Skinfaxi - 01.10.2003, Blaðsíða 14
Ársæll Guðmundsson sveitarstjdri í Skagafirði
Árið 1998 varð sveitarfélagið Skagafjörður til við
sameinigu 11 sveitarfélaga í Skagafirði. Sauðárkrók-
ur er eitt af þessum sveitarfélögum sem sameinuðust
en þar á bæ fer fram 24. Landsmót UMFÍ 8.-11. júlí á
næsta ári. Mikil uppbygging og lagfæring á íþrótta-
mannvirkjum á sér stað á Sauðárkróki um þessar
mundir vegna landsmótsins. Ársæll Guðmundsson
er sveitarstjóri í Skagafirði og þrátt fyrir að hann sé
mikill íþróttunnandi og hafi á sínum yngri árum verið
á kafi í íþróttum þá hefur hann aldrei komið á
landsmót UMFÍ. Það er því mikil eftirvænting í hans
huga vegna landsmótsins. Ársæll tók vel á móti
Valdimar Kristóferssyni og bauð honum upp á kaffi
og með því þegar hann koma við í Ráðhúsinu á
Sauðárkróki til að taka hann tali.
Skagafjöröur verður enn betri bær
segir Ársæll Guðmundsson sveitarstjóri í Skagafirði
24. Landsmót UMFí verður haldið á Sauðárkróki næsta sumar
Mikil íþróttasaga og -hefð
Ársæll flutti til Sauðárkróks 1994 og
gengdi þá starfi aðstoðarskólameistara
Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra
þangað til að hann tók við starfi sveitar-
stjóra eftir kosningar í maí 2002. Það var
í mars 2002 sem formlega ákvörðun var
tekin í sveitarstjórn sveitarfélagsins
Skagafjörður að halda landsmót UMFÍ á
Sauðárkróki. En var það mikið kapps-
mál fyrir Skagafjörð að fá landsmótið á
Sauðárkrók? ,,Ég var reyndar ekki orðinn
sveitarstjóri þá en Skagfirðingar hafa langa
íþróttasögu og -hefð þannig að ég held að
það hafi ekki verið mikill ágreiningur um
landsmótshald á Sauðárkróki. Að vísu voru
eðlilega einhverjar umræður um kostn-
aðinn við slíkt mótshald, en menn lögðu
bara spilin á borðið, athuguðu hlutina ofan
í kjölinn og komust að því að þetta væri
hægt fjárhagslega. Þessi ákvörðun var því
tekin og ekkert pólitískt deiluefni þannig
séð. Menn ræddu kosti og galla vegna slíks
móts eins og öll sveitarfélög gera sem taka
að sér að sjá um landsmót UMFÍ. Eftir að
menn höfðu metið stöðuna og tekið ákvörð-
un hefur verið unnið ötullega að undirbún-
ingi mótsins. Íþróttalífið í sveitarfélaginu er
kraftmikið og hérna eru ákjósanlegar að-
stæður til að halda rnótið."
Sú ákvörðun um að halda mótið hefur
sjálfsagt komið af stað einhverjum fram-
kvæmdum á Sauðárkróki? ,,Já, það er
rétt og þær snúa kannski fyrst og fremst að
íþróttaleikvanginum. Þær framkvæmdir
hafa í flestu gengið samkvæmt áætlun og
ganga mjög vel. Á íþróttaleikvangnum er
verið að leggja „tartan“ á hlaupabrautirnar
sem eru sex og eru þrjár þeirra upphitaðar
sem mun reynast iþróttafólki og skokk- og
gönguhópum vel yfir veturinn hér í Skaga-
firði. Þá var allt gras tekið af knattspyrnu-
vellinum og lagt nýtt undirlag og nýtt gras
auk þess sem verið er að byggja áhalda-
hús við völlinn. Þá er verið að gera ýmsar
lagfæringar á sundlauginni auk annarra
framkvæmda sem tengjast mótinu.“
Hvað gerið þið ráð fyrir að þessar fram-
kvæmdir kosti ykkur? ,,Það er gert ráð
fyrir að framkvæmdirnar við íþróttaleik-
vanginn verði u.þ.b. 115 milljónir. Sveitar-
félagið samþykkti í mars 2002 að leggja 20
milljónir í verkefnið og svo var bætt við
áhaldahúsinu sem kostar um 5 milljónir og
sveitarfélagið tekur á sig. Svo koma inn
aðrar minni framkvæmdir sem ekki eru á
kostnaðaráætlun og fer Byggðarráð yfir
þær. Þannig að kostnaður sveitarfélagsins
verða einhverjir tugir milljóna. Við höfum
fengið 30 milljónir frá ríkinu og eigum