Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.2003, Blaðsíða 33

Skinfaxi - 01.08.2003, Blaðsíða 33
Guðrún B. Ágústsdóttir í haust verður hleypt af stokkunum námskeiði í listum og lífsleikni sem ber nafnið Lífs-listin og er meðferðar- og forvarnarverkefni. Markmið verkefnisin er að bjóða áhrifaríkt og hagkvæmt úrræði fyrir unglinga sem getur komið í stað kostnaðarsamrar meðferðar á stofnun. Námskeiðið skapar vettvang til listrænnar sköpunnar og þjálfunar í samskiptum og lífsleikni til mótvægis við áhættusama hegðun, svo sem vímuefnaneyslu og afbrot. Fyrirtækið Ný leið, sem er einstaklings og fjölskylduráðgjöf sér um framkvæmd verkefnisins. Guðrún B. Ágústsdóttir er ein af fjórum starfsmönnum þjónust- unnar. Hún er socialpædagog og áfengis- ráðgjafi að mennt og hefur m.a unnið í rúm 20 ár með áfengis- og fíkniefnaneyt- endum á öllum aldri og aðstandendum þeirra. Vellíðan án vímuefna - Guðrún B. Ágústsdóttir ætlar að hjálpa unglingum sem eiga í vandræðum í gegnum listina Sköpun og tjáning hjálpar En um hvað snýst þetta verkefni? ,.Lífslistin gengur út á það að hjálpa unglingum í gegnum listina, einhverja sköpun eins og mynd-, tón-, dans- og leiklist. Á þann hátt geta þau upplifað ákveðna tilfinningu “physical high” sem hierkir vellíðan án vímuefna. Það er ekki nóg að segja við ungling að það sé slæmt að nota vímuefni. Það vita það allir. Ef við setlum að segja við unglingin að hann þurfi að hætta neyslu að þá þurfum við að finna eitthvað fyrir hann í staðinn. Eitthvað sem ^eitir vellíðan án vímuefna. Fólk sem neytir vímuefna gerir það yfirleitt til að lyfta sér upp, minnka hömlur og/eða deyfa vanlíðan. Við sem stöndum að þessu vitum af eigin reynslu að í gegnum listina og með því að skapa eitthvað og tjá sig þá geta þau upplifað tilgang og vellíðan." Nú eruð þið að fara af stað með þetta í haust þannig að þið rennið dálítið blint í sjóinn með árangurinn? „Nei, faglegt mat á hliðstæðum verkefnum,bæði í Ban- daríkjunum og Evrópu, gefur til kynna mjög góð- an árangur, m.a. minnk- andi líkur á vímuefna- neyslu, afbrotum hefur fækkað og andfélagsleg hegðun minnkað hjá þátt- takendum. Einn stærsti kosturinn við þetta nám- skeið er að unglingarnir geta verið heima og stun- dað skóla ásamt því að taka þátt í námskeiðinu. Þetta verkefni er tilraunarverkefni sem stendur í vetur og verðum við með 12 unglinga. Þau koma til okkar tvisvar í viku í hópvinnu þar sem þau vinna verkefni til að æfa sig í félagslegri hæfni o.fl. Síðan fara þau til listleiðbeinanda þar sem þau geta valið um mynd-, leik- og tónlist. Hann mun kenna þeim að vinna í þessum listum og hjálpa þeim áfram. Þessu lýkur síðan með útskrift þar sem haldin verður sýning sem er opin fyrir alla, foreldra, ættingja, kennurum og þeim sem tengjast unglingnum.” Hvernig ætlið þið að ná til unglinganna og eru þetta unglingar sem hafa lent í neyslu? „Við teljum mikilvægt að hafa hópinn blandaðan t.d. unglingar sem eru að bíða eftir að komast í meðferð, unglingar sem eru nýkomnir úr meðferð og þurfa frekari meðferð, unglingar sem eru í félagslegum erfiðleikum í skólunum o.s.frv.” Einn stærsti kosturinn viö þetta námskeið er að unglingarnir geta verið heima og stundað skóla ásamt því að taka þátt í námskeiðinu.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.