Skinfaxi - 01.10.2003, Síða 19
Landsmót UMFÍ á Sauðárkróki 2oo4
En hvernig stóð á því að hún tók skrefið
til fulls fyrir þremur árum og ákvað að
gefa allt sitt í hlaupin?
,,Ég var að æfa með yngri hópnum hjá
Tindastóli. Gísli Sig-
urðsson var að þjálfa
eldri hópinn og hafði
eitthvað fylgst með mér
og bauð mér að koma
og æfa með eldri
flokknum. Ég ákvað að
slá til og prófa og hef
síðan verið í þessu á
fullu síðan.“
Skemmtilegt á Olym-
píudögum æskunnar
Þú náðir að vinna til
nokkurra verðlauna í
sumar - varstu ánægð
með árangurinn?
,,Já, svona þokkalega.
Það var þó mest
spennandi að taka þátt
á Olympíudögum æsk-
unnar í París en í stað-
inn missti ég reyndar af
meistaramótinu í ár
sem var fúlt. Það gekk
ágætlega í París og ég
fékk mikla reynslu að taka þátt í svona
stóru móti. Það voru um 70 krakkar sem
fóru frá íslandi og þetta var mikil upplifun.
Það var stórmótsbragur á mótinu og
gaman að fá að taka þátt í því. Vonandi á
ég eftir að taka þátt í fleiri stórmótum á
næstu árum.“
A hvað stefnir þú framtíðinni? ,,Að halda
áfram af fullum krafti og vonandi held ég
áfram að bæta mig.“
Árangurinn kemur ekki af sjálfu sér
Nú er verið að bæta aðstöðuna hjá ykk-
ur. Má ekki búast við að frjálsíþróttafólk
á Sauðárkróki eigi
eftir að bæta sig
með betri aðstöðu?
„Jú, ég á von á þvi.
Aðstaðan breytir
mjög miklu fyrir þá
sem æfa hlaup hér í
Skagafirði. Þrátt fyrir
aðstaðan hafi batn-
að þá kemur árang-
urinn ekki af sjálfu
sér. Við verðum að
halda okkar striki í
æfingunum og jafn-
vel að æfa betur
sem við ættum að
geta gert núna því
það eru þrjár brautir
upphitaðar og von-
andi að við getum
hlaupið á „törtunum"
í allan vetur. Við
höfum hingað til
hlaupið á götum
bæjarins sem heyrir
nú sögunni til auk
þess sem við höfum
æft í Reiðhöllinni. Þessi aðstaða á vonandi
eftir að draga fleiri inn í frjálsar hér á
Skagafirði.“
Já, Já, Já, Já, Já, Já, Já, Já. Já.
Já. Já, Já. Já. Já. Já, Já. Já, Já,
Já, Já, Já, Já, Já. Já, Já. Já, Já,
Já, Já, Já, Já. Já. Já, Já, Já, Já,
Já, Já, Já, Já, Já, Já, Já, Já, Já.
HaKcu vinmnGana
T (J)áSKRIFL!
... pá f ara peir s jálkraf a inn á kortareikninsinn pinn