Skinfaxi - 01.10.2003, Blaðsíða 21
Logi Ólafsson landsliðsþjálfari íslands
hentaði þessum mannskap sem við
höfðum í höndunum. Það var eins og það
væri einhver hræðsla í liðinu og við þurftum
því að gefa þeim traust og auka sjálfstraust
þeirra með því að láta þá hafa trú á þeim
hlutum sem við settum upp. Leikmenn voru
heldur kannski ekki alveg vissir hvernig þeir
áttu að höndla sína stöðu þ.e.a.s. hvert
hlutverk þeirra væri. Við fórum því nánar í
hlutverk hvers og eins út frá því skipulagi
sem við lögðum upp með.“
Kasta ekki rýrð á störf Atla
Mátu þið þá þannig að það væri komið
neikvætt andrúmsloft innan hópsins og
skipulag liðsins ekki nógu gott?
,,í sjálfu sér vorum við ekkert að velta okkur
upp úr því. Við vildum horfa fram á veginn
og það sem hafði gerst var að baki. Þannig
að við einbeittum okkur frekar að því að
boða það sem við stæðum fyrir. Ég og Ás-
geir berum báðir mikla virðingu fyrir Atla
sem þjálfara þannig að við erum ekki að
kasta rýrð á það sem hann hafði gert.
Þannig að við vildum horfa fram á veginn.
Gera mönnum grein fyrir því hvert hlutverk
þeirra er innan hópsins hvar sem þeir len-
da, hvort það sé innan liðsins eða bekkn-
um.“
Nú gerðuð þið ekki miklar breytingar á
liðinu þegar þið tókuð við og kjarninn er
alveg sá sami - hvernig útskýrir þá mun-
inn á leik liðsins eftir að þið tókuð við?
„Staðreyndin er sú að við þurfum fleiri
afburðaleikmenn. Hins vegar komu nokkrir
menn inn sem höfðu ekki verið fastir í hópn-
um eins og Þórður Guðjónsson, Tryggvi
Guðmundsson, Indriði Sigurðsson og Helgi
Sigurðsson. Munurinn felst fyrst og fremst
í því að við höfum fundið leikkerfi sem hent-
ar okkur. Við höfum náð að skapa jákvætt
andrúmsloft innan hópsins sem hefur færst
út í þjóðfélagið með sigrum."
Hverjar voru væntingar ykkar til liðsins
þegar þið tókuð við?
,,l sjálfu sér horfðum við á þrjá leiki þ.e.a.s.
tvo á móti Færeyingum og einn á móti Lit-
háen og síðan þurftum við að sjá til hvort
það væri kominn annar maður að starfinu
eftir þessa þrjá leiki. Það var skilningur
okkur að það yrði ekki skipt um þjálfara fyrr
en eftir þriðja leikinn. Markmið okkar var að
ná hámarki eða níu stigum en ásættanlegur
árangur væri sjö stig. Síðan vorum við klárir
á því ef okkur tækist að vinna þessa þrjá
leiki þá værum við komnir með það mikið
sjálfstraust að við gætum gert Þjóðverjum
skráveifu hérna á heimavelli."
Nú er undirbúningur landsliðsþjálfara
oft af skornum skammti þar sem þeir
hafa leikmenn ekki meira en í 3-5 daga
fyrir leik. Um hvað snýst undirbúningur-
inn?
„Megininntakið í svona stuttum undirbún-
ingi er að fara yfir leikskipulagið og stilla
spennustigið hjá drengjunum. Þá reynum
við alltaf að gera eitthvað óvanalegt með
hópnum til að halda jákvæðu andrúmslofti
innan hans og erum ekki að íþyngja þeim
með of mörgum æfingum."
Viö vildum horfa fram á
veginn og þaö sem hafði
gerst var að baki. Þannig að
við einbeittum okkur frekar
að því að boða það sem við
stæðum fyrir. Ég og Ásgeir
berum báðir mikla virðingu
fyrir Atla sem þjálfara
þannig að við erum ekki að
kasta rýrð á það sem hann
hafði gert.
Lítháar örlagavaldar Loga
Þið hafið náð frábærun árangri og upp-
haflegur tveggja leikja samningur er
orðinn tveggja ára samningur. Hefði
þetta orðið raunin ef Tryggvi Guð-
mundsson hefði ekki skorað sigurmark-
ið á móti Færeyingum á 92. mínútu í
ykkar fyrsta leik með liðinu?
