Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.10.2001, Blaðsíða 5

Skinfaxi - 01.10.2001, Blaðsíða 5
SNIFFEFNI Sljóleiki, yfirlið og varanlegur heilaskaSnifefni eru lyktarsterk efni, s.s. lím, gas og lökk sem hafa bein áhrif á taugakerfi og hjarta. Einstaklingur undir áhrifum verður mjög sljór og ruglaður í ríminu. Hjartsláttur eykst og oft fellur neytandinn í yfirlið fyrst eftir inntöku. Mikil hætta er á lostaástandi hjartastoppi. Mörg dæmi eru um að sniffefni hafi valdið varanlegum heilaskaða. SVEPPIR Ofskynjunarsveppir valda skyntruflunum og tilfinningaröskun sem geta leitt til brenglunar á persónuleika og varanlegum heilaskaða. Oft innihalda þessir sveppir önnur eiturefni, eins og blý, sem hefur áhrif á minni og aðra heilastarfsemi. ...þeir sem neyta ofskynjunarlyfja fá oft þær ranghugmyndir að skyntruflanir þeirra séu yfirskilvitsleg upplifun á veruleikanum... Samtaka nú! vv- Áætlunin ísland án eiturlyfja er samstarfsverkefni ríkisstjórnarinnar, Reykjavíkurborgar, Sambands íslenskra sveitarfélaga og evrópsku samtakanna European Cities Against Drugs (ECAD). Markmið áætlunarinnar er að leita leiða til að sameina krafta þjóðarimiar í baráttunni gegn ólöglegum fíkniefnum, efla forvarnir, hefta innflutning og skipuleggja verkefni og aðgerðir sem hafa þetta að leiðarljósi. Island hefur alla burði til að ná miklum árangri í baráttunni gegn eiturlyfjum. Við erum fámenn og vel menntuð þjóð, þar sem almenn velmegun ríkir, þekking á neytendum eiturlyfja er til staðar og umtalsverð kunnátta í forvarnar- og meðferðarmálum. Andstaðan við eiturlyf er almenn meðal landsmanna og aðkomuleiðir eiturlyfja til landsins eru takmarkaðar sökum legu landsins. Baráttan gegn útbreiðslu eiturlyfja er barátta við skipulagða glæpastarfsemi þar sem peningar ráða ferðinni og börn og unglingar eru fórnarlömb. Flestir sem ánetjast eiturlyfjum hefja snemma áfengisneyslu og leiðast út í eiturlyfjaneyslu fyrir tvítugsaldur. Lykilatriðið er að allir láti sig málið varða. ísland án eiturlyfja Ráðhús Reykjavíkur • 101 Reykjavík • Símar 563 2000, 563 2092 og 585 1473 • Fax 562 2415 • netfang iae@rvk.is Dag- og kvöldnámskeið í Miðbæjarskóla og Mjódd Prófanám- öldnnaadeild Grunnskólastia. Grunnnám. Fornám: Upprifjun og undirbúningur fyrir nám á framhaldsskólastigi. Innritun hefst 7. janúar, kennsla hefst 14.janúar. Frístundanám Erlend tungumál (byrjenda- og framhaldsnámskeið, talflokkar) Verklegar greinar, myndlistarnámskeið og leiklist Innritun hefst 14.janúar, kennsla hefst 21.janúar. Upplýsingar í síma: 5512992. Netfang: nfr@namsflokkar.is vefsíða: http://www.namsflokkar.is Svo lengi lærir sem lifir

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.