Skinfaxi - 01.10.2003, Blaðsíða 3
ritstjdrinn
HHvaðan kemur öll þessi
geta og allur þessi
íslendingar eiga íþróttafólk í fremstu röð
Það er með ólíkindum hversu góða íþróttamenn íslendingar eiga þrátt fyrir
smæð þjóðar. Hvaðan kemur öll þessi geta og allur þessi kraftur? Er huga-
far, vinnusemi og metnaður íslensku þjóðarinnar meiri heldur en hjá öðrum
þjóðum? Ekki ætla ég að reyna að svara þessum spurningum að svo
stöddu en það er ekki að undra að spurt sé því árangur t.a.m. frjálsíþrótta-
fólksins Jóns Arnars Magnússonar, Þóreyjar Eddu Elísdóttur og Völu
Flosadóttur, sundkappans Örns Arnarsonar, dansparsins Adams Reeve og
Karenar Björgvinsdóttur, handboltalandsliðs karla og U-18 ára liðsins svo
einhver dæmi séu nefnd hefur vakið mikla athygli á undanförnum árum.
Það sem ber kannski hæst um þessar mundir er árangur U-17 ára liðs
karla og U-19 liðs kvenna í knattspyrnu en bæði liðin komust nýlega áfram
úr sínum undanriðlum fyrir EM. Þá hefur árangur A-landsliðs karla og
kvenna í undanriðlum EM í knattspyrnu ekki farið framhjá neinum. Stúlk-
urnar leiða um þessar mundir sinn riðil og strákarnir áttu í fyrsta skipti
möguleika að vinna sér þátttökurétt í úrslitakeppni Evrópumótsins sem
fram fer í Portúgal næsta sumar en töpuðu því miður fyrir Þýskalandi í
síðasta leik. Skinfaxi sá ástæðu til að ræða við landsliðsþjálfara A-liðanna
Loga Ólafsson og Helenu Ólafsdóttur um landsliðin og íslenska boltann.
Líflegt og málefnalegt þing
Sambandsþing UMFÍ, það 43 í röðinni, var haldið á Sauðárkróki helgina
19. og 20. október. Þingið var líflegt og málefnalegt en hart var tekist á um
margar tillögur sem lágu fyrir þinginu enda mörg stórmál á dagskrá. Björn
B. Jónsson formaður UMFÍ fékk einróma kosningu í formannskjörinu og
Skinfaxi lagði fyrir hann nokkrar spurningar að þingi loknu.
Landsmótið 8.-11. júlí 2004 á Sauðárkróki
Annars ber Landsmótið á Sauðárkróki hæst í blaðinu. Undirbúningur er í
fullum gangi og er eftirvæntingin mikil fyrir mótið í Skagafirði. Nýr og glæsi-
legur íþróttaleikvangur verður tekinn í notkun og margar aðrar framkvæm-
dir eru í fullum gangi. Sauðárkrókur verður enn betri bær að móti loknu
eins og Ársæll Guðmundsson sveitarstjóri í Skagafirði tekur fram í viðtali
við Skinfaxa en Skinfaxi gerði sér ferð á Krókinn á dögunum og hitti þar
nokkra valinkunna kappa sem koma að undirbúningi mótsins.
Forystumenn UMFÍ á ferð um landið
Forystumenn UMFÍ ætla að gera sér ferð um landið í vetur og er
tilgangurinn að komast í meiri snertingu við og fylgjast með innra starfi
héraðssambanda og félaga innan UMFÍ. Rætt verður óformlega við
forystumenn héraðssambanda um starfið og einnig er ætlunin að hitta
fulltrúa sveitarstjórna í sveitarfélögunum til að leggja áherslu á það mikla
starf sem unnið er innan UMFÍ og fara yfir aðkomu sveitarfélaga að rekstri
íþrótta- og ungmennafélaga í viðkomandi sveitarfélagi.
Með kveðju
Valdimar Tryggvi Kristófersson
Það er Arndís María Einarsdóttir hlaupakona úr UMF Hfl
Tindastóli sem prýðir forsíðuna og að baki hennar
glittir í fjallið Tindastól. Það var Sigurjón Ragnar, w
ljósmyndari Skinfaxa, sem tók myndirnar af Arndísi l , ^
og flestum öðrum viðmælendum blaðsins
Skinfaxi
RITSTJÓRI
Valdimar Tryggvi Kristófersson
LJÓSMyNDIR
Sigurjón Ragnar og Páll Guðmundsson
UMBROT OG HÖNNUN
Valdimar Tryggvi Kristófersson
FRAMKVÆMDASTJÓRI
Sæmundur Runólfsson
ÁByRGÐARMAÐU R
Björn B. Jónsson
AUGLýSINGAR Öflun
PRENTUN Svansprent
PRÓFARKALESTUR Aðalbjörg Karlsdóttir
PÖKKUN Ás Vinnustofa
RITSTJÓRN
Anna R. Möller
Vilmar Pétursson
Sigurlaug Ragnarsdóttir
Birgir Gunnlaugsson
Ester Jónsdóttir
STJÓRN UMFÍ
Björn B. Jónsson
Helga Guðjónsdóttir
Anna R. Möller
Ásdís Helga Bjarnadóttir
Birgir Gunnlaugsson
Björn Ármann Ólafsson
Hringur Hreinsson
Einar Jón Geirsson
Einar Haraldsson
Ingi Þór Ágústsson
Jóhann Tryggvason UÍA
SKRIFSTOFA SKINFAXA
ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ UMFÍ
FELLSMÚLA 26, 108 REyKJAVÍK
SÍMI: 568-2929, FAX: 568-2935
NETFANG: umfi@umfi.is
HEIMASÍÐA: www.umfi.is
Ársáskrift af Skinfaxa kostar 1.796.- krónur
Skinfaxi kemur út 4-5 sinnum á ári.