Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.12.1997, Qupperneq 7

Skinfaxi - 01.12.1997, Qupperneq 7
Guömundur Torfason hefur verið að gera góða hluti með lið Grindavíkur. Það ergreinilegt að þarna er á ferðinni hæfur þjálfari sem nær því besta út úr þeim mannskap sem hann hefur til staðar. Nú fer að líða að því að undirbúningur knattspyrnuliða hefjist fyrir næstkomandi leiktíð. Þrjú ungmennafélög leika í Sjóvá Almennra- deildinni næsta sumar og hafa þau öll gengið frá þjálfaramálum sínum. Grindvíkingar eru hæstánægðir með árangurinn sem Guðmundur Torfason hefur náð með liðið. Nokkur félög voru á höttunum eftir honum en hann ákvað að vera um kyrrt hjá Grindavík. Spútnik- lið síðustu leiktíðar, Keflavík, hefur gengið frá samningum við þá Gunnar Oddsson og Sigurð Björgvinsson. Það verður erfitt fyrir þá félaga að toppa árangur sumarsins en ungu strákarnir mæta nú til leiks reynslunni ríkari. Leiftur frá Ólafsfirði missti þjálfarann sinn til Valsmanna og þeir þrugðu á það ráð að sækja (slending til Færeyja til að þjálfa liðið. Það verður gaman að fylgjast með hvernig honum tekst til með þjálfun á félagsliði hér á íslandi. - Hvað má drekka mikið áfengi á meðgöngu? Niðurstöður rannsókna þenda til þess að því meira áfengis sem kona neytir á meðgöngutíma þeim mun meiri líkur séu á að vínandinn skaði fóstrið. Þær benda og til þess að skaðinn verði því meiri sem magn áfengis eykst. Ekki er hægt að fullyrða að lítil áfengisneysla í örfá skipti á meðgöngutíma skaði fóstrið en það er ekki heldur hægt að fullyrða að svo geti ekki verið. Þess vegna er öruggast fyrir barnshafandi konur að neyta alls ekki áfengis á meðgöngutfma því að engin örugg mörk eru þekkt. - Er einhver tími varasamari en annar? Ekki er vitað með vissu hvort fóstrinu er hættara við skaða á einum tíma eða öðrum. Líffærin þroskast á mismunandi tíma með- göngunnar og eru því misviðkvæm fyrir skaða. Almennt virðist fóstrinu þó hættast við skaða á fyrri hluta meðgöngunnar. Kona sem dregur úr neyslu eða hættir að neyta áfengis hvenær sem er á meðgöngu minnkar líkur á því að fóstrið skaðist af völdum vínanda. (Upplýsingar: Áfengisvarnaráð, 2.útgáfa) Þeim fer fjölgandi jafnt og þétt ungmennafélögunum í íslenska landsliðinu í knattspyrnu. Bræðurnir Eyjólfur og Sverrir Sverrissynir náðu þeim merka áfanga ekki alls fyrir löngu að leika saman með landsliðinu. Sverrir sést hér í leik gegn Norðmönnum. Ný ritnefnd Skinfaxa Að loknu 40. samþandsþingi Ungmennafélags íslands, sem haldið var í Grafarvogi í lok októbermánaðar var valin ný ritnefnd Skinfaxa. Þau Vilmar Þétursson, Sigurbjörn Gunnarsson og Sigurlaug Ragnarsdóttir tóku öll aftur sæti í ritnefndinni en þau hafa stýrt blaðinu inn á nýjar brautir undanfarin tvö ár. Til viðbótar settist Anna R. Möller í ritnefnd og ætti hún að koma með reynsluna með sér þar sem hún starfaði meðal annars hjá útgáfufyrirtækinu Fróða fyrir nokkrum árum. 7

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.