Skinfaxi - 01.10.2003, Blaðsíða 28
Helena Ölafsdóttir landsliðsþjálfari
Hvernig meturðu framhaldið miðað við
stöðu liðsins í dag?
,,Ég er nokkuð sátt með flesta hluti fram að
þessu. Það er kannski einna mest svekk-
jandi að hafa ekki náð þremur stigum í
Rússlandi því við áttum alla möguleika á
því og værum þá í enn betri stöðu nú. Við
erum samt í góðri stöðu í riðlinum og ég tel
okkur eiga góða möguleika að komast í
umspilið. Við eigum eftir að leika á móti
Rússlandi og Frakklandi hérna heima sem
eru erfiðir leikir en ef við náum að skapa
góða stemmningu fyrir þessa leiki þá er allt
hægt.“
Eldri stúlkurnar miðla af reynslu sinni
Eins og þú segir þá verða töluverðar
breytingar á liðinu þegar þú tekur við
þar sem nokkrir fastamenn liðsins detta
út. Þú tekur í staðinn ungar stelpur inn í
liðið. Varstu ekkert smeyk við þessar
breytingar?
,,Nei, alls ekki. Þessar stúlkur hafa verið að
standa sig mjög vel og við eigum orðið fullt
af góðum leikmönnum. Þá eru enn ákveð-
nir leikmenn í liðinu sem hafa farið í gegn-
um slíkar keppnir áður og þekkja vel til.
Þær hafa vérið duglegar að miðla af
reynslu sinni til þeirra ungu sem hefur skipt
miklu máli fyrir liðið. Þetta er stelpur sem
eru miklir leiðtogar og geta því gefið mikið
af sér eins og t.d. Ásthildur Helgadóttir."
Það fer greinilega ekki á milli máia að
kvennaknattspyrnan á íslandi er á mikilli
uppleið t.d. var U-19 ára liðið að gera
góða hluti í undankeppni EM í Slóvakíu.
Er mikið af ungum stelpum að koma
upp?
,,Já, það er engin spurning. Við eigum
orðið sterka árganga eins og eru í U-19 ára
liðinu. Það þarf bara að hlúa að þessum
stelpum og þá geta þær ekki annað en
bætt sig.“
það er miklu meiri
metnaður í kvenna-
boltanum en áður. Þjálfun
stúlknanna er orðin miklu
betri, þær æfa orðið oftar í
viku og eru tilbúnar að
leggja miklu meira á sig en
áður. Þetta hefur leitt af sér
fleiri iðkendur, meiri sam-
keppni og fleiri góða leik-
menn.
Það virðist vera miklu meiri metnaður í
kvennaboltanum í dag heldur en þegar
þú varst sjálf að koma upp úr yngri
flokkunum fyrir rúmum áratug?
,,Já, það er miklu meiri metnaður í kvenna-
boltanum en áður. Þjálfun stúlknanna er
orðin miklu betri, þær æfa orðið oftar í viku
og eru tilbúnar að leggja miklu meira á sig
en áður. Þetta hefur leitt af sér fleiri iðk-
endur, meiri samkeppni og fleiri góða leik-
menn. Það þarf mikla vinnu til að verða
betri og við eigum enn nokkuð í land. Okkur
vantar t.d. styrk og hraða miðað við þær
bestu.“
Félagslið er eins og barnið manns
Þú hefur þjálfað Valsliðið undanfarin tvö
ár og seinna árið samhliða þjálfun
kvennalandsliðsins. Er mikill munur að
þjáifa landsliðið og félagslið?
,,Já, það er mikill munur. Félagslið er eins
og barnið manns ef svo má að orði komast.
Þú er hugsandi um það dag og nótt allan
ársins hring og umgengst leikmenn liðsins
á hverjum degi svo gott sem. Aftur á móti
kemur maður bara að landsliðinu þremur
eða fjórum dögum fyrir leik. Þess á milli
fylgist maður með stúlkunum með sínu
félagsliði og manni verður meira annt um
að allt sé í góðu hjá liðunum t.d. hvað
varðar þjálfunina."
Þú ákvaðst að hætta að þjálfa Valsliðið
eftir þetta tímabil. Hvernig stóð á því?
„Ástæðan var sú að ég var með allt of
mikið á minni könnu. Ég var íþróttakennari,
þjálfari Vals og þjálfari landsliðsins auk
þess á ég dreng heima. Þetta fór því ekki
tai te ' 1 } i.'9|jj sr ^ i’si: Isé
II . W íáS/ * *'*- ? í J é'
í í 6 í i'’ J m o I
1 w