Skinfaxi - 01.12.1997, Page 23
sk Barátta Stjörnunnar og Hauka heldur áfram
■ • I Þær hafa verið sérstaklega skemmtilegar
I úrslitarimmurnar á milli Ungmennafélags
Stjörnunnar og Hauka í meistaraflokki
kvenna. Þessi lið hafa sýnt nokkra yfir-
burði í deildinni undanfarin ár og þrátt
fyrir jafnari deíld þetta árið skipa þessi
tvö lið enn efstu sætin. En hvað gerir
þessi lið sterkari en önnur og hvort liðið
fer með sigur af hólmi þetta árið?
Það hefur ekki vantað spennuna og baráttuna í
úrslitaviðeignir Hauka og Stjörnunnar undanfarin ár.
Þessi lið hafa haft nokkra yfirburði í deildinni og þrátt
fyrir jafnari deild í ár en undanfarin ár skipa Haukar
og Stjarnan enn tvö efstu sætin. Vandamálið hjá
báðum þessum liðum er hins vegar breiddin og bæði
liðin keyra mikið til á einungis sjö stelpum. Þessi lið
verða að teljast þau reynslumestu í deildinni og þess
vegna spáir SKINFAXI því að þau leiki aftur til úrslita
í ár. Haukar hafa misst þær Ragnheiði Guðmunds-
dóttur og Kristínu Konráðsdóttur frá síðustu leiktíð
en Stjarnan missti þær Björgu Gilsdóttur, Önnu
Halldórsdóttur og báða markverðina sína.
Stjörnustelpurnar Ragnheiður, Herdís, Inga Fríða og
Sigrún eru hins vegar orðnar hungraðar í sigur og
þær munu koma liðinu alla leið í vetur. Byrjunarliðið
undanfarin ár hefur verið nánast óbreytt og reynsla
liðsins er orðin mikil. Stjarnan fer alla leið í vetur!
Judith EztersaI stóð sig vel í úrslitaleiknum /' fyrra 03 gerði
út um vonir Stjörnunnar.
Þegar í úrslitaleikina er komið er
ekkert gefið eftir eins og þessar
myndir sýna. Haukastelpurnar
hafa haft betur tvö undanfarin ár
í viðreignum þessara liða.
Vigdís Sigurðardóttir getur hreiniega
iokað markinu hjá Haukum þegar
hún kemst í stuð.
Ragnheiður Stephensen er mikilvæg Stjörnuliðinu og þegar
hún kemst í gang er liðið illviðráðanlegt.
ÍJÁ).
1907JUKl 997