Skinfaxi - 01.08.2003, Qupperneq 20
Guðni Borgooon
- Náttúruparadís í norðri!
Eitt best geymda leyndarmái Vestf jarða
eru Hornstrandir.
Á Hornströndum ræöur kyrrðin ríkjum,
ekkert rafmagner á svæöinu
og umferð vélknúinna ökutækja er bönnuö.
Fyrirtækið Hornstrandir ehf. á ísafirði
er með áætlunar- og leigusiglingar á Hornstrandir.
Upplýsingar og bókanir í síma 895 1190.
,,Já, það eru alltaf einhverjir.
Hann ræðir bæði við menn
persónulega og við hópinn í
heild sinni. Hann gegnir vissu
hlutverki í undirbúningi liðsins
og síðan geta leikmenn leitað til
hans alit árið um kring. Það er
misjafnt hvað mönnum finnst
en andlega hliðin skiptir miklu
máli í þessu og ég veit að
einhverjir leituðu til hans. Mér
fannst ágætt að ræða við hann
þegar maður var að velta fyrir
sér ástandi liðsins í heild sinni
og hvað mætti betur fara í
undirbúningi liðsins."
Reykingar skaða líkamann
Við vorum áðan að tala um
mikilvægi þess að rækta
líkamann sinn vel til að halda
sér í góðu formi. Reykingar
og áfengi eiga væntanlega
ekki upp á pallborðið hjá
knattspyrnumönnum sem
eru í fremstu röð? ,,Nei, alls
ekki. Ég hef aldrei reykt enda
held ég að allir viti hvað reyk-
ingar eru óhollar. Það hefur
verið mjög sjaldgæft á mínum
knattspyrnuferli erlendis að
leikmenn reyktu. Ég held að
allir geri sér grein fyrir því að
með því að reykja eru menn að
skaða líkamann til langframa.
Og ég tala nú ekki um að reyk-
ingar skerða úthald, kraft og
hafa slæma áhrif áheilsuna.
Það má því með sanni segja að
íþróttir, heilbrigður líkami og
góð heilsa fari aldrei saman
með reykingum."
Þannig að ef íþróttamenn
ætla sér í fremstu röð þá þur-
fa þeir að gæta hófs í þess-
um málum? ,,Já, það er engin
spurning. Það orð fór af ensk-
um knattspyrnumönnum áður
fyrr að þeir hefðu gaman af að
skemmta sér saman og fá sér í
glas en nú er þetta gjörbreytt.
Enskir fóru að gera sér grein
fyrir því ef þeir ætluðu að
komast í fremstu röð og ná
árangri gætu þeir ekki málað
bæinn rauðann einu sinni í
viku. Menn verða að gæta hófs
í þessu og hugsa vel um sig.
Áfengi og tóbak hafa slæm
áhrif á líkamann oghjálpa ekki
til að ná árangri."
Ef við snúum okkur aðeins
að landsliðinu þá lékst þú
síðustu þrjá leikina með
liðinu og nú eru þrír leikir
eftir í þessari undankeppni.
Þú hefur ákveðið að taka ekki
þátt í þessum leikjum en það
hlýtur að hafa kitlað þig tölu-
vert að klára þessa undan-
keppni? „Já, það gerði það.
Þessi ákvörðun var erfið og
ekki hjálpaði það til þegar ég
fékk senda áskorun um að
spila þessa leiki á fotbolti.net
þar sem yfir 2000 manns höfðu
skráð sig. Það var einstök
lesning. Mér þótti mikið til koma
hjá þessu fólki og þykir ein-
staklega vænt um þess áskor-
un og þanni stuðning sem ég
fékk, en að sama skapi þykir
mér afskaplega leitt að geta
ekki orðið að óskum þessa
fólks. Þjálfararnir settu náttúru-
lega þau skilyrði sem mér þóttu
ósköp eðlilega að ég þyrfti að
leika hér heima í úrvalsdeildinni
og æfa að fullum krafti. Mér
fannst það bara ekki vera
raunhæft að ætla að æfa allan
ársins hring án þess að taka frí.
Ég fann bara að ég var ekki
tilbúinn til þess hvorki líkam-
lega né andlega. Ég hefði al-
drei getað gefið mig 100% í
þetta verkefni og það hefði
engum verið greiði gerður með
að fara út í þá sálma.“
Hverja metur þú möguleika
landsliðsins að komast í
úrslitakeppnina núna? ,,Mög-
uleikarnir eru fyrir hendi sér-
staklega að ná öðru sæti og
fara í umspil um laust sæti á
EM. Ég held að svo framarlega
sem við fáum 5 til 6 stig að þá
eigum við góða möguleika að
fá annað sætið. Bryjunin á
þessu verkefni er að klára
útileikinn við Færeyjar en það
verður enginn hægðarleikur.
Það er Ijóst að menn verða að
eiga góðan dag til að sækja
þrjú stig til Færeyja en við erum
með lið til þess að gera það og
klárum dæmið.“
Hvað með möguleika liðsins
til lengri tíma litið. Er sæti á
HM eða EM raunhæfur
möguleiki? ,,Já, ég er sann-
færður um það. Raunhaeft