Skinfaxi - 01.10.2003, Side 16
Bjarni Jónsson formaður landsmótsnefndar
LANDSMÓT
UMFÍ
Það þarf að mörgu að huga þegar landsmót UMFÍ
er annars vegar en tæpt ár er í að landsmótið á
Sauðarkróki verður haldið. Sérstök landsmóts-
nefnd er starfandi vegna mótsins og sér hún m.a.
um skipulag þess, fjármögnun og fleira ásamt
framkvæmdastjóra. Bjarni Jónsson er formaður
landsmótsnefndar og Valdimar Tryggvi Kristó-
fersson heyrði í honum hvernig undirbúningi
miðaði. Bjarni starfar sem fiskifræðingur og er
forstöðumaður Norðurlandsdeildar Veiðimála-
stofnunar sem staðsett er að Hólum í Hjaltadal í
Skagafirði. Þar býr Bjarni einnig en hann situr í
sveitarstjórn Skagafjarðar. En hvernig skyldi
Bjarni tengjast ungmennafélaginu?
á
Bjarni ásamt dóttur sinni Kristínu Kolku
Besti frjálsíþróttavöllur
í þessum heimshluta
- segir Bjarni Jónsson formaður landsmótsnefndar um nýjan íþróttaleikvang á Sauðárkróki
,,Eg var á fullu í íþróttum á minum yngri árum. Eg stundaði þá
frjálsar og var mest í spretthlaupunum. Ég keppti fyrir hönd ung-
mennafélagsins Hjalta í Hjaltadal og UMSS. Þegar ég var rétt
kominn yfir tvítugt lenti ég í íþróttaslysi sem varð til þess að ég
þurfti að hætta í keppnisíþróttum fyrr en til stóð. Ég tók samt þátt í
starfinu í kringum íþróttirnar. Ég fór síðan erlendis í nokkurn tfma
og er fyrst núna að koma inn í þetta aftur eftir nokkurt hlé.“
Vann hugmyndinni brautargengi
Er ekki spennandi að vera kominn inn í þetta starf aftur?
„Jú, mjög svo. Ég hef alltaf fylgst vel með öllu því sem hefur verið
að gerast hérna heima. Þegar umræðan fór fyrst af stað að sækja
um landsmótið hérna í Skagafirði þá tók ég strax þátt í þeirri
umræðu og reyndi að vinna hugmyndinni brautargengi. Það má
segja að umræðan um landsmótshald hafi komið mér aftur inn í
þennan fþrótta- og félagsmálapakka."
Hvernig stóð á því að þú varst fenginn til starfa sem formaður
landsmótsnefndar?
„Já, þetta er góð spurning. Ætli það séu ekki nokkrir þættir ráðandi
þar um. Sennilega hefur verið leitað til mín þar sem ég er gamall
íþróttakappi úr Skagafirði og einnig tók ég þátt í og barðist fyrir því
að landsmótið yrði haldið á Sauðárkróki. Þegar mótið var síðan
komið heim í hérað var landsmótsnefnd skipuð þar sem UMSS
tilnefndi sína fulltrúa. Þeir fóru einnig fram á það við sveitarfélagið
að það legði til fulltrúa svo hægt væri að tryggja góð tengsl á milli
sveitarfélagsins og íþróttahreyfingarinnar varðandi allar fram-
kvæmdir og undirbúningsvinnu. Þar sem ég sat í sveitarstjórn og
vegna fyrri tengsla minna við íþróttir í Skagafirði þótti við hæfi að
ég tæki þetta hlutverk að mér.“
í landsmótsnefnd sitja ásamt Bjarna, Haraldur Jóhannesson for-
maður UMSS, Hjalti Þórðarson sem er í stjórn UMSS og formaður
Tindastóls, Páll Ragnarsson og Svanhildur Pálsdóttir í Akrahreppi.
Björn B. Jónsson formaður UMFÍ, Sæmundur Runólfsson fram-
kvæmdastjóri UMFÍ og Hildur Aðalsteinsdóttir frá Akureyri eru
fulltrúar UMFÍ.
Gamall draumur að fá almennilega íþróttavöll
Skagfirðingar lögðu töluvert á sig til að fá mótið og fóru aftur
í pottinn þegar ísafjörður heltist úr lestinni. Hver er ávinning-
urinn að halda slíkt mót?
„Fyrir mitt leiti þá hefur það alltaf verið gamall draumur sem
íþróttamaður að fá almennilegan frjálsíþróttavöll og góða
íþróttaaðstöðu hér í Skagafirði fyrir okkar íþróttafólk, sem er mjög
öflugt og hefur lagt mikið á sig. Það á því skilið að fá slíkan völl