Skinfaxi - 01.10.2003, Side 8
Haraldur Jáhannesson formaður UMSS
Þú hefur verið í ungmenna-
félögum alla þín tíð og hefur
því væntanlega tekið þátt eða
fylgst með landsmótum
UMFÍ?
,,Já, ég hef bæði tekið þátt og
fylgst vel með landsmótum
UMFÍ enda mikill áhugamaður
um íþróttir og hef gaman af að
fylgjast með. Ég tók meira segja
þátt í síðasta landmóti sem
fram fór á Egilsstöðum og kom-
st á verðlaunapall. Ég var í
bridssveit UMSS og við lentum
í öðru sæti. Fyrir vikið gat ég
minna fylgst með því sem var
að gerast á landsmótinu því
var innilokaður frá morgni til
kvölds."
Sérstaðan er mikil
Hvernig hefur þú upplifað
landsmót UMFÍ?
,,Ég hef upplifað þau vel.
Landsmótin eru stórmerkilegt
fyrirbæri. Þetta er merkileg há-
tíð og sérstaða þeirra er mikil
t.d. hvað varðar þessar óhefð-
bundnu greinar eins og starfs-
íþróttirnar. Þessar greinar gera
mörgum, sem ekki eru miklir
íþróttafíklar eða afreksmenn í
íþróttum, kleift að taka þátt í
landsmótum UMFÍ. Þarna geta
því allir fengið að vera með,
sem tengir menn saman. Ég sé
það fyrir mér í framtíðinni að
landsmótið verði enn meiri fjöl-
skylduhátíð þar sem minni spá-
menn geta komið og tekið þátt,
ekki endilega sem keppnis-
menn heldur fundið sér eitthvað
til að taka þátt í án þess að það
sé til verðlauna eða stiga.
Landsmót ungmennafélaganna
er þvf allra.“
Landsmótið kom óvænt til
ykkar í febrúar í fyrra þegar
ísafjörður dróg til baka um-
boð sitt til að halda lands-
mótið?
,,Já, það er rétt. Við sóttum
upphaflega um að halda lands-
mótið en fengum ekki umboðið.
Eftir að það lá fyrir var ég búinn
að taka ákvörðun um að hætta
sem formaður UMSS. En svo
var umboðinu skilað frá ísafirði.
Þá fórum við af stað aftur,
sóttum um og fylgdum því eftir.
Við þurftum m.a. að sannfæra
Og sannfæringakraftur ykkar
hefur verið mikill fyrst þið feng-
uð mótið?
,,Já, alla vega trúðu menn því að
það væri farsælast fyrir landsmót-
ið að það yrði haldið á Sauðár-
króki þetta skiptið þótt mörg önn-
ur góð bæjarfélög kæmu til grei-
na.“
Þið hafið ákveðið að vera með
landsmótið eingöngu á Sauð-
árkróki þótt að Skagafjörður
sæki um landsmótið?
,,Já, við ætlum að reyna að vera
með mótshaldið allt á Sauðárkró-
ki. Sauðárkrókur er náttúrulega
sá þéttbýlisstaður í Skagafirði
sem er langstærstur og að auki er
fþróttalífið öflugast í þessum
byggðarkjarna og besta aðstaðan
til slíks mótshalds. Það eru þrír
aðrir byggðarkjarnar í Skagafirði
en þeir eru fámennir svo það kom
ekki annað til greina en að halda
landsmótið á Króknum."
Bæjarbúar jákvæðir í garð
landsmótsins
Það er mikil stemmning fyrir
landsmótinu hjá ykkur og
sveitarstjórninni en hvað með aðra íbúa í Skagafirði?
,,Mér finnst stemmningin vera góð. íbúarnir virðast vera spenntir
fyrir mótinu og það er mjög jákvætt í garð landsmótsins. Það var
reyndar smá togstreita um allar framkvæmdirnar á svæðinu
vegna mótsins en mér sýnist að flestum hafi snúist hugur eftir að
endanleg mynd er að komast á framkvæmdirnar."
Það kostar mikið að halda siíkt mót og ríkið ásamt
sveitarfélaginu kosta stóran hluta af framkvæmdunum.
Einnig er þó mikilvægt að fá öfluga styrktaraðila til að taka
þátt í kostnaðinum. Hvernig hefur gengið að fá fyrirtæki til að
styrkja mótið?
,,Við erum á fullu að vinna í þessu um þessar mundir og höfum
verið í viðræðum við fyrirtæki. Þær viðræður hafa verið jákvæðar
og það stefnir allt i það að aðgengið að fyrirtækjunum verði gott.
Það lítur því út fyrir að nóg verði að styrktaraðilum til að gera
okkur kleift til að halda landsmótið með góðu móti.
Auðvitað kostar heilmikið að halda slíkt mót og hann snýr ekki
eingöngu að því að koma upp svæðinu. Það kemur margt til og
þetta kostar mikla sjálfboðavinnu við mótið sjálft. Þá hafa margir
sjálfboðaliðar komið að framkvæmdunum og hjálpað til við
svæðið. Sjálfboðaliðastarfið er ómetanlegt fyrir okkur og gerir
mótið að veruleika."
Ég sé það fyrir mér
í framtíðinni að
landsmótið verði
enn meiri fjöl-
skylduhátíð þar
sem minni spá-
menn geta komið
og tekið þátt, ekki
endilega sem
keppnismenn
heldur fundið sér
eitthvað til að taka
þátt í án þess að
það sé til verðlauna
eða stiga. Lands-
mót ungmenna-
félaganna er því
allra.
sveitarstjómarmenn í Skagafirði
um ágæti landsmótsins því
ákveðinn kostnaður fylgir slíku
mótshaldi. Auðvitað þurftum við
síðan að sannfæra þá sem út-
hlutuðu mótinu um kosti Sauð-
árkróks til að standa fyrir slíku
móti.“
Hefur gengið vel að fá sjálfboðaliða til starfa?
,,Það hefur gengið ágætlega. Ég finn fyrir áhuga fólks hér í bæ og
það er mjög jákvætt. Ég hef trú á því að við munum hafa mjög gott
aðgengi að fólki til að hjálpa okkur við mótið og skipulagið þegar
nær dregur. Við eigum hér óhemju gott fólk sem styður við íþróttir
hér í Skagafirði og það er alltaf tilbúið að vinna og hjálpa til ef það
mögulega getur og ég tala nú ekki um þegar svona stórviðburður