,,Það er vissulega stutt á milli en eins og ég
sagði áðan þá settum við okkur þau mark-
mið að það væri ásættanlegt að koma út úr
fyrstu þremur leikjunum með sjö stig. Við
hefðum því verið búnir að setja okkur í þá
stöðu að við þyrftum að vinna seinni tvo
leikina til að standast þau markmið. Við
hefðum því haldið áfram okkar vinnu. En
það er stutt á milli hláturs og gráts í knatt-
spyrnunni. Þegar ég stjórnaði landsliðinu
síðast varð ég að yfirgefa starfið eftir jafn-
tefli við Litháa hérna heima og þeir voru því
kannski mínir örlagavaldar á þeim tíma en
eftir að hafa sigrað þá núna f júní þá er það
kannski þeim að þakka að ég hef verið
ráðinn áfram til tveggja ára.“
Hvernig var að koma inn í þetta aftur
núna - er umhverfið breytt frá því þú
stýrðir landsliðinu síðast?
,,Já, það má segja það. Þegar ég var með
liðið '96-'97 þá var aðeins einn leikmaður
að leika með úrvalsdeildarliði í sterkustu
deildum Evrópu og það var Þórður Guð-
jónsson sem var ekki í liðinu hjá þeim á
þeim tíma. Aðrir voru að leika í neðri
deildum í Evrópu eða hérna heima. í dag
eru aðeins 1-3 leikmenn sem leika hérna
heima en aðrir koma frá sterkum liðum í
Evrópu. Hvað þetta snertir hefur orðið mikill
munur frá mínu fyrra tímabili með lands-
liðið. Leikmennirnir eru því orðnir betri og
ég er vonandi orðinn betri þjálfari en ég var
þá. Ég ef hlotið mikla reynslu síðan og vera
mín í Noregi hefur hjálpað mér mjög mikið
að sjá með berum augum hvernig menn
sem hafa þetta að aðalatvinnu vinna.“
Þannig að liðið í dag er sterkara heldur
en '96-'97?
,,Já, ég tel að liðið sjálft sér sterkara í dag.
Það voru miklar hetjur í liðinu þá en við vor-
um kannski ekki með nógu marga góða
leikmenn. Hins vegar stöndum við kannski
á þeim tímamótum í dag að erfiðara er að
komast erlendis. Það eru minni peningar í
dag. Nú eru margir af þessum atvinnu-
mönnum að koma heim þar sem pening-
arnir eru að minnka erlendis."
Eru þið sáttir við spilamennskuna hjá
liðinu fram að þessu?
,,Við erum sáttir við sigurinn á móti Fær-
eyjum hérna heima. Við vorum ekki góðir í
þeim leik en sköpuðum okkur nokkur
marktækifæri á meðan Færeyingar sköp-
uðu sér nánast ekkert. Við vorum virkilega
ánægðir með leikinn á móti Litháen en
spilamennskan í Færeyjum var ekki góð og
þar voru við heppnir að fara með sigur af
hólmi miðað við hvernig við vorum að leika.
Það er þó einkenni góðra liða að geta leikið
illa en unnið samt. Það var síðan mikil
breyting á mönnum í leiknum á móti Þýska-
landi hér heima þar sem við sköpuðum
okkur fullt af marktækifærum. Svo er leik-
urinn á móti Þjóðverjum úti sennilega fólki
enn í fersku minrii."
Besti árangur landsliðsins
Voru það mikil vonbrigði að tapa á móti
Þjóðverjum úti og glata þar með tæki-
færinu að komast í úrslitakeppni EM?
„Vissulega eru það vonbrigði. Við hefðum
viljað fá mark Hermanns dæmt löglegt og
þá hefði verið allt annar leikur upp á ten-
ingnum. Þess í stað þurftum við að taka
áhættu. Færa leikmenn framar á völlinn og
freistast til þess að skora mörk. Það gekk
ekki en þetta er besti árangur sem ísland
hefur náð og liðið eygði möguleika allt fram
í síðari hálfleik í síðustu umferð undan-
keppninnnar. Færin sem fóru forgörðum í
leiknum á móti Þýskalandi hér heima vega
þungt þegar farið er yfir leikina."