Skinfaxi - 01.10.2003, Qupperneq 11
Landsmót UMPÍ á Sauðárkróki 2oo4
Gísli Sigurðsson er einn af okkar fremstu frjálsíþrótta-
þjálfurum. Hann hefur þjálfað margt af okkar besta
frjálsíþróttafólki í gegnum tíðina auk þess sem hann
stýrði íslenska ÓL-liðinu í frjálsum 1996. Það eru
ákveðin tímamót hjá Gísia í ár því 20 ár eru liðinn síðan
hann byrjaði að þjálfa og afmælisgjöfin er ekki af verri
endanum, ný og bætt íþróttaaðstaða á Sauðárkróki, en
Gísli er fæddur og uppalinn á Stóru Ökrum í Skagafirði
og hefur búið á Sauðárkróki frá 1986. Valdimar Kristó-
fersson hitta Gísla að máli sem lá ekki á skoðunum
sínum frekar en fyrri daginn. Hann bíður spenntur eftir
landsmóti UMFÍ á Sauðárkróki og það er ekki laust við
að Gísli sé farinn að finna fyrir áhrifum landsmótsins
enda tekið virkan þátt í undirbúningnum.
Það er ávallt mikil eftirvænting
eftir landsmótum UMFÍ
- segir Gísli Sigurösson frjálsíþróttaþjálfari í Skagafirði
Sterk og rík stemmning á landsmótum UMFÍ
,,Ég hef komið töluvert að undirbúningi landsmótsins. Ég hef t.d.
unnið á vellinum og tekið þátt í uppbyggingu hans. Hér er starfandi
framkvæmdanefnd landsmótsins undir forystu Viggós Jónssonar
sem stjórnar uppbyggingunni, og ég hef unnið mikið með henni.
Ég hef því verið með puttana töluvert í þessu. Það er stórkostlegt
verkefni að fara í þessa uppbyggingu og skiptir miklu máli fyrir allt
íþróttalíf hérna f Skagafirði.“
Gísli missti af landsmótinu á Sauðárkróki 1971 en þá var mikil
blíða í Skagafirði meðan á mótinu stóð og heyskapur í há-
marki. Því var ekki hægt að hleypa ungum og kraftmiklum
vinnumanni á landsmót því nota þurfti krafta hans.
,,Ég var viðstaddur mitt fyrsta landsmót á Akranesi 1975 og hef
síðan ekki látið mig vanta eftir það. Þetta eru formleg mót - sterk
og rík stemmning sem fylgir þeim. Það er ákveðin virðing fyrir mót-
unum og fyrir því sem þar fer fram. Þá er skipulag mótanna gott og
mjög faglega og vel unnið að þeim. Á mótunum er alltaf mikill fjöldi
fólks og samkoman sem slík er öll gegn heil og skemmtileg. Það
er ávallt mikil eftirvænting eftir landsmótum UMFÍ og ég á von á
mikilli stemmningu hérna á Sauðárkróki."
Vegna ákvörðunar sveitarstjórnar Skagafjarðar að halda
landsmótið þá eruð þið að fá eina bestu íþróttaaðstöðu á
landinu. Þetta skiptir ykkur væntanlega miklu máli?
„Aðstaðan breytir gífurlega miklu fyrir okkur og henni ber að
fagna. Aðstaðan gerir það starf sem hér er unnið auðveldara en
breytir kannski ekki miklu að öðru leyti. Mótshald hefur ávallt verið
okkar akkilesarhæll. Við höfum ekki haft aðstöðu til að taka stærri
mót og viðburði. Þannig að nú verður hægt að sýsla á eðlilegan
hátt með íþróttina."
Hvað breytingu hefur þetta fyrir þig og krakkana frá því sem
var áður?
,,Það er mikill munur. Þetta gerir alla vinnu auðveldari. En það er
eitt sem ný aðstaða breytir ekki og það eru viðhorfin sem unnið er
eftir. Og það eru viðhorfin sem leiða til árangurs alveg sama hvern-
ig aðstaðan er. Ég er ekki með þessu að kasta rýrð á þessa glæsi-
legu aðstöðu sem á eftir að nýtast okkur vel og fjölgar vonandi
iðkendum í frjálsum."
Ertu með þessu að segja að árangurinn verði ekkert betri með
bættri aðstöðu?
,,Jú, auðvitað á ég von á því vegna þess að ég reikna með að það