Skinfaxi - 01.08.2003, Side 3
ritstjórinn
MAÐUR BARA
JÁTAR OG
BYRJAR SVO Á
FYRRIIÐJU!!!
Nú virðist það ekki lengur vera tiltökumál hjá einstaklingum
sem lent hafa í klóm ávana- og fíkniefna að brjótast inn í einn
banka eða jafnvel tvo til að verða sér úti um pening. Og hvað á að
gera við peningana? Jú, greiða fyrir fíkniefni eða greiða upp
gamlar skuldir vegna fíkniefnakaupa. Og hver veit hvenær næsti
banki verður rændur? Auðveldara er sjálfsagt að geta sér til um
hvaða vandamál viðkomandi afbrotamaður á við að stríða sem
rænir bankann. Þá hjálpar íslenska réttarlöggjöfin ekki sem er svo
vinaleg að þegar afbrotamaður hefur játað á sig brotið, þ.e.a.s. sá
aðili sem rænir a.m.k. banka og ógnar starfsfólki með hníf, þá er
hann látinn laus og getur því undantekningalaust hafið fyrri iðju
að nýju. Þetta eru sorglegar staðreyndir bæði livað varðar lög-
gjöfina og hvernig komið er fyrir litla saklausa Islandi sem er ekki
svo saklaust lengur. Því miður eru margir fíkniefnaneytendur
orðnir svo langt leiddir að þeir svífast einskis til að fá sínu fram-
gengt enda þessi heimur orðinn virkilega grimmur hér á landi.
Þegar spurt er hvert stefnir þá er fátt um svör. Vonandi verður
hægt að snúa þessari þróun við á næstu árum. Margir aðilar
leggja sitt af mörkum til að bæta ástandið og aðrir hjálpa fyrr-
verandi fíkniefnaneytendum að snúa gæfunni sér í vil. Mikið og
gott forvarnastarf er unnið hér á landi, en betur má ef duga skal.
Landsmenn verða að þjappa sér saman og leggjast á eitt gegn
þeim vágesti sem fíkniefnin eru. Því þrátt fyrir aukna neyslu og
meiri hörku í þessum heimi þá mega menn aldrei gefast upp.
Ungmennafélag Islands hefur undanfarin átta ár staðið fyrir
útgáfu forvarnablaðs. Þetta rit er ætlað ungu fólki og hefur feng-
ið geysigóðar viðtökur undanfarin ár. Þar tjá þekktir einstaklingar
úr þjóðfélaginu skoðanir sínar á reykingum, vímuefnavandanum
og framtíðarlausnum, auk þess sem við komust að því hvað þeir
eru að fást við. Þetta er fjölbreyttur hópur og meðal þeirra sem
Skinfaxi fékk í viðtal þetta árið er Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir,
Fegurðardrottning íslands 2003, gamla knattspyrnukempan Guð-
ni Bergsson sem nýverið lagði skóna á hilluna, Sverrir Þór
Sverrisson öðru nafni Sveppi sem hefur farið mikinn á sjón-
varpsstöðinni Popp Tíví, knattspyrnukonan Ásthildur Helga-
dóttir o.fl.
Eg held að allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi í blaðinu og
ekki væri vitlaust fyrir foreldra barna á unglingsaldri að glugga í
greinarnar og skoða hin mismunandi sjónarmið sem viðmæl-
endur okkar hafa á vímuefnavandanum.
Valdimar Tryggvi Kristófersson
Það er Ragnhildur Steinunn
Jónsdóttir, Fegurðardrottning
Islands 2003, sem prýðir forsíðuna
að þessu sinni. Það var Sigurjón
Ragnar, ljósmyndari Skinfnxa, sem
tók myndirnar af Ragnhildi
Steinunni og öðrum
viðmælendum blaðsins.
Skinfaxi
RITSTJÓRI
Valdimar Tryggvi Kristófersson
LJÓSMyNDIR
Sigurjón Ragnar
UMBROT OG HÖNNUN
Valdimar Tryggvi Kristófersson
FRAMKVÆMDASTJÓRI ÁBy RGÐ ARMAÐU R
Sæmundur Runólfsson Björn B. Jónsson
AUGLýSINGAR Markaðsmenn
PRENTUN Svansprent
PRÓFARKALESTUR Aðalbjörg Karlsdóttir
PÖKKUN Ás Vinnustofa
RITSTJÓRN
Anna R. Möller
Vilmar Pétursson
Sigurlaug Ragnarsdóttir
Birgir Gunnlaugsson
Ester Jónsdóttir
STJÓRN UMFÍ
Björn B. Jónsson
Helga Guðjónsdóttir
Kristín Gísladóttir
Anna R. Möller
Sigurbjörn Gunnarsson
Ásdís H. Bjarnadóttir
Hildur Aðalsteinsdóttir
Sigurður Viggósson
Kjartan P. Einarsson
Svanur M. Gestsson
Birgir Gunnlaugsson
SKRIFSTOFA SKINFAXA
ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ UMFÍ
FELLSMÚLA 26, 108 REyKJAVÍK
SÍMI: 568-2929, FAX: 568-2935
NETFANG: umfi@umfi.is
HEIMASÍÐA: www.umfi.is
Ársáskrift af Skinfaxa kostar 1.796.- krónur
Skinfaxi kemur út 4-5 sinnum á ári.