Skinfaxi - 01.10.2003, Blaðsíða 15
Landsmót IMFÍ á Sauðárkróki 2oo4
væntanlega eftir að fá meira en umsókn
um styrk er hjá menntamálaráðherra að
upphæð 27 milljónir til viðbótar. Það er því
gríðarlegur kostnaður við þetta. Nokkrum
vikum fyrir landsmótið munum við síðan
taka verulega til hjá okkur í Skagafirði t.d.
laga aðkomuna á Sauðárkróki, margir
íbúarnir eru byrjaðir að snyrta húsin hjá sér
og mála. Ég ætla t.d. að mála mitt hús,“
segir hann hálf skömmustulega eins og
það hafi lengið staðið til. ,,Landsmótið hef-
ur mikil og jákvæð áhrif á allt umhverfið hér
í Skagafirði,“ segir Ársæll.
Standa á meðal þeirra fremstu
Eigið þið ekki eftir að standa nokkuð
framarlega á landsvísu hvað varðar
aðstöðu fyrir íþróttafólk eftir að öllum
þessum framkvæmdum líkur? ,,Jú, ég tel
að við munum standa einna fremst á
landinu. Reykjavík er náttúrulega með alla
sína aðstöðu eins og allir vita en þar fyrir
utan stöndum við ábyggilega
meðal þeirra fremstu."
Þetta verður því mikilvægt
fyrir allt íþróttalíf í Skaga-
firði? ,,Já, og fyrir íþróttalífið
á Norðurlandi almennt því
við verðum hér með völl sem
stenst allar kröfur. Það sem
okkur kemur til með að van-
ta er stúka þegar Tindastóll
kemst í efstu deild í fótbolt-
anum.“
Hefur sveitarstjórnin kom-
ið að undirbúningi lands-
mótsins með einhverjum
öðrum hætti en eingöngu
framkvæmdunum? ,,Já, við
erum með bein tengsl bæði
inn í framkvæmdanefnd
landsmótsins sem sér um
uppbyggingu mannvirkja og
inn í landsmótsnefndina sem sér um
mótshaldið og skipulagningu dagskrári-
nnar. Við erum því vel tengdir og hérna á
sér stað einstaklega góð teymisvinna. Það
eru margir sem leggja sitt af mörkum til að
gera þetta mót að veruleika og samstarfið
hefur verið einstaklega gott og skemmti-
legt.“
Á Sauðárkróki verða allar kjöraðstæður
til að halda glæsilegt landsmót og óhætt
er að segja að staðurinn sé hentugur til
landsmótshalds þar sem staðsetningin
er góð. ,,Já, það er rétt. Það eru innan við
300 kílómetrar frá Reykjavík til Sauðár-
króks og því ekki langt fyrir íbúa á höfuð-
borgasvæðinu t.a.m. að mæta á Krókinn.
Við gerum ráð fyrir 14-16 þúsund manns en
það búa rúmlega 4500 manns í Skagafirði
og rúmlega 2500 af þeim á Sauðárkróki.
Þá er vítt til veggja hér í sveit og við getum
með góðu móti tekið vel á móti þessum
fjölda."
Sérstakur fulltrúi semur um veðrið
Þannig að hér verður allt til reiðu þegar
að landsmóti kemur? ,,Já, en að vísu má
segja að það sé einn óvissuþáttur sem
verið er að vinna i. Við höfum fengið
forseta sveitarstjórnar, sr. Gísla Gunnars-
son prest í Glaumbæ, til að semja um gott
veður á meðan á landsmóti stendur," segir
Ársæll brosandi. „Veðrið skiptir þó ekki öllu
máli. Aðalatriðið er að vel sé staðið að hlut-
unum og aðstaðan góð þá skemmtir fólk
sér vel.“
Það má reikna með að gestir á lands-
mótinu verði ekki allir þátttakendur á
vel og hvað sé hérna í boði. Við ætlum að
taka vel á móti gestum, láta fólkinu líða vel
og bjóða upp á allt það besta, sólskin og
söng.“
Koma fyrr og vera lengur
Það er greinilega af nógu að taka. Þið
hvetjið því væntanlega landsmótsgesti
til að koma fyrr eða dvelja lengur til að
upplifa alla þá möguleika sem hér eru til
staðar? ,,Já, við hvetjum bara alla til að
koma fyrr og vera lengur. Það eru allir
velkomnir að dvelja eins lengi og þeir vilja
og njóta þess sem á boðstólum er í
Skagafirði."
Þú talaðir um hér að framan að lands-
mótið mundi kosta ykkur einhvern skild-
ing. Hverjar eru væntingar ykkar til
mótsins til skemmri og lengri tíma litið?
„Til skemmri tíma horfum við í allt þetta fólk
sem mun koma til okkar á meðan mótinu
landsmótinu heldur komi til að fylgjast
með og jafnvel að skoða sig um í
Skagafirði. Hvað hefur Skagafjörður
upp á að bjóða? „Það er margt t.d. eru
söfn um allan Skagafjörð eins og Vestur-
fararsetrið, Hólar, Glaumbær og Sam-
gönguminjasafnið. Þeir sem vilja komast í
ævintýri geta farið í siglingu niður Jökuls-
árnar, farið í sjóstangaveiði, farið í Eyja-
siglingar sem eru mjög vinsælar núna þar
sem siglt er út í eyjar og farið í land annað
hvort í Drangey eða Málmey og grillað. Þá
er hægt að fara í fjallgöngu, hér eru hesta-
leigur og þá er golfið alltaf vinsælt svo
eitthvað sé nefnt. Það ættu því allir að finna
eitthvað við sitt hæfi. Meðan á mótinu
stendur ætlum við að kynna Skagafjörðinn
stendur. Við ætlum að taka vel á móti því
og kynna því menningu, sögu og mögu-
leika Skagafjarðar. Til lengri tíma litið á
þessi heimsókn landsmótsgesta vonandi
eftir að skila sér í tíðari ferðum til Skaga-
fjarðar. Þá mun þessi frábæra íþróttaað-
staða sem búið er að byggja verða okkur til
framdráttar og vonandi hvetja unga jafnt
sem aldna hérna í Skagafirði til að hreyfa
sig meira. Ég tel að það besta fyrir þroska
ungs fólks sé að kynnast tónlist og íþróttum
og um leið besta forvörnin. Ég efast ekki
um að Skagafjörður verði enn betri bær
eftir þetta landsmót enda hefur verið mikill
ungmennafélags andi í allri þessari
uppbyggingu."