Skinfaxi - 01.08.2003, Qupperneq 31
Eorvarnablað Skinfaxa
kostar íþróttafréttir á Stöð2. Með þessu vill
Olís ennfremur.leggja áherslu á mikilvægi
íþrótta f nútímasamfélagi og að þær eru
einn af hornsteinum í góðri ímynd félags-
ins.
Fyrr á þessu ári stóðu Olís og Taflfélagið
Hellir fyrir vikulangri skákhátíð í Olíshúsinu
við Sundagarða .þar sem háð var skák-
einvígi, blindskákarfjöltefli auk þess sem
haldið var fjölskylduskákmót.
Olís lætur mannúðarmál sig varða
Olís hefur um árabil lagt alúð við mann-
úðarmál. í tilefni af 75 ára afmæli félagsins
á síðasta ári gerði Olís tveggja ára styrktar-
og samstarfssamninga við íþróttasamband
fatlaðra, Götusmiðjuna og Foreldrafélag
misþroska barna. Á 70 ára afmæli Olís árið
1997 færði félagið Neistanum, styrktar-
félagi hjartveikra barna og íþróttasambandi
fatlaðra veglegar gjafir. Þess á milli kemur
félagið að fjölda annarra verkefna sem
tengjast mannúðarstarfi, s.s. félögum ein-
hverfra, krabbameinssjúkra barna og fleiri
aðila.
Á síðastliðnum árum hefur Olís að auki
verið þátttakandi í ýmsum forvarnarverk-
efnum tengdum umferðaröryggi. Má þar
meðal annars nefna umferðarátak Slysa-
varnafélagsins Landsbjargar og Umferðar-
ráðs. Átakið fólst í skipan umferðaröryggis-
fulltrúa sem deilt var niður á landssvæði.
Hlutverk þeirra var m.a. að fylgjast með
ástandi vega og merkinga, koma með til-
lögur að úrbótum og fræða ungt fólk um
gildi öryggis í umferðinni. Að auki tók Olís
þátt í leitinni að fyrirmyndarökumanninum
ásamt Sjóvá-Almennum þar sem ökumenn
voru hvattir til að líma bláa límmiða í aftur-
rúður bíla sinna, þar sem á stóð „Fyrir-
myndarökumaður" og standa svo undir því
nafni.
Umhverfismál skipa stórann sess
Varla er hægt að ræða um aðkomu Olís að
samfélagslegum verkefnum án þess að
minnast á umhverfismálin en þau eru
meðal þeirra málefna sem Olís hefur stutt
við hvað mest á undanförnum árum og er
hvað þekktast fyrir, en umhverfisstefna
félagsins var samþykkt á stjórnarfundi á 70
ára afmæli félagsins 1997 og var félagið
með fyrstu starfandi fyrirtækjum á (slandi til
þess að setja sér sérstaka umhverfis-
stefnu. Á hverjum tíma er unnið að mörgum
umhverfisverkefnum og verða reglulega til
ný verkefni af slíku tagi sem fyrirtækið kem-
ur að. Olís hóf afskipti sín af umhverfis-
málum árið 1992 þegar gengið var til
samstarfs við Landgræðslu ríkisins í eitt
Opinn skógur
stærsta átak sem efnt hefur verið til gegn
gróðureyðingu landsins. Á fimm árum
söfnuðust 50 milljónir króna í átakinu og
runnu þæróskiptartil uppgræðslu landsins.
Jafnvel í umhverfismáiunum eru forvarnir
að hluta til hafðar að leiðarljósi. Ein þeirra
samtaka sem Olís hefur lagt lið í
umhverfismálum á síðastliðnum árum eru
landgræðslusamtökin Gróður fyrir fólk í
Landnámi Ingólfs. Samtökin voru stofnuð
árið 1997 með það að
markmiði rækta örfoka
land í nágrenni Reykja-
víkur auk þess að efla
umhverfisvitund ungs
fólks og virðingu fyrir
náttúrunni og hvetja þau
til ábyrgðar í umhverfis-
málum. Olís gerðist
styrktaraðili að verk-
efninu sl. vor og er fram-
lag fyrirtækisins nýtt m.a
til uppgræðslu við Litlu
kaffistofuna rétt utan við
Reykjavík.
lífskjörum sínum. Með stefnu sinni í um-
hverfis- og samfélagstengdum málefnum
vill Olís stuðla að því að hver kynslóð skili
landinu og auðlindum þess í betra horfi til
þeirrar næstu og er lögð á það áhersla að
umhverfisvernd sé höfð að leiðarljósi í
starfsemi félagsins. Þannig að meðferð á
söluvörum, förgun úrgangsefna, endurnýt-
ing umbúða, vöruþróun, bygging mann-
virkja og val á rekstrarvörum taki mið af
umhverfisvernd. Með það að leiðarljósi
Nýjasta verkefni Olís í umhverfismálum er
samstarfsverkefni Skógræktarfélags ís-
lands, Olís og Alcan á íslandi. Verkefnið
hefur hlotið nafnið „Opinn skógur“ og snýst
um að auka aðgengi almennings að skóg-
um og útivistarsvæðum á nokkrum stöðum
á landinu. Fyrsti skógurinn sem var
opnaður á vegum verkefnisins var Daníels-
lundur við Svignaskarð
í Borgarfirði en þar
hefur verið unnið að
grisjun og stígagerð
auk þess sem aðstaða
fyrir gesti hefur verið
bætt stórlega.
Olís verður stuðnings-
aðili Opins skógar
næstu þrjú ár. Á þeim
tíma á m.a. að bæta
aðgengi almennings að
Sólbrekkum á Suður-
nesjum, Tunguskógi á
ísafirði, Hrútey á Blön-
duósi, skógarsvæði á
Reyðarfirði og Snæfoksstöðum í Árnes-
sýslu auk fjölda annara skóga víðsvegar
um landið.
Frá undirskrift samnings við Gróður fyrir
Fólk í Landnámi Ingólfs við Litlu
kaffistofuna 2000
styður félagið árlega við bakið á fjölda
frjálsra félagasamtaka á sviði íþrótta-,
mannúðar-, og umhverfismála. Markmið
þessara samtaka er ýmist að græða það
Frá landgræðslustarfi Olís og Gróður
fyrir Fólk í Landnámi Ingólfs við Litlu
kaffistofuna
Nauðsynlegt að standa vörð um
náttúru íslands
Olíuverzlun íslands hf. telur nauðsynlegt að
standa vörð um náttúru landsins jafnframt
því að þjóðin vinni ótrauð að bættum
sem illa hefur farið eða varna því að illa fari,
hvort sem þar er um að ræða heilsu manna
eða náttúru landsins.
Hermann Guðmundsson,
Markaðs- og kynningarfulltrúi Olís.