Skinfaxi - 01.10.2001, Blaðsíða 2
BETUR IVIÁ EF DUGA
SKAL
Skinfaxi
RITSTJÓRI
Valdimar Tryggvi Kristófersson
BLAÐAMAÐUR LJÓSMyNDIR
Gunnar Guðmundsson Sigurjón Ragnar
Skapti Örn Ólafsson
UMBROTOG HÖNNUN
Valdimar Tryggvi Kristófersson
FRAMKVÆMDASTJÓRI ÁBy RGÐ ARM AÐU R
Sæmundur Runólfsson Björn B. Jónsson
AUGLýSINGAR Markaðsmenn
PRENTUN Svansprent
DREIFING Blaðadreifing ehf
Ávana- og fíkniefni hafa verið mikið í umræðunni á
undanförnum mánuðum og skal engan undra þar sem
innflutningur og umfang fíkniefna hefur aldrei verið meiri
hér á landi. Samt sem áður er unnið mikið og gott
forvamarstarf hér á landi, en betur má ef duga skal.
Til að halda þessum vágesti í skefjun þurfa allir að taka
höndum saman og efla forvarnarstarfið enn frekar. Bubbi
Morthens og Essó hafa ekki látíð sitt eftir liggja í þeim málum
og lagt sitt af mörkum. Bubbi hefur predikað í skólum
landsins undanfarið og Esso hefur látið ákveðinn hlut af elds
neytissölu fyrirtækisins renna til forvarnaverkefna. Framlag
Essó og Bubba ætti að verða öðrum fyrirtækjum til eftir-
breytni.
Ungmennafélag íslands hefur undanfarin sex ár staðið fyrir
útgáfu sérrits um vímuefnaforvarnir. Þetta rit er ætlað ungu
fólki og hefur fengið geysigóðar viðtökur undanfarin ár. í
forvarnarblaðinu tjá þekktir einstaklingar úr þjóðfélaginu
skoðanir sínar á vímuefnavandanum og framtíðarlausnum.
Meðal þeirra sem Skinfaxi fékk í viðtal þetta árið eru,
Kolbrún Pálína Helgadóttir, Ungfrú ísland.is, Kristín Rós
Hákonardóttir, afrekskona í sundi, Jón Jósep Snæbjörnsson
söngvari, Hermann Hreiðarsson, knattspyrnukappi, Andrea
Róbertsdóttir, þáttagerðastjórnandi svo einhverjir séu
nefndir. Þá er viðtal við Ásdísi Maríu Franklín, fyrrverandi
fyrirsætu. Hún segir okkur frá reynslu sinna af lystarstoli og
lotugræðgi, en samkvæmt henni glíma margar stúlkur á
íslandi við lystarstol.
Ég held að allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi í blaðinu
og ekki væri óvitlaust fyrir foreldra unglingsbarna að glugga
í greinarnar og skoða hin mismunandi sjónarmið sem
viðmælendur okkar hafa á vímuefnavandanum.
Valdimar Tryggvi Kristófersson
ritstjóri
Það er Kolbrún Pálína
Helgadóttir, Ungfrú ísland.is
sem prýðir forsíðuna að þessu
sinni, en hún er nýkomin heim
frá Suður-Afríku þar sem hún
tók þátt í Miss World.
RITSTJÓRN
Sigurbjörn Gunnarsson
Anna R. Möller
Vilmar Pétursson
Sigurlaug Ragnarsdóttir
STJÓRN UMFÍ
Björn B. Jónsson
Helga Guðjónsdóttir
Kristín Gísladóttir
Anna R. Möller
Sigurbjörn Gunnarsson
Ásdís H. Bjarnadóttir
Hildur Aðalsteinsdóttir
Sigurður Viggósson
Kjartan P. Einarsson
Svanur M. Gestsson
Birgir Gunnlaugsson
SKRIFSTOFA SKINFAXA
ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ UMFÍ
FELLSMÚLA 26
108 REyKJAVÍK
SÍMI: 568-2929
FAX: 568-2935
NETFANG: umfi@umfi.is
HEIMASÍÐA: www.umfi.is