir betur með hverju árinu að spila. En það eru ekki margir stórir á íslandi svo þetta er ekki mikið vandamál.” - Þú ert þá ekki Mugsy Bouges íslands? „Nei, nei ég er ekki algjör stubbur þótt ég sé með minni mönnum í körfunni hér á landi. Ég hef oft fengið að heyra það að ég væri lítill en hæðin hefur aldrei háð mér.” - Eru einhverjir andstæðingar hér á landi sem þér finnst erfitt að spila á móti? „Mér finnst erfitt að spila á móti Albert og Fal á æfingum. Annars velti ég þessu ekki fyrir mér, að vísu er Teitur Örlygsson erfiður og einnig Eiríkur Önundarson. En ég leyfi frekar mönnum að hafa áhyggjur af mér. Ég fer aldrei í leiki með ótta við einhvern leikmann.” - Skotnýting hjá íslenskum bakvörðum er mjög há miðað við það sem gerist á meðal toppmanna í NBA. Hver er ástæðan fyrir þessu? „Varnarleikurinn hér heima er ekki nærri því jafn sterkur og úti. En við erum með mjög góðar skyttur og menn hafa lært að skjóta mjög snemma og eru náttúrlegri skyttur heldur en Kanarnir. í NBA er kvartað undan því að leikmenn reyna alltaf að troða og fara nálægt körfunni. Hér á landi erum við litlir og það segir sig sjálft að við erum ekkert að reyna að troða. Þá nýtir maður sér aðra hluti og við æfum skot miklu meira en aðrar þjóðir. Enda óttast flestar Evrópuþjóðir okkur, sem þriggja stiga lið. En mér finnst þetta vera að breytast. Við leggjum ekki eins mikla rækt við skotin og áður, en að vísu hefur varnarleikurinn verið að skána á móti. Skottæknin er eitthvað sem við þurfum að leggja rækt við og mikilvægt er að þjálfarar sinni því hlutverki vel.” Það er nóg að vera með einn útlending. Sum lið nýttu sér Bosman málið og fengu sér annan útlending...Við verðum að huga að framtíðinni og efla þá stráka sem við eigum C3Á) i9o/ 1997 mur.UK 31

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.