Skinfaxi - 01.10.2003, Síða 9
Landsmót UMFÍ á Sauðárkráki 2oo4
er. Skagfirðingar eru nú bara þannig gerðir
að þeir standa klárir á sínu og ég hef enga
trú á öðru en við eigum eftir að hrista sjálf-
boðaliða fram úr erminni eins og ekkert sé.
Og það er líka eins gott því án sjálfboðaliða
værum við einskis verðir."
Eykur bæjarvitundina
Landmótið hlýtur að efla bæjarvitund-
ina?
„Já, það er engin spurning. Við horfum á
þetta sem stórt sameiginlegt verkefni sem
gerir mikið fyrir sveitarfélagið og eykur að
auki bæjarvitundina."
Þetta er stórt og mikið verkefni sem þið
hafið ráðist í með landsmótinu. Hefur
mætt mikið á formanninum?
,,Nei, ekki svo. Það er reyndar alltaf eitt-
hvað sem er í gangi. Það er starfandi
landsmótsnefnd sem fundar tvisvar í
mánuði og sit ég í þeirri nefnd. Maður er
náttúrulega alltaf eitthvað að atast í
einhverju tengdu þessu. Hvað svæðið og
framkvæmdirnar varða hef ég sloppið
nokkuð vel. Það er framkvæmdanefnd
starfandi sem sér um skipulag framkvæmd-
anna. Þar sitja tveir frá sveitarfélaginu og
þrír skipaðir af UMFÍ og af sjálfsögðu erum
við í samstarfi við þá.“
Þannig að þú ert innvinklaður í flesta
þætti og hefur vonandi gaman af
þessu?
,,Já, ég hef mjög gaman af þessu. Ég væri
ekki í þessu ef ég hefði ekki gaman af
því.Það er alveg þess virði að standa í
þessu og það þroskar alla að taka þátt í
svona starfi."
Nú skipar íþróttalífið í Skagafirði og
einkum hér á Sauðárkróki sjálfsagt stór-
ann sess í daglegu amstri flestra bæj-
arbúa. Má ekki segja að landsmótið sé
mikill hvalreki fyrir íþróttalífið hér í bæ?
„Jú, það er engin spurning. Forsenda þess
að sækja um landsmótið hér í Skagafirði
var að fara í uppbyggingu íþróttasvæðisins
sem skiptir náttúrulega öllu máli fyrir
aðstöðu íþróttafólks í bænum. Þetta hangir
allt á sömu spýtunni og toppurinn á öllu
saman er að landsmótið skuli verða hérna.
Ég vil meina það að eini möguleikinn til að
byggja upp íþróttasvæðið á Sauðárkróki
var að fá landsmótið til okkar. Við höfum
fengið myndalegan styrk frá ríkinu sem
hjálpar mikið til við uppbygginguna á svæð-
inu.“
Nú eru landsmót UMFÍ stærstu íþrótta-
mótin sem haldin eru á landinu. Það er
væntanlega mikill metnaður í ykkur
UMSS-mönnum að ná sem bestum ár-
angri á heimavelli?
„Auðvitað stefnum við að því. Það væri
óeðlilegt ef við stefndum ekki á sigur á
heimavelli en það eru margir sem gera
kröfur um sigur. Ég á því von á spennandi
og skemmtilegu móti og eflaust verður hart
barist fyrir sigri.“
Verður formaðurinn ekki að taka þátt í
einhverri grein og reyna að sækja stig
fyrir sitt félag?
„Það getur vel verið. Það skýrist þegar nær
dregur en maður er tilbúinn að láta hrella
sig einhversstaðar til að ná í stig,“ segir
hann brosandi.
En hverjar eru væntingar ykkar til móts-
ins?
„Það er engin launung að við væntum
mikils af mótinu. Ég tel að við eigum eftir að
búa að þessu um langa tíð að hafa fengið
mótið hingað í Skagafjörð."
Og mótið verður fjölskylduvænt?
„Já, þetta er ekki bara íþróttamót því hérna
geta gestir fundið sér margt til afþreyginga.
Hérna verður því alsherjar fjölskyldu-
skemmtun og dagskráin í samræmi við
það. Ég býð því alla velkomna á lands-
mótið á Sauðárkróki 2004.“
SVANSPRENT
T3
ro
3
fS
3
T3