Skinfaxi - 01.10.2003, Síða 18
Arndís María Einarsdóttir
LANDSMÓT
UIVIFÍ
Þaö er mikill hugur og metnaður hjá Ungmennasam-
bandi Skagafjaröar að standa sig vel á landsmótinu
enda á nýjum og glæsilegum heimavelli. Skagfirðingar
lentu í fjórða sæti í heildarstigakeppninni á síðasta
landsmóti sem fram fór á Egilsstöðum 2001. Þeir sigr-
uðu reyndar í frjálsíþróttakeppninni með giæsibrag en
hafa mikla löngun til að sigra mótið á stigum. Skag-
firðingar eiga marga frábæra frjálsíþróttamenn sem eru
í allra fremstu röð hér á landi. Þá er efniviðurinn nægur
og má þar m.a. nefna hlaupadrottninguna Arndísi Mar-
íu Einarsdóttur sem er 17 ára en hefur skipað sér á stall
með fremstu hlaupakonum landsins þrátt fyrir ungan
aldur. Valdimar Kristófersson hljóp nokkra hringi á
nýju hlaupabrautinni með Arndísi en hafði ekki erindi
sem erfiði. Hann fékk hana því til að setjast niður og
ræddi við hana m.a. um nýjan íþróttaleikvang og lands-
mótið.
Aðstaðan breytir miklu fyrir þá
sem æfa frjálsar hér í Skagafirði
- segir Arndís María Einarsdóttir hlaupadrottning í UMF Tindastól
Margfaldur íslandsmeistari í sínum aldursflokki
Það eiga sjálfsagt margir ungir og
efnilegir íþróttamenn eftir að láta Ijós
sitt skína á landsmótinu á Sauðárkróki
á næsta ári sem spennandi verður að
fylgjast með. Arndís mun væntanlega
keppa í 400, 800 og 1500 metra hlaupi
og fróðlegt verður að sjá hvað hún
gerir á mótinu. Arndísi er þegar farið að
hlakka til mótsins en skyldi þetta verða
fyrsta landsmótið sem hún tekur þátt í?
Æfir þú mikið?
,,Já, ég æfi sex
,,Já, þetta verður fyrsta landsmótið mitt.
Ég hef reyndar tekið þátt í unglingalands-
mótum UMFÍ sem hafa verið mjög
skemmtileg þannig að ég hlakka mikið til
landsmótsins hér á Króknum. Ég er þegar
farin að huga að mótinu og ætla að æfa
vel fyrir það. Það á reyndar margt eftir að
gerast fyrir mótið þ.e.a.s. mörg önnur mót
sem ég ætla að einbeita mér að áður.“
Ég hef reyndar tekið þátt í
unglingalandsmótum UMFÍ
sem hafa verið mjög
skemmtileg þannig að ég
hlakka mikið til lands-
mótsins hér á Króknum.
Ég er þegar farin að huga
að mótinu og ætla að æfa
vel fyrir það. Það á reyndar
margt eftir að gerast fyrir
mótið þ.e.a.s. mörg önnur
mót sem ég ætla að
einbeita mér að áður.
sinnum í viku og æfingarnar standa í 2-3 tíma í
senn. Æfingar byggjast upp á löngum
hlaupum, sprettum, hoppum, lyftingum,
fimleikum o.fl. Þannig að það fer mikill tími í
þetta en ég sé ekki eftir honum.“
Hvenær byrjaði þú að æfa hlaup?
,,Ég tók mín fyrst skref á hlaupabrautinni
þegar ég var níu ára en byrjaði ekki að æfa af
neinu viti fyrr en sumarið 2001 eftir að
landsmótinu lauk á Egilsstöðum. Þá fór ég
fyrst að æfa fyrir alvöru hjá Gísla Sigurðssyni
frjálsíþróttaþjálfara."
Og árangurinn hefur ekki látið á sér standa hjá
Arndísi því hún varð íslandsmeistari í sínum
aldursflokki í 400 og 800 metrum 2002 og í ár
varð hún íslandsmeistari í sínum aldursflokki í
800 og 1500 metra hlaupi. Þá varð hún í þriðja
sæti í 800 metra hlaupi í meistaraflokki kvenna
á meistaramótinu 2002.