Skinfaxi - 01.10.2003, Qupperneq 4
Björn B. Jónsson formaður UMPÍ
Sambandsþing Ungmennafélags íslands, það 43. í röð-
inni, fór fram á Sauðárkróki helgina 18. og 19. október.
Mörg stórmál lágu fyrir þinginu þar sem tekist var á um
50 þingtillögur af málefnalegum hætti. Björn B. Jónsson
var einróma endurkjörinn formaður UMFÍ en lengi vel
stefndi í að Valdimar Leó Friðriksson formaður UMSK
mundi bjóða sig fram á móti Birni. Valdimar dró þá mót-
framboð sitt til baka á þinginu.
Enn öflugri grasrótarsamtök í framtíðinni
- segir Björn B. Jónsson formaður UMFÍ ef að inngöngu íþróttabandalaganna verður
Ánægður með traustið
En hvernig túlkar Björn þetta fyrirhug-
aða mótframboð Valdimars? „Það er
erfitt fyrir mig að túlka þetta mótframboð.
Valdimar Leó kom aldrei fram með mál-
efnaleg rök fyrir framboði sínu og þar að
auki virtust vera mjög fáir sem studdu hann
innan hans eigin raða sem segir sína sögu
um framboðið. Ef ég á að vera hreinskilinn
þá var ég ekki upptekinn af mótframboðinu
og mun vonandi hér eftir sem hingað til
eiga gott samstarf við UMSK fólk, enda
eigum við í þeim hópi marga af okkar bestu
ungmennafélögum."
Þú varst einróma endurkjörinn formað-
ur UMFÍ. Þú hlýtur að vera ánægður
með það traust sem forystumenn Hér-
aðs- og Ungmennasambanda sýna þér?
„Ég er mjög ánægður með það traust sem
hreyfingin sýndi mér í kosningunni. Það er
ekki ónýtt að fá góða kosningu á þingi þar
sem lagt var upp með miklar breytingar á
hreyfingunni. Ég túlka þessa kosningu sem
viljayfirlýsingu á áframahaldandi innri skoð-
um á UMFl' og framgang hreyfingarinnar."
Náðust niðurstöður um allar 50 tillög-
urnar sem lágu fyrir þinginu og var hart
tekist á um einhverjar þeirra og skriðu
einhverjar í gegn á naumum meirihluta?
„Það náðist ekki niðurstaða um allar tillögur
sem lágu fyrir þinginu. Sumar voru felldar í
þingnefndum, aðrar náðu ekki fram að gan-
ga eftir umræður og atkvæðagreiðslu á
þinginu sjálfu. Mest var tekist á um laga-
breytingarnar og Lottóreglugerðina. Rétt er
að geta þess að megin þorri tillagna fór í
gegn, einstaka með naumum meirihluta, en
nær allar þær mikilvægustu sem varðar
framtíð UMFÍ voru samþykktar."
Ég er ekki hræddur um þaö
að við séum að grafa eigin
gröf. Þvert á móti tel ég að
við eflumst og styrkjumst
með þessu.
Það voru margar spennandi tillögur sem
lágu fyrir á þinginu m.a. var samþykkt
að veita íþróttabandalagi Reykjavíkur
og íþróttabandalagi Hafnarfjarðar inn-
göngu í UMFÍ að uppfylltum skilyrðum
hreyfingarinnar. Þessi umræða hefur
verið lengi á borðinu en hverju mun
þessi tillaga breyta fyrir UMFÍ og hvaða
skilyrði eru það sem fyrrgreind íþrótta-
bandalög þurfa að uppfylla til að fá
inngöngu? „Það er Ijóst að þessi sam-
þykkt er ein af stærri samþykktum, ef ekki
sú stærsta, sem hefur verið borin upp á
okkar þingum allt frá stofnun hreyfingar-
innar. Það er ekki þar með sagt að banda-
lögin séu komin inn í UMFÍ. Þau eiga eftir
að endurskoða lög sín og samræma þau
nýsamþykktum lögum UMFÍ. Eins er inn-
koma þeirra í hreyfinguna háð samkomu-
lagi ISI og UMFI um lottóskiptinguna. Til að
svara spurningu þinni enn frekar þá má
hugsa sér að önnur íþróttabandalög eigi
greiðan aðgang að UMFÍ eftir þessa sam-
þykkt. Það má því búast við enn öflugri
grasrótarsamtökum í framtíðinni ef þetta
gengur allt eftir.“
Nú hefur það svon óbeint legið í loftinu
að íþróttabandalögin hafi sótt um
inngöngu í UMFÍ með það að markmiði
að fá völd innan UMFÍ til að sameina
UMFÍ og ÍSÍ eða einfaldlega strika yfir
UMFÍ. Er ungmennahreyfingin e.t.v. að
grafa sína eigin gröf til lengri tíma litið
með því að samþykkja þessa tillögu þótt
ýmis skilyrði séu sett fram um inngöngu
íþróttabandalaganna? „Ég er ekki hrædd-
ur um það að við séum að grafa eigin gröf.
Þvert á móti tel ég að við eflumst og styrk-
jumst með þessu. Það hefur lengi blundað
í okkur að fá tækifæri til að vinna með fleir-
um að ungmennafélagshugsjóninni og sá
möguleiki mun skapast nú ef íþróttabanda-
lögin koma inn.“
Samþykkt var að Landsmót UMFÍ verði
opin öllum - hver er ástæðan og hvaða
þýðingu hefur þetta fyrir landsmótin?
„Ástæðan er margþætt. Það hefur lengi
verið talað um það að allir eigi að hafa jafn-
an aðgang að Landsmótunum hjá okkur,
hvort sem þeir eru í ungmennafélagi eða
ekki. Þessi rök hafa orðið ofaná. Það má
reikna með að þátttakan eigi eftir að aukast