Skinfaxi - 01.04.1997, Page 46
- Nú er 90 ára afmælisár Ungmennafelags íslands
næstum ’hálfnað en það hefur ekki borið mikið á
afmælinu?
„Það er kannski rétt og við höfum ekki verið neitt að
auglýsa það í fjölmiðlum eða annars staðar að
Ungmennafélag íslands sé 90 ára í ár. Við reynum
frekar að minnast þess í starfi okkar og þar ber
kannski fyrst að nefna fræðsluátakið sem fólk í
hreyfingunni verður mest vart við. Kyndilhlaupið er
einnig tileinkað 90 ára afmælinu en við notum líka
tækifærið og komum eldinum inn á Landsmót.
Landsmótið hittir svo á afmælisárið og þar verður
minnst á 90 ára afmælið. í lok maí vorum við einnig
með ráðstefnu og aðalfund sem er liður í 90 ára
afmæli okkar en við buðumst til að halda ráðstefnuna í
tilefni af afmælinu. Síðast en ekki síst verður svo þing
UMFÍ haldið í haust og afmælisnefndin er að skoða
þann möguleika að hafa menningarviku
ungmennafélaganna síðustu vikuna fyrir þing. Eins
og sést á þessu er margt um að vera og það mun
kannski bera meira á afmælinu fyrir almenning þegar
líða tekur á sumarið."
- Nú hefur UMFÍ verið með sérverkefni í gangi
undanfarin ár en í sumar er ekkert í gangi.
„Það er verkefni í gangi eins og ég nefndi áðan.
Kyndilhlaupið er verkefni þar sem öíl
ungmennafélögin taka þátt og þrátt fyrir að það fari
ekki mikið fyrir því þá má búast við að um 2000 manns
taki þátt í því áður en yfir líkur. Það er svo líka
Ekki íþróttahreyfingunni til
góðs að sameina UlilFÍ og ÍSÍ
spurning hvort stjórn UMFÍ eigi alltaf að vera með
verkefni sem er vísað út í hreyfinguna á hverju ári.
Þetta ár er mjög stórt hjá hreyfingunni allri og ekki víst
að það hafi verið neinn tími fyrir önnur sérverkefni.
Það þurfti mikla vinnu og undirbúning fyrir
Kyndilhlaupið og svo má ekki gleyma því að
ungmennafélögin eru að búa sig undir Landsmótið í
Borgarnesi og það er ekki síður mikil vinna. Við
verðum að vara okkur á því að demba ekki of miklu á
hreyfinguna þó að það sé nauðsynlegt að hafa alltaf
eitthvað í gangi.“
- Hver er staða hreyfingarinnar á þessum tímamótum.
Sameining Ólympiunefndar íslands og
íþróttasambands íslands hefur verið í umræðunni og
sumir hafa nefnt sameiningu ÍSÍ og UMFÍ. Hver er
afstaða þín íþessum málum?
„Ég held að staða Ungmennafélags íslands sé sterk
og þá sérstaklega út um land og mér finnst frekar hafa
verið uppsveifla að undanförnu heldur en ekki. Þú
minnist á sameiningarmálin, ég hef ekki trú á því að
það verði íþróttahreyfingunni til góðs að sameina
UMFÍ og ÍSÍ. Ég hef hins vegar ekki sett mig inn í og
ætla ekki að skipta mér af sameiningu Óí og ÍSÍ. Ég
hef kannski skoðun á því en ég tel ekki heppilegt að
ég sé að beita mér um of í því. Ég ræði þessi mál við
mína félaga ef þeir spyrja mig en ég hef ekki löngun til
að beita mér neitt í þessu máli.“
- En af hverju eru sum félögin innan UMFI en önnur
ekki og hvað fá „íþróttafélög“ eins og Breiðablik og
Keflavík út úr því að vera innan UMFI sem kannski
félög eins og KR og Valur fá ekki?
„í fyrsta lagi er það aðgangur að Landsmóti sem
virðist vera nokkuð ríkur. Það er kannski misjafnt
hvernig menn meta þá kosti að vera innan UMFÍ en ég
held að samstarfsvettvangurinn í grasrótinni sé
mikiliivægur, unglingalandsmótið, Landsmótið og
fjárhagslega er það betra. Það munar miklu fyrir
héraðssamböndin og félögin með beina aðild að fá
Lottóið frá okkur þar sem ÍSÍ hefur skildum að gegna
við°sérsamböndin og þangað hljóta að fara
umtalsverðir fjármunir. Það eru margir kostir við að
vera innan UMFÍ.“
- Nú styttist í þing UMFÍ, bíður þú þig aftur fram til
formanns?
„Ég á nú von á því að ég bjóði mig fram aftur. Það
verða einhverjar breytingar á stjórn UMFÍ á næsta
þingi þrátt fyrir að ég vilji engan frá borði missa. Ég
hef starfað með UMFI í langan tíma og haft mjög
gaman að og á meðan mér finnst þetta skemmtilegt sé
ég ekki ástæðu til að hætta.“
UMFÍ
46