Skinfaxi - 01.10.2003, Page 7
Landsmót UMPÍ á Sauðárkróki 2oo4
Haraldur Þór Jóhannesson hefur gegnt formennsku Ung-
mennasambands Skagafjaröar frá 1999 auk þess sem hann
starfaði sem framkvæmdastjóri sambandsins hálfan daginn í
sumar. Haraldur tók virkan þátt í íþróttum á sínum yngri árum
og hefur alla tíð verið öflugur liðsmaður hinna ýmsu félags-
samtaka auk þess sem hann sat í sveitarstjórn Viðvíkurhrepps
í 12 ár og var hreppstjóri þar um tíma. Það má því með sanni
segja að Haraldur sé mikið félagsmálatröll. Hann hefur að
sjálfsögðu tekið virkan þátt í undirbúningi Landmóts UMFÍ
sem fram fer á Sauðárkróki í júlí á næsta ári og ekki verður
vinnan minni þegar nær dregur að móti. Valdimar Kristófers-
son settist niður með Haraldi á skrifstofu hans og ræddi við
hann um Landsmót UMFÍ. Ekki var þó annað hægt í upphafi
viðtalsins en að spyrja Harald aðeins um íþróttaferil sinn.
Landsmótin eru stórmerkilegt fyrirbæri
- segir Haraldur Þór Jóhannesson formaður UMSS
„Ég keppti mikið í íþróttum sem unglingur og var meðaljón,“ segir
hann nokkuð hógvær. „Ég æfði bara með mínu félagi og lagði
mestu áhersluna á spjótið og kúluna. Ég spriklaði einnig í fótbolta
en hætti áður en ég varð tvítugur. Ég var þó eitthvað með puttana
í starfinu áfrarn."
Og Haraldur spilaði með gömlum og sögufrægum ungmenna-
félögum.
„Ég náð að leika knattspyrnu með þremur ungmennafélögum á
þessum tíma. Hólströndum frá Hofsósi, Hjalta í Hóladal og
Ungmennafélagi Fljótamanna."
Þannig að þú hefur farið kaupum og sölum milli félaga?
„Nei,“ segir hann hlæjandi. „Það var nú ekki svo gott.“
Var svínbeygður á ársþingi UMSS
Þá hefur þú greinilega stefnt að því alla tíð að verða formaður
UMSS og reynt að afla þér fylgis og kynnast sem flestum
félögum innan UMSS með því að skipta grimmt á milli þeirra?
,,Ég ætlaði mér aldrei að verða formaður UMSS og stefndi aldrei á
það,“ segir Haraldur brosandi að spurningunni. „Ég var eiginlega
svínbeygður á ársþingi UMSS 1999 um að taka að mér
formennskuna án þess að ég hefði nokkur töká að segja eitthvað
um það. Ég gerði það fyrir formann hestamannafélagsins hérna á
svæðinu að mæta á þingið og ég var kjörinn formaður án þess að
geta sagt já né nei.“
Þú hefur a.m.k. ílengst í þessu?
„Ég ætlaði að vera hættur þessu en svo kom Landsmótið til okkar
og ég var ekki alveg tilbúinn að hlaupa frá þegar því takmarki var
náð,“ segir Haraldur. „Það var mikill áhugi fyrir því að ég héldi
áfram og fylgdi þessu máli í höfn sem var niðurstaðan og því sit ég
hér enn í dag.“
Þér hefur ekki þótt það spennandi að starfa áfram eftir að
landsmótið var í höfn?
„Jú, að sjálfsögðu. Það eru spennandi tímar framundan hérna á
Króknum vegna landsmótsins og alls undirbúningsins. Ég ætlaði
upphaflega að vera hættur og var búinn að lofa mér annað. Ég var
búinn að taka að mér verkefni fyrir Lions þar sem ég hef starfað í
20 ár. Það var ákveðið fyrir tveimur árum og ég gat ekki skorast
undan skyldu þar og sinni því báðum verkefnunum um þessar
mundir."