Skinfaxi - 01.10.2003, Page 5
Björn. B. Jónsson formaður UMPÍ
við þessa samþykkt og eins hitt að í vissum
greinum má búast við hreinni landskeppni
þar sem allir okkar bestu einstaklingar taka
þátt.“
Þá verður unglingalandsmót UMFÍ hald-
ið um hverja verslunarmannahelgi. Hver
eru rökin fyrir að halda mótið árlega?
„ULM-mótin hafa sýnt það að þau eru mjög
öflug í forvarnarstarfinu. Margir foreldrar,
þingmenn, æskulýðsfulltrúar o.fl. hafa hvatt
okkur til að halda þessi mót árlega og hafa
þennan valkost um verslunarmannahelgina
þar sem allir geti verið saman í starfi og
leik. Tillagan var nokkuð mikið rædd á þing-
inu og var þar að auki búin að fá mikla
umfjöllun fyrir þingið úti í hreyfingunni. Það
voru ekki allir á einu máli um þessa niður-
stöðu, en mikill meirihluti studdi hana.“
Samþykkt var að halda áfram rekstri
þjónustumiðstöðva UMFÍ á landsbyggð-
inni og byggja upp nýja þjónustumið-
stöð í Þrastarlundi. Hvaða þýðingu hafa
þjónustumiðstöðvarnar fyrir hreyfing-
una og hvernig verður staðið að upp-
byggingunni í Þrastarlundi? „Þjónustu-
miðstöðvarnar hafa verið að sanna sig
smátt og smátt. Ný stjórn UMFÍ á eftir að
móta starf þeirra enn frekar eftir samþykkt
þingsins og taka ákvarðanir um áframhald-
andi uppbyggingu. Ég mun því bíða með
frekari yfirlýsingar fram yfir næsta stjórnar-
fund UMFI varðandi þetta mál.“
I Þrastarlundi er hugmyndin að byggja
upp í vetur nýjan þjónustuskála. Hann
verður staðsettur rétt hjá gamla skálanum
sem verður síðan látinn víkja fyrir þeim
nýja. Það mun gerast að öllu óbreyttu
næsta vor. Nýi skálinn verður rúmlega fjög-
ur hundruð fermetrar að stærð og vonandi
Ungmennafélagshreyfingunni til sóma í alla
staði.“
Stjórn UMFÍ mun leita allra leiða til að
útvega aukið fjármagn til að festa starf-
semi þjónustumiðstöðvanna enn frekar
í sessi. Eru þjónustumiðstöðvarnar
þungar í rekstri? „Nei, alls ekki. Hug-
myndin er að auka hlut þeirra enn frekar en
nú er og það kostar aukið fjármagn."
Á þinginu var skorað á ríki og sveit-
arfélög að tryggja öldruðum aðstöðu til
íþróttaiðkunar. Er hún af skornum
skammti og hvernig ætlið þið að fylgja
þessari tillögu eftir? „Við höfum verið að
brýna fyrir sveitarfélögum og öðrum sem
hafa yfir að ráða íþróttamannvirkjum að sjá
til þess að aldraðir geti stundað líkamsrækt
jafns við aðra borgara þessa lands.
Það er mikilvægt að allir hafi tækifæri til
að stunda líkamsrækt og ekki síst þeir sem
eru farnir að reskjast og þurfa jafnvel að
hafa meira fyrir því að halda líkamanum í
formi en þeir sem yngri eru. Holl hreyfing á
að vera lífsstíll allra, en þá þarf aðstaðan
líka að vera til staðar.“
í fararbroddi í umhverfismálum
UMFÍ er annt um náttúru landsins og
hefur allt frá upphafi unnið ötullega að
umhverfismálum. Nú lá tillaga fyrir á
þinginu að UMFÍ ynni að útgáfu fræðslu-
efnis í umhverfismálum. Er verið að
skerpa eitthvað á umhverfismálunum?
„UMFÍ hefur oft á tíðum verið í fararbroddi í
umhverfismálum. Það viljum við vera áfram
og munum m.a. leitast við gefa út fræðandi
efni fyrir ungmennafélaga og allan almenn-
ing um leið. Það verður hlutverk umhverfis-
sviðs UMFÍ að leiða þessa vinnu og móta.
Ég vil nefna annað þessu tengt. Á þinginu
var samþykkt reglugerð um umhverfissjóð
sem er tengdur minningu Pálma Gíslason-
ar fyrrverandi formanns UMFÍ. Auk þess
var samþykkt að hreyfingin setti næstu árin
félagsgjöld, sem að öðru jöfnu rynnu beint
í sjóði UMFÍ, óskertan í þennan nýja sjóð.
Það er því bjartir tímar framundan hjá þeim
sem vilja hag umhverfisins sem mestan
innan okkar vébanda.
Samþykkt var að stofna ungmennaráð
15-25 ára - Hvert verður hlutverk ung-
mennaráðsins innan UMFÍ? „Ungmenna-
ráðið verður m.a. ráðgefandi fyrir stjórn
UMFÍ. Markmið ráðsins verður að fela
ungu fólki aukna ábyrgð og gefa því aukið
tækifæri að taka ákvarðanir um mótun
ungmennafélagshreyfingarinnar."
UMFÍ mun árlega veita „Félagsmála-
verðlaun UMFÍ.“ Hvað þarf að gera til að
hljóta þessi verðlaun og hvað felst í
þeim? „Það verða samdar reglur um þessi
verðlaun sem verða síðan notaðar sem
úthlutunarreglur. Verðlaunin verða að hluta
til hvatningarverðlaun til þeirra sem hafa
metnað fyrir að standa sig vel fyrir sitt félag,
en að öðru leiti vísa ég til reglugerðarinnar
þegar hún verður tilbúin sem verður m.a.
birt í Skinfaxa.."
Ertu ánægður með þingið og er bjart
framundan hjá Ungmennafélagi ís-
lands? „Ég er mjög ánægður með þingið
og ég verð að játa að það var mjög í mínum
anda. Vinnusamt og tekist á um einstök
mál en komist að niðurstöðu á lýðræðis-
legan hátt, en þingið var fyrst og síðast
skemmtilegt. Þannig á það að vera.
Nú er að spila úr þeim spilum sem hafa
verið gefin til næstu tveggja ára. Það kom
mikið af nýju kraftmiklu fólki inn í stjórn
UMFÍ í viðbót við dugmikið fólk sem þar
situr áfram. Það er því ekkert í veginum til
bjartrar framtíðar fyrir Ungmennafélag
íslands."
Á 43. sambandsþingi UMFÍ sem haldið var á
Sauðárkróki um helgina var kjörin ný stjórn til
næstu tveggja ára.
Auk Björns B. Jónssonar voru eftirtaldir kosnir
í stjórn. Helga Guðjónsdóttir HSK, Ásdís Hel-
ga Bjarnadóttir UMSB, Birgir Gunnlaugsson
Fjölni, Anna R. Möller UMSK, Björn Ármann
Ólafsson UÍA og Hringur Hreinsson UMSE.
Þá voru fjórir kosnir í varastjórn: Jóhann
Tryggvason UíA, Ingi Þór Ágústsson HSV,
Einar Karl Haraldsson Keflavík og Einar Jón
Geirsson UDN.
Á fyrsta fundi nýrrar stjórnar sem haldinn var
strax að loknu þingi skipaði formaður í em-
bætti stjórnar. Helga Guðjónsdóttir varafor-
maður UMFÍ, Björn Ármann Ólafsson gjald-
keri og Ásdís Helga Bjarnadóttir ritari.
Ný stjórn UMFI