Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.08.2003, Qupperneq 13

Skinfaxi - 01.08.2003, Qupperneq 13
Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir Fegurðardrottning íslands 2003 var krýnd á Broadway í lok maí sl. Það Var Suðurnesja- mærin Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir sem hreppti titilinn Fegursta kona landsins en það er margt annað en útlitið sem skiptir máli þegar fegurðardrottning íslands er valin eins og blaðamaður Skinfaxa komst að þegar hann ræddi við Steinunni, eins og hún er ávallt kölluð. Steinunn er nemi í sjúkraþjálfun við Háskóla íslands og er á öðru ári. Hún er nýkomin frá Karabíahafinu þar sem hún dvaldi í 10 daga við myndatökur fyrir Ungfrú Evrópu. Keppnin fer fram í ágúst og verður Steinunn fulltrúi íslendinga þar. Steinunn leggur mikið upp úr góðri heilsu og stundar líkamsrækt og aðrar íþróttir af kappi auk þess sem hún hugsar vel um líkama sinn. Hún er mikil fyrirmyndastúlka í alla staði og hvorki reykir né drekkur. Steinunn komst áfram í Fegurðarsamkeppni íslands eftir að hafa verið krýnd Fegurðardrottning Suður- nesja. En hvernig stóð á því að hún ákvað að taka þátt í Fegurðarsamkeppni Suðurnesja? Mér finnst reykingar hræðilega sorglegar - segir Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir Fegurðardrottning íslands 2003 ..I rauninni finnst mér hálf furðulegt hvernig ég er allt í einu komin inn í þetta allt saman. Mér hafði verið boðið nokkrum sinnum áður hvort ég vildi taka þátt í keppninni en vildi það aldrei. Núna var ég aftur á móti búin að mynda mér mínar skoðanir °g ákvað að slá til.“ Er ekki þessi fegurðardrottningar týpa Marga ungar snótir dreymir að verða fegurðar- úrottningar þegar þær eru litlar. Var þinn æskudraumur að rætast þegar þú varst krýnd Fegurðardrottning íslands? -Nei alls ekki. Eins og flestar vinkonur mínar segja er ég ekki beint þessi fegurðardrottningartýpa og e9 held að flestum í kringum mig hafi hálf brugðið þegar "íþróttastelpan" ákvað að skella sér í fegurðarsamkeppni.“ „Ég ætla rétt að vona að það sé engin uppskrift að fegurðardrottningu íslands. Ég held að fyrst og fremst þurfi maður bara að vera maður sjálfur, vera ákveðin og hafa gaman af.“ Hvemig er að taka þátt í slíkri keppni? „Það er örugglega mjög misjafnt hvað stelpur fá út úr keppni sem þessari og eflaust er það undir þínu eigin hugarfari komið. Keppnin hefur opnað ýmsar dyr fyrir mér, gefið mér tækifæri að spreyta mig á ýmsum verkefnum, ég hef fengið að ferðast og auk þess fylgja þessu ýmis fríðindi sem koma sér vel fyrir námsmann," segir hún brosandi. Það gera sér kannski ekki allir grein fyrir því að það er ekki síður hin innri fegurð sem ræður úrslitum um hver er valin Fegurðardrottning ís- lands ár hvert. Hvað þarf fegurðardrottning að hafa til að bera og eftir hverju fer dómnefndin þegar Fegurðardrottning íslands er valin? „Ég ætla rétt að vona að það sé engin uppskrift að fegurðar- drottningu íslands. Ég held að fyrst og fremst þurfi maður bara að

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